Morgunblaðið - 17.11.2018, Page 44

Morgunblaðið - 17.11.2018, Page 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2018 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Ísland og Tékkland fagna bæði 100 ára fullveldi á þessu ári og 28. októ- ber sl. var haldin íslensk-tékknesk tónlistarhátíð í Hörpu af því tilefni. Tékkar og Slóvakar héldu hátíðina saman og meðal gesta þar var slóv- aski myndlistarmaðurinn Luka Brase sem sýndi nokkur verka sinna. Brase fæddist árið 1983 í Tékkóslóvakíu en tíu árum síður var landinu skipt í tvö ríki, Tékkland og Slóvakíu. Brase nam myndlist í því síðarnefnda og hefur frá útskrift haldið einkasýningar víða um Evr- ópu, í Bandaríkjunum og Kína. Björn aðdáandi Brase opnar sýningu í dag kl. 16 á heldur óvenjulegum sýningarstað, líkamsræktarstöð World Class í Laugum í Laugardal. Blaðamaður sló á þráðinn til Brase í vikunni og spurði hann fyrst hvernig stæði á því að hann væri að sýna í Laugum. „Af því Björn Leifsson er mikill aðdá- andi verka minna og vildi halda sýn- ingu á þeim,“ svarar Brase og á þar við stofnanda og eiganda World Class. Verk Brase einkennast af skærum litum og fínlegri pennateikningu þar sem oftar en ekki er mikið um að vera, alls konar byggingar og per- sónur sem koma við sögu, renna saman og misjafnt hversu fyrirferð- armikill liturinn er á móti svart- hvítri teikningunni. Verkin vinnur hann bæði á pappír og striga og minna þau að vissu leyti á mynd- skreytingar, að mati blaðamanns. Hann nefnir þetta við Brase sem segist oft hafa heyrt það en þó að- eins einu sinni hafa myndskreytt bók. 33 ára vinna að baki Brase segist hafa stundað mynd- list allt frá tveggja ára aldri þegar hann byrjaði að teikna. „Þannig að þegar fólk spyr hversu langan tíma hafi tekið mig að teikna tiltekið verk svara ég 33 ár, næstum allt mitt líf,“ segir Brase en hann verður 35 ára á þessu ári. Hann segist fljótlega eftir nám í listaháskóla hafa komist á mála hjá einu besta galleríi Hollands og frá 25 ára aldri hafi hann sýnt um allan heim. Spurður út í stærð verk- anna segir Brase þau af ýmsum stærðum; allt frá A4 eða þar um bil upp í margra metra verk. En er hann að segja sögur í verk- um sínum? „Auðvitað,“ svarar Brase, „flest verkin vinn ég út frá ferðalögum mínum, því sem ég sé á þeim og áhugaverðu fólki sem ég hitti. Þegar heim er komið byrja ég að teikna og ég kalla þetta sjón- rænar dagbækur. Rithöfundar skrifa texta en myndlistarmenn teikna myndir. Þetta eru dagbækur lífs míns og sálar, þær eru ríkulegar og veita mér ánægju,“ svarar Brase. Morgunblaðið/Árni Sæberg Litríkt Luka Brase með eitt af verkum sínum í World Class Laugum. Sjónrænar dagbækur  Luka Brase sýnir í World Class Morgunblaðið/Árni Sæberg Stórt Eitt af verkum Brase. Frekari upplýsingar um verk eftir Brase má finna á vefsíðu hans, lukabrase.nl. Hrund Ósk Árna- dóttir sópran og Hrönn Þráins- dóttir píanóleik- ari flytja aríur úr óperunum La Traviata, Don Carlo, Il Trova- tore, Rigoletto, Óþelló og I vespri siciliani eftir Verdi í dag kl. 16 í Salnum. „Á þessum tón- leikum langar okkur að kanna þetta ólíka landslag impressjón- isma og raunsæis í verkum Verdis með því að beina sjónum að lífi og dauða kvenhetjanna sem byggja þau,“ segir Hrönn í tilkynningu. Flytja aríur úr óperum Verdis Hrönn Þráinsdóttir Aðalsteinn Ás- berg Sigurðsson rithöfundur og Svavar Knútur tónlistarmaður flytja dagskrá í tónum, máli og myndum um Reykjavíkur- skáldið Tómas Guðmundsson í Hannesarholti í dag kl. 13. „Fegurð, kímni og róm- antík svífa yfir vötnum í líflegri dagskrá þar sem sagt er frá lífi og ljóðum Tómasar og flutt ástsæl sönglög sem samin hafa verið við ljóð hans,“ segir í tilkynningu um viðburðinn. Tómas í