Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.03.2019, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 07.03.2019, Qupperneq 20
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Það liggur við að þátttaka hennar í þessari ríkisstjórn sé ein og sér ástæða til að styðja stjórn- ina. Það er löngu tímabært að Már Guð- mundsson verði látinn bera ábyrgð á ólöglegum embættis- færslum sínum. Ég lenti í löglausri aðför Seðlabankans með félag mitt Ursus árið 2010 þegar ég var ásamt hópi fjárfesta hæstbjóðandi í opnu söluferli Sjóvár. Þar voru stjórnsýslulög brotin og ég kærður til lög- reglu þrátt fyrir að hafa engin lög brotið. Ég fékk engan andmælarétt og málið tók tvö ár af lífi mínu sökum valdníðslu Seðlabankans. Sérstakur sak- sóknari, ríkissaksóknari og umboðsmaður Alþingis staðfestu allir sakleysi mitt og það lá ljóst fyrir eftir athuganir þeirra að það var Seðlabankinn sem braut á mér. Það er því áhugavert að lesa umkvartanir Más Guðmundssonar um greinargerð bankaráðs Seðla- banka Íslands sem forsætisráðherra óskaði eftir. Þar kvartar hann yfir því að hafa ekki andmælarétt. Hann á engan slíkan rétt, enda er hann stjórnvald en eftirlitsaðilinn, bankaráðið sem kosið er af Alþingi, er ekki stjórnvald samkvæmt lögum. Bankaráðið er að svara forsætisráðherra en ekki seðlabankastjóra og ekkert vekur upp andmælarétt í þeim sam- skiptum. Már kvartar með öðrum orðum yfir því að ytri rannsókn á misheppnuðum embættisfærslum hans sé ekki unnin í samráði við hann! Steininn tekur síðan úr í óskammfeilni Más þegar hann reynir að hóta bankaráðinu. Hvernig getur embættismaður fengið að hóta eftirlitsaðilum Alþingis með þeim hætti sem hann gerir? Már Guðmundsson hefur gerst margbrotlegur í starfi samkvæmt athugun saksóknara og umboðs- manns Alþingis. Hann hefur gengið svo langt að halda gögnum leyndum og hunsa niðurstöður eftirlitsaðila. Í vikunni kom svo í ljós að einbeittur brotavilji hans er enn til staðar þegar hann ætlar að stöðva réttmæt samskipti bankaráðs við forsætis- ráðuneytið. Það er löngu tímabært að Már Guð- mundsson verði látinn bera ábyrgð á ólöglegum embættisfærslum sínum. Það getur ekki verið að hann sé einn borgara ofar lögum landsins. Gilda lög ekki um Má Guðmundsson? Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur Ráðherraembætti þykir víst gott djobb en þeim einstaklingum sem því gegna hverju sinni verður mismikið úr verki. Sumir halla sér makindalega aftur í ráðherrastólnum og reyna að hafa það sem notalegast. Það er helst að þeir sýni lit þegar sérhagsmunaöfl krefjast þess að þörfum þeirra sé sinnt. Þá kinkar ráðherrann nánast sjálfkrafa samþykkjandi kolli. Þetta hefur til dæmis iðulega orðið raunin þegar kemur að hags- munum stórútgerðarinnar sem er stöðugt að græða en ber sig samt alltaf jafn illa. Þá bregst varla að ráð- herrar sýni sanna hluttekningu í verki, enda yfirleitt um þeirra eigin flokksmenn að ræða. Svo eru ráðherrar sem hafa lifandi áhuga á þeim málaflokki sem þeir sinna og leggja sig fram við að koma góðum hlutum í framkvæmd. Mennta- og menningarmálaráðherra Lilja Alfreðsdóttir er þessarar gerðar. Það liggur við að þátttaka hennar í þessari ríkisstjórn sé ein og sér ástæða til að styðja stjórnina. Lilja hefur ekki setið lengi á stól mennta- og menn- ingarmálaráðherra en nýtir tíma sinn gríðarlega vel og henni hefur þegar orðið mikið úr verki. Það er vissu- lega skynsamlegt því á þessum síðustu og ekki alltaf jafn góðu tímum hefur ríkisstjórnum landsins ekki orðið langra lífdaga auðið. Sumir iðja jafnvel við það að telja niður