Morgunblaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018 Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Einstök gæði frá 40 ár á Íslandi Sterkir og notendavænir sláttutraktorar VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, segir mikla fjölgun byggingarreita sem eru komnir á framkvæmdastig vera stóru tíðindin í húsnæðismálum í ár. Nú séu framkvæmdir hafnar á stórum svæðum eins og Vogabyggð og Kirkjusandi og fleiri reitum sem áður voru deiliskipulagsáætlanir. „Í mínum huga eru síðan ein stærstu tíðindin að Bjarg, bygging- arfélag verkalýðshreyfingarinnar, klárar fyrstu íbúðirnar sínar á næsta ári. Þá koma inn leiguíbúðir á viðráð- anlegu verði fyrir fólk með lægri tekjur. Félagsstofnun stúdenta er að klára stærsta stúdentagarð sem hef- ur verið í byggingu á Íslandi, líka á næsta ári. Þannig að við fáum á næsta ári hundruð íbúða á viðráð- anlegu verði inn á leigumarkaðinn. Það sama mun endurtaka sig 2020 og aftur 2021,“ segir Dagur sem ræddi húsnæðismálin á opnum fundi í gær. Þessi framkvæmdataktur muni ekki aðeins skila íbúðum á kaup- og sölumarkað „heldur líka inn á leigu- markaðinn og inn á hluta markaðar- ins sem kemur til móts við hópa sem hafa verið mjög klemmdir og í mjög miklum vanda í húsnæðismálum“. Stuðli að betra jafnvægi – Þú nefndir greiningu frá 2012 um að eldra fólk sæi fyrir sér að flytja í minna og ódýrara húsnæði. Síðan höfum við séð hvað verktakar hafa byggt. Þeir virðast hafa metið stöðuna svo að það væri eftirspurn eftir dýrari íbúðum. Framboð og greining er sitthvað. Hvernig eiga borgarbúar að geta treyst því að framboð íbúða verði nú dreifðara? „Við stjórnum auðvitað ekki verð- lagningu verktaka en í gegnum skipulag, og það sem í okkar valdi stendur til að tryggja að það séu nógu margir reitir að byggjast upp, þá teljum við að við séum að stuðla að því að dempa þennan markað, að það komist betra jafnvægi á hann. Þá erum við bæði að tala um þennan kaupendamarkað og líka leigumark- aðinn. Við viljum líka að þeir sem vilja velja búseturétt geti gert það. Þannig að húsnæðisstefna borgar- innar gengur út á að þjóna öllum hópum og reyna að mæta eftirspurn- inni betur en gert hefur verið. Við höfum líka kallað eftir því að önnur sveitarfélög verði líka að koma inn í þennan félagslega hluta húsnæðis- byggingar, þannig að sá hluti liggi ekki allur á Reykjavík.“ Áhyggjur af fyrstu kaupendum – Brynjar Harðarson, þáv. fram- kvæmdastjóri Vals, sagði í sumar sem leið að nýjar íbúðir á B-reit á Hlíðarenda væru fyrir fyrstu kaup- endur. Þær kostuðu frá 39,8 og upp í 72,9 milljónir. Hafa verktakar metið markaðinn öðruvísi en borgin? „Ég átta mig ekki á því … En það sem vekur athygli í greiningu Capa- cent er að hlutfall fyrstu kaupenda sem eru að koma inn á markaðinn hefur verið að hækka töluvert. Og hefur ekki verið hærra lengi. Ná- kvæmlega á hvaða reit þeir eru að kaupa veit ég ekki, en við höfum haft áhyggjur af stöðu fyrstu kaupenda og ungs fólks. Þess vegna erum við að fara út með ein sjö svæði í sam- vinnu við níu hópa en við viljum að þar byggist yfir 500 íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur.“ – Nú hefur þú verið borgarstjóri lengi. Margir muna ekki eftir öðrum borgarstjóra. Litið aftur – er eitt- hvað sem þú hefðir viljað gera öðru- vísi í húsnæðismálunum? „Mér finnst þeir hlutir sem hafa lotið að fjármögnuninni hafi tekið of langan tíma. Fjármögnunin fyrir til dæmis stofnframlög, sem hefur gert uppbyggingu verkalýðshreyfingar- innar að veruleika og þann hluta húsnæðisuppbyggingarinnar, tafðist til dæmis í tvö ár í meðförum Alþing- is. Þannig að íbúðir … og lóðir sem við vorum tilbúin með í deiliskipulagi á árunum 2014 og 2015 komu ekki til úthlutunar fyrr en 2017 vegna þess að löggjöfin tafðist frá 2014 til 2016 í þinginu. Vissulega er þetta flókið mál. Auðvitað taka svona mál tíma en þarna fannst mér við tapa tveim- ur árum í þessari uppbyggingu. Síðan