tónum, máli og myndum Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson The Guilty Morgunblaðið bbbbn Metacritic 82/100 IMDb 7,9/10 Bíó Paradís 18.00, 20.00 Juliusz IMDb 6,5/10 Bíó Paradís 17.45, 20.00 Litla Moskva Bíó Paradís 18.00, 20.00 Cold War Metacritic 90/100 IMDb 7,9/10 Bíó Paradís 20.00 Mæri Metacritic 78/100 IMDb 7,2/10 Bíó Paradís 22.00 Blindspotting Metacritic 76/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 22.15 Kona fer í stríð Morgunblaðið bbbbb Metacritic 81/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 18.00 Bohemian Rhapsody 12 Laugarásbíó 19.50, 22.30 Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30, 22.15 Sambíóin Keflavík 22.20 Smárabíó 16.40, 19.20, 22.20 Háskólabíó 15.20, 18.10, 20.30 Borgarbíó Akureyri 17.30, 19.30, 21.50 The Girl in the Spider’s Web 16 Metacritic 48/100 IMDb 5,7/10 Smárabíó 19.50, 22.20 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 22.00 Hunter Killer 12 Metacritic 39/100 IMDb 6,6/10 Sambíóin Egilshöll 22.40 Halloween 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 68/100 IMDb 7,5/10 Laugarásbíó 22.00 Sambíóin Álfabakka 22.10 Lof mér að falla 14 Þegar Magnea 15 ára kynnist Stellu 18 ára breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur al- varlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Morgunblaðið bbbbn IMDb 8,8/10 Háskólabíó 17.50, 20.40 Undir halastjörnu 16 Morgunblaðið bbbmn IMDb 6,8/10 Háskólabíó 16.00, 18.20, 20.50 Bíó Paradís 22.15 Johnny English Strikes Again Metacritic 36/100 IMDb 6,6/10 Laugarásbíó 20.00 Smárabíó 14.30 Venom 16 Morgunblaðið bbnnn Metacritic 35/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 17.20, 20.00, 22.30 The Grinch Laugarásbíó 12.00, 13.50, 14.00, 15.50, 16.00, 17.50, 18.00 Sambíóin Álfabakka 11.10, 13.20, 15.30, 17.50, 20.00 Sambíóin Egilshöll 13.00, 15.30, 17.50 Sambíóin Keflavík 13.10, 14.30, 17.20 Smárabíó 12.45, 15.00, 17.15 Háskólabíó 15.40, 18.00 Borgarbíó Akureyri 13.30, 15.30, 17.30, 20.00 The Nutcracker and the Four Realms Sambíóin Álfabakka 11.20, 13.30, 15.40, 17.50 Sambíóin Egilshöll 17.40 Sambíóin Kringlunni 14.20 Sambíóin Akureyri 17.20 Sambíóin Keflavík 15.15 Háskólabíó 15.30 Grami göldrótti IMDb 5,5/10 Smárabíó 15.00 Smáfótur Metacritic 60/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 11.20, 13.30, 15.40 Sambíóin Egilshöll 13.00, 15.30 Sambíóin Akureyri 15.00 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Metacritic 54/100 IMDb 6,3/10 Smárabíó 12.50 Bönnuð börnum yngri en 9 ára. Metacritic 57/100 IMDb 7,7/10 Laugarásbíó 14.00, 17.00, 19.50, 22.30 Sambíóin Álfabakka 11.10, 12.10, 13.15, 14.00, 15.00, 16.00, 17.40, 18.45, 20.30, 21.30, 22.20 Sambíóin Egilshöll 13.00, 14.00, 16.00, 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 22.45 Sambíóin Kringlunni 14.00, 16.45, 19.30, 22.15 Sambíóin Akureyri 14.00, 16.45, 19.30, 22.20 Sambíóin Keflavík 16.45, 19.30, 22.20 Smárabíó 12.50, 13.10, 15.50, 16.20, 19.00, 19.30, 22.00, 22.30 Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald 12 A Star Is Born 12 Kvikmyndastjarna hjálpar ungri söngkonu og leikkonu að slá í gegn. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 88/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 18.00, 20.00, 21.00 Sambíóin Egilshöll 20.00 Sambíóin Kringlunni 14.00, 16.45, 19.30, 22.15 Sambíóin Akureyri 19.30 Sambíóin Keflavík 19.30 Overlord 16 Bandarískir fallhlífahermenn fara á bakvið víglínuna til að styrkja innrás bandamanna í Normandy. Metacritic 52/100 IMDb 7,0/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.45 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.20 Sambíóin Akureyri 22.20 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.