Morgunblaðið - 17.11.2018, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 17.11.2018, Qupperneq 38
38 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018 Þverholt 1 - 270 Mosfellsbær Garðatorg 5 - 210 Garðabær 634,1 m2 skrifstofuhúsnæði í miðbæ Garðabæjar. Eignin er á tveimur fastanúmerum. Eign 01-01 sem er skráð 373,3 m2, þar af rými í kjallara skráð 97,6 m2 og eign 02-01 sem er skráð 260,8 m2. Hluti efri hæðar er í leigu í dag með húsaleigusamning sem gildir út 31.03.2021. V. 160,0 m. Heildareignin Þverholt 1 í Mosfellsbæ sem er skrifstofuhúsnæði á tveimur hæðum og kjallara, auk þess fylgir eigninni 364 m2 byggingarreitur. Birt stærð eignarinnar eru 706,9 m2, þar af 372,4 m2 skrifstofurými og afgreiðslusalur á 1. hæð, 249,4 m2 skrifstofur og matsalur á 2. hæð og 85,1 m2 geymslu/tæknirými í kjallara. V. 180,0 m. Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali Þverholti 2 // Mosfellsbæ // Sími 586 8080 fastmos.is // fastmos@fastmos.is Einar Páll Kjærnested Löggiltur fasteignasali S. 899 5159 Svanþór Einarsson Löggiltur fasteignasali S. 698 8555 Sara Níelsdóttir, deildarstjóri erlendra tungumála í Fjölbrauta-skóla Norðurlands vestra, á 50 ára afmæli í dag. Hún er stödd íReykjavík yfir helgina og fagnar afmælinu hér fyrir sunnan. Hún hélt kvennaboð í gær og fer í fertugsafmæli mágkonu sinnar í dag. „Svo förum við fjölskyldan út að borða og ætlum á Ronju ræningja- dóttur og gerum ýmislegt fleira. Ég er úr 101 og maðurinn minn er Hafnfirðingur svo við erum mikið hér fyrir sunnan.“ Söru líkar þó vel að búa á Sauðárkróki. „Ég ætlaði bara að kenna hérna í eitt ár en þau eru orðin fimmtán og Krókurinn minnir mig á gamla Vesturbæinn þegar allir þekktu alla.“ Sara lærði þýsku, almenn málvísindi og miðaldafræði og kennir þýsku, dönsku og íslensku í skólanum. „Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er eini framhaldsskólinn á Norðvesturlandi en við bjóðum upp á grunnnám á Hólmavík, Hvammstanga og Blönduósi þar sem við kenn- um í beinni í gegnum netið. Við erum eini skólinn sem býður upp á þetta og erum stolt af því.“ Helstu áhugamál Söru eru ferðalög, listir og bókmenntir, sérstaklega nútímalist og hún hefur einnig verið öflug í félagsstörfum. m.a. setið í stjórn Félags þýskukennara, kvennahreyfingunni Delta-Kappa-Gamma og sinnt trúnaðarstörfum fyrir Kennarasambandið. Eiginmaður Söru er Þorsteinn Hjaltason, enskukennari við Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra, og dóttir þeirra er Arna 11 ára. Fjölskyldan Sara og Þorsteinn ásamt Örnu, dóttur þeirra. Krókurinn minnir á gamla Vesturbæinn Sara Níelsdóttir er fimmtug í dag K ristín Jóhannesdóttir fæddist í Reykjavík 17.11. 1948 og ólst þar upp. Hún lauk stúd- entsprófi frá MR 1969, Licence í bókmenntum og maitrise í kvikmyndafræðum frá Université Paul Valéry í Montpel- lier í Frakklandi 1975; DEA gráðu (fyrri hluta doktorsgráðu) í kvik- myndafræðum frá sama skóla 1977 og lokaprófi í kvikmyndaleikstjórn við Conservatorire Libre du Ci- néma Francais í París 1978. Auk þess stundaði hún nám í kvikmynd- un við Sorbonne, Paris Vlll. Kristín hefur leikstýrt kvik- myndum, sjónvarpsmyndum, út- varpsleikritum og leikhúsverkum á vegum Völuspár sf., Tíu – Tíu hf., RÚV, Stúdentaleikhússins, Nem- endaleikhússins, Útvarpsleikhúss- ins, Borgarleikhússins og Þjóðleik- hússins. Þá kenndi hún við Leiklistarlistarskóla Íslands. Kristín var handritahöfundur og leikstjóri kvikmyndanna Á hjara veraldar, 1982, og Svo á jörðu sem á himni, 1992, sjónvarpsmyndanna Líf til einhvers, 1987, og Glerbrot, 1988, og vinnur að kvikmyndinni Alma, sem handritshöfundur og leikstjóri. Meðal leikhúsverka sem hún leikstýrði má nefna Svívirtir áhorf- endur, 1984; Leikslok í Smyrnu, 1987; Dómínó og Sumarið ’37, 1998; Ofanljós, 1998; Horft frá brúnni, 1999; Vorið vaknar, 1999; Einhver í dyrunum, 2000; Draumleikur, 2000; Strompleikurinn, 2002; Utangátta, eftir Sigurð Pálsson, Þjóðlh. 2008;. Brennuvargarnir e. Max Frisch, Þjóðlh. 2009; Svartur hundur prestsins, e. Auði Övu Ólafsdóttur, Þjóðlh. 2011; Beðið eftir Godot, e. Samuel Beckett, Garpur og Borg- arlh. 2012; Rautt, e. John Logan, Borgarleikhús 2012; Hús Bern- hörðu Alba, e. F.G. Lorca, Borgar- leikhúsið, 2013; Segulsvið, e. Sigurð Pálsson, Þjóðleikhúsið 2015; Enda- tafl, e. Samuel Beckett, Tjarnarbíó Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri – 70 ára Á Bessastöðum Kristín og Sigurður fagna fyrir rétt rúmum tíu árum þegar hann fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Minnisbók sína. Það er bannað að vera gamall – KJ er 2x35 ára Mæðgin Kristín með syni sínum og Sigurðar, Jóhannesi Páli. Reykjavík Andrea Hjalta- dóttir fæddist 8. febrúar 2018 kl. 5.34 á Landspít- alanum við Hringbraut. Hún vó 3.054 g og var 50 cm að lengd. Foreldrar eru Hjalti Þórðarson og Telma Karen Finnsdóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.