buðum við strax eftir hrun öllum uppbyggingaraðilum og þróunaraðilum í samstarf við að minnka íbúðir og fækka bílum í bíla- kjöllurum. Við urðum vör við ákveðna íhaldssemi og að aðilar á byggingarmarkaði höfðu kannski ekki alveg trú á því að einstaklingar væru tilbúnir að kaupa íbúðir í upp- byggingu með færri bílastæðum í kjallara, eða minni íbúðir, fyrr en það reyndist síðan raunin. Við byggðum okkar mat einmitt á könnunum á högum fólks í gegnum skoðanakannanir Gallup og Capa- cent sem voru sérstaklega gerðar fyrir okkur. Það virðist taka tíma að snúa þessu olíuskipi og ég er að vona það að sú uppbygging sem er í gangi núna, og það skipulag sem liggur henni til grundvallar, sé í betri takt við þær óskir og kröfur sem eru á húsnæðismarkaðnum, sem er fjöl- breyttur, heldur en áður,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Verktakar og ríkið hafi brugðist  Borgarstjóri segir verktaka ekki hafa orðið við óskum markaðarins  Borgin hafi viljað minni íbúðir en verktakar verið íhaldssamir  Þá hafi hægagangur á Alþingi tafið fyrir byggingu félagslegra íbúða Almennar íbúðir Húsnæðisfélag Alls: 1.013 íbúðir 983 614 667 348 159 10 113 356 614 597 923 1.344 1.400 1.300 1.250 440 72 15 87 6 75 6 99 138 72 Fjöldi íbúða á lóðum sem úthlutað hefur verið í Reykjavík á árinu Gufunes Skógarvegur Vesturgata 3Grettisgata/Starhagi Árskógar Rökkvatjörn Hraunbær Vogabyggð Vigdísarlundur Úlfarsárdalur Skyggnisbraut 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 926 922 Nýbyggingar íbúða í Reykjavík 2005-2021 Fjöldi íbúða sem hafin er bygging á Fjöldi skv. húsnæðisáætlun H ei m ild : R ey kj av ík ur bo rg n óv . 2 01 8 Borgin áætlar að 70% íbúða séu fullgerð innan tveggja ára frá því bygging hefst „Mér finnst þetta allt vera að koma. Ég er kominn til vinnu. Þarf bara að passa mig,“ segir Dagur B. Eggerts- son um baráttuna við gigt en hann var í veikindaleyfi í haust. „Ég á ungan frænda sem fékk sambærilega gigt þegar hann var í kringum tvítugt. Hann sagði að einn af ljósu punktunum við að vera með gigt væri að maður fengi aldrei hjartaáfall. Ef maður færi fram úr sér kippti gigtin í mann. Hún héldi manni í skefjum,“ segir Dagur og hlær við. Hann reiknar aðspurður með að ná fullum kröftum. „Ég er með fylgigigt sem mjög margir eru lausir við eftir eitt til tvö ár en auðvitað ekki allir. Ég er sjálf- ur að læra á þetta. Ég fæ mjög mörg góð ráð, hlýja strauma og hvatningu mjög víða að. Eins og ég vissi eru þúsundir einstaklinga í alls konar störfum að glíma við gigt. Nú er ég einn af þeim.“ – Breytti þetta sýn þinni á lífið? „Já, ég er ekki frá því. Þótt ég í fyrra starfi mínu sem læknir þætt- ist vita ýmislegt er það svo að þegar það kemur að manni sjálfum dettur manni eiginlega ekki í hug að maður eigi eftir að leggjast veik- ur fyrr en það gerist. Það var ákveð- ið áfall. Maður auðvitað hugsar ýmislegt, m.a. um það sem gefur lífinu gildi. Svo ég vitni aftur í frænda minn, sem fékk gigt- ina um tvítugt, þá orðaði hann þetta svo vel. Hann sagði: Mér var hrint í óumbeðið þroskastökk í gegnum þetta. Þegar fram líður get ég von- andi sagt eitthvað svipað,“ segir Dagur sem kveðst aðspurður hafa breytt skipulaginu á sinni vinnu. M.a. deili hann verkefnum meira. Hann hafi frábært samstarfsfólk. „Nýr meirihluti hefur komið inn af mjög miklum krafti. Þannig að fólk hefur verið mjög reiðubúið og viljugt að taka að sér allskonar verkefni, og hafa gaman af, sem ég hefði hugsanlega sinnt áður. Þá hef ég getað einbeitt mínum tíma meira í önnur mál, eins og fjárhags- áætlun og húsnæðismálin og lang- tímaáætlanir fyrir borgina sem við erum að vinna að,“ segir Dagur. Hann kveðst aðspurður reyna að beina kröftum sínum í færri áttir og deila álaginu eftir bestu getu. Stýrir borginni á annan hátt eftir glímuna við sjúkdóminn BORGARSTJÓRI REIKNAR MEÐ AÐ NÁ FULLUM STYRK Dagur B. Eggertsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.