Morgunblaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018
að koma málatilbúnaði sínum áfram gagnvart einstaklingum og fyrirtækjum,
sem síðar hefur komið í ljós að byggðist á afar veikum grunni. Mögnuð bók um
einstakt tímabil í sögu þjóðarinnar. Í senn spennandi og ógnvekjandi lesning.
Ógnvekjandi
bók!
Á bak við l eyriseftirlits Seðlabankans leynist örlagasaga.
Forsvarsmenn e labankans notfærðu sér lögreglu, fjölmiðla og dómskerfi til
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Mun meira seldist af jólabjór fyrsta
söludaginn í ár en fyrir ári. Salan
hófst á fimmtudag, 15. nóvember,
og alls seldust 30.296 lítrar af jóla-
bjór fyrsta daginn í Vínbúðunum.
Fyrir ári seldust 25.772 lítrar og
nemur aukningin 17,5%.
„Það skal haft í huga að í fyrra
byrjaði salan á miðvikudegi og al-
mennt hefur salan fyrsta daginn
verið aðeins minni þegar salan
hefst fyrr í vikunni þ.e. frá mánu-
degi til miðvikudags,“ segir Sigrún
Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarfor-
stjóri ÁTVR.
Venju samkvæmt nýtur Tuborg
jólabjórinn mestra vinsælda meðal
jólabjóranna. Alls seldust 13.262
lítrar af Tuborg Julebryg fyrsta
daginn. Það eru tæplega 44% af
sölu dagsins. Næstvinsælastur var
jólabjórinn frá Víking en af honum
seldust 2.323 lítrar. Þar á eftir kom
Jólagull en alls seldust 1.698 lítrar.
Ekki eru allar tegundir jólabjórs-
ins komnar í sölu og enn sem komið
er hefur engin tegund selst upp,
eins og stundum vill verða. Hægt er
að fylgjast með úrvalinu á vef Vín-
búðanna en þar er líka hægt að
panta vörur. Pantanir í vefverslun
voru um 150 fyrsta sólarhringinn
eftir að sala á jólabjór hófst, ívið
færri en fyrsta söludaginn í fyrra,
að sögn Sigrúnar Óskar.
Jólabjórinn
seldist vel á
fyrsta degi
17,5% meiri sala
en fyrir ári
Morgunblaðið/Eggert
Jólabjór 17,5% meiri sala á fyrsta
degi en í fyrra. Tuborg vinsælastur.
Gripið verður til
sértækra aðgerða
til að gera ungu
og tekjulágu fólki
kleift að kaupa
sér íbúðar-
húsnæði. Ríkis-
stjórnin sam-
þykkti í gær
tillögu Ásmundar
Einars Daðason-
ar, félags- og
jafnréttismálaráðherra, um skipun
starfshóps sem á að útfæra
ákveðnar aðgerðir í þessu skyni sem
hafa gefist vel hjá grannþjóðum.
Einkum er horft til leiða sem farnar
hafa verið í Sviss og Noregi.
Í Sviss má nota uppsafnaðan líf-
eyrissparnað til að afla eiginfjár-
framlags vegna íbúðakaupa. Ýmist
er hægt að fá sparnaðinn fyrirfram-
greiddan eða veðsetja hann. Al-
mennur lífeyrissparnaður má vera
allt að 90% kaupverðs en viðbótarlíf-
eyrissparnaður allt að 100%.
Husbanken í Noregi, systur-
stofnun Íbúðalánasjóðs, býður sér-
stakan húsnæðisstuðning, startlán,
til að aðstoða afmarkaðan hóp tekju-
lágra heimila við að kaupa sér íbúð.
Startlán eru íbúðalán með lægri
vöxtum og lægri eiginfjárkröfu en
tíðkast. gudni@mbl.is
Auðveldari
íbúðakaup
til skoðunar
Ásmundur Einar
Daðason