daga þessarar ríkisstjórnar og spá henni óförum fyrr en síðar. Til þess þarf ekki mikið hug- myndaflug, séu örlög síðustu ríkisstjórna höfð í huga. Lilja vann bókmenntum í landinu mikið gagn með frumvarpi um stuðning við útgáfu bóka á íslensku, en í því felst að bókaútgefendur fá endurgreiðslur á hluta kostnaðar við útgáfu. Bókaútgáfa á Íslandi er erfið og við hana þarf að styðja með öllum mögu- legum ráðum. Þar hefur mennta- og menningarmála- ráðherra sannarlega lagt sitt af mörkum. Lilja veit að lestur er þroskandi, eykur samkennd og víðsýni og eflir hið mikilvæga ímyndunarafl. Ráðherranum er sömuleiðis annt um að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi, eins og sannarlega er þörf á. Þar má vissulega deila um einstaka útfærslur en því ber að fagna að loksins sé gripið til nauðsynlegra björgunaraðgerða. Í vikunni boðaði Lilja síðan stórsókn í mennta- málum til að fjölga kennurum og styðja við hið mikilvæga starf þeirra. Frá og með næsta hausti býðst nemendum á lokaári meistaranáms til kennslurétt- inda á leik- og grunnskólastigi launað starfsnám og þeir geta einnig sótt um námsstyrki. Það er ekki oft sem ákvarðanir stjórnmálamanna framkalla orðin: „Loksins, loksins …“ en Ragnar Þór Pétursson, for- maður Kennarasambandsins, lét einmitt þau orð falla í viðtali og bætti við að nú væri fókusinn kominn á réttan stað, sem sagt á mannauðinn í menntakerfinu. Það er langt í frá að þjóðin sé alltaf ánægð með ráðherra sína. Hún á samt að kunna að meta það sem vel er gert. Ljóst er að Lilja Alfreðsdóttir er að standa sig stórvel í mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Þarna er kona sem er sannarlega á réttum stað. Megi hún vera þar sem lengst. Kona á réttum stað Aðalfundur Ferðafélagsins Útivistar verður haldinn fimmtudaginn 21. mars 2019 kl. 20. Fundurinn verður haldinn í sal Ferðaklúbbsins 4x4 að Síðumúla 31. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Ferðafélagið Útivist AÐALFUNDUR Laugavegi 178 • Sími 562 1000 • www.utivist.is Veira í kastljósi Mislingar, sem haldið hefur verið í skefjum með bólusetningum í áratugi, gera nú óþægilega vart við sig víða um lönd. Líka á Íslandi. Þótt enn sé kannski ekki ástæða til þess að fara á taugum býr bráðsmitandi vá í lofti og þá væri nú ákjósanlegt að sem flestir, allir reyndar, væru bólusettir gegn óværunni. Kast­ ljós gærkvöldsins var lagt undir mislingaógnina þar sem Sigríður Hagalín Björnsdóttir ræddi við tvo sérfræðinga í þessum vágesti sem vitleysingar sem amast við bólusetningum hafa boðið vel­ kominn inn í 21. öldina á Íslandi. Heiðarlegt kvef Á meðan Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Magnús Karl Magnússon prófessor greindu vandann reyndi Sig­ ríður Hagalín að halda aftur af stjórnlausum hósta. Ekkert alvarlegt sem betur fer en óneitanlega gaf hóstakjöltrið umræðunni óþægilega drama­ tískan blæ. Enda sá hún ástæðu til þess að taka sérstaklega fram í lok þáttarins að hún væri ekki með mislinga heldur bara með „heiðarlegt kvef“. Gott og blessað ef við værum ekki aftur að nálgast byrjunarreit þar sem einmitt heiðarlegt kvef var og er bókstaf lega upphaf allra heims­ pesta. Læknarnir héldu þó ró sinni og væntanlega áhorfendur líka, vitandi af Sigríði í góðum höndum sérfræðinga. thorarinn@frettabladid.is 7 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 7 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 F -8 E C 8 2 2 7 F -8 D 8 C 2 2 7 F -8 C 5 0 2 2 7 F -8 B 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 7 2 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.