Morgunblaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
rmúla 24 • S. 585 2800Á
VIENDA FLEX
borðlampi
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Netverslun samhliða hefðbundinni
verslun í búðum Nettó færist sífellt í
aukana. Í vikunni hóf starfsfólk Nettó
í Hafnarfirði að tína til vörur af inn-
kaupalistum fólks
af netinu í körfur
og senda heim en
fyrir var aðeins
starfsfólk Nettó í
Mjódd og á
Granda sem það
gerði. Í ljósi auk-
innar netsölu
þurfti hins vegar
að bæta í. Að sögn
Halls Geirs
Heiðarssonar,
rekstrarstjóra hjá Samkaupum, sem á
Nettó-búðirnar, er sífelldur vöxtur í
netverslun fyrirtækisins en hún hófst í
september á síðasta ári. Netsöluvelta
fyrirtækisins í október var t.a.m. fjór-
föld á við veltuna í janúar á þessu ári.
Sala þrefaldaðist í október
„Við bættum við Granda í vor því
Mjóddin réð ekki við meira af pönt-
unum. Við sjáum verulega aukningu í
þessum búðum þar sem þetta er í boði
og náum að nýta hillurnar og fermetr-
ana betur,“ segir Hallur.
Hallur segir að fyrst um sinn hafi
verið rólegt í netversluninni en á með-
an hafi fyrirtækið náð að læra betur
inn á verklag og útfærslu. „Svo hefur
verið stanslaus aukning frá því í vor.
Salan eykst með hverjum mánuðinum
og t.d. var salan í október þrefalt meiri
en salan í september,“ segir Hallur
Geir við Morgunblaðið.
Hallur bindur einnig vonir við það
að það muni færast í aukana að fólk
panti vörur á netinu og sæki sjálft í
sjálfvirka afgreiðslukassa sem fyrir-
tækið tekur í gagnið í Mjóddinni. Þar
fær fólk kóða sendan í símann sem það
skannar inn og við það opnast rétt hólf.
„Netverslun með matvörur er að
vaxa gríðarlega mikið,“ segir Hallur
og bendir á að í nýlegri skýrslu Rann-
sóknaseturs verslunarinnar komi
fram að netverslun með mat hafi vax-
ið um 170% ef bornir eru saman
fyrstu sex mánuðir ársins 2017 við
fyrstu sex mánuði ársins 2018. Þó ber
að hafa í huga að inni í þeim tölum eru
einnig máltíðapakkar frá fyrirtækjum
á borð við Eldum rétt, þar sem gríð-
arlegur vöxtur hefur verið eins og
Morgunblaðið hefur áður greint frá.
„Við ákváðum að vera með í þessu og
riðum á vaðið,“ segir Hallur.
Matvöruverslun á netinu
færist sífellt í aukana
Netverslun Biðraðir við búðarkassa munu væntanlega minnka með aukinni netverslun. Frá opnun Nettó á Granda.
Netverslun hjá Nettó þrefaldaðist á milli mánaða og hefur aldrei verið meiri
Hallur Geir
Heiðarsson
Velta í virðisaukaskattskyldri starf-
semi, fyrir utan lyfjaframleiðslu
(virðisaukaskattsskyld velta er birt
tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu
þar sem verið er að yfirfara og sann-
reyna gögn í þeirri atvinnugrein), var
samtals 4.443 milljarðar á tímabilinu
september 2017 til ágúst 2018, sem er
8,9% hækkun miðað við næstu 12
mánuði þar á undan. Þá segir að á
tímabilinu júlí-ágúst 2018 hafi veltan
verið 811 milljarðar eða 8,8% hærri
en sömu mánuði árið áður.
Þetta kemur fram í frétt á vef Hag-
stofu Íslands.
Þegar litið er á lista yfir atvinnu-
greinarnar hjá Hagstofunni má sjá
að mesta veltuaukningin á milli ára
varð í framleiðslu málma, 16,1%,
næstmest veltuaukning milli ára var í
flokknum fiskveiðar, fiskeldi og
vinnsla sjávarafurða, eða 14,5%, og
þriðja mesta aukningin var svo í at-
vinnugreinaflokknum flutningar og
geymsla, en þar inni er m.a. allt milli-
landaflug.
Góð mynd á útflutning
Að sögn Sigrúnar Halldórsdóttur,
sérfræðings hjá Hagstofu Íslands, þá
má skoða undanþegna veltu sérstak-
lega í tölum um virðisaukaskatt og fá
þannig góða mynd á stöðu útflutn-
ingsgreinanna. Einkum er þar um að
ræða útflutning á vöru og þjónustu,
en einnig beingreiðslur til bænda.
Sigrún segir að mikið sé rætt um
að farið sé að hægja á í hagkerfinu,
þó að þessar tölur bendi ekki til þess.
„Ég er spennt að sjá tölurnar sem
koma eftir tvo mánuði, og hvort við
munum sjá samdrátt þar.“ to-
bj@mbl.is
Útflutningur Álverin á Íslandi flytja
mikið af vörum til útlanda.
VSK-skyld velta
jókst um 8,9%
Mest aukning í
framleiðslu málma
Ljóst er að netverslun með alls kyns vörur færist sífellt í aukana en inn-
kaup matvara á netinu hefur í för með sér ýmsar áskoranir. Fólk vill eðli-
lega virða fyrir sér þær ferskvörur sem það hyggst neyta og velur oftar
en ekki þær vörur sem innstar og nýjastar eru í hillunni. Hallur tekur fram
að það hafi komið þeim hjá Nettó mest á óvart að fólk verslar nánast eins
og það væri í búðinni en í því felst stærsta áskorunin: Að skila þeim gæð-
um sem fólk býst við.
„Það getur orðið erfitt en við höfum fengið góð viðbrögð og höfum
staðið okkur vel. Það er þessi mannlegi þáttur í keðjunni. Það er fólk að
tína til vörurnar. Starfsfólkið sem er að tína þarf að setja sig í spor neyt-
andans,“ segir Hallur.
Áskoranir við matarinnkaup
NETVERSLUN