Fréttablaðið - 07.03.2019, Side 38
Mjólkurfernur Mjólkursam-sölunnar eru umhverfis-vænstu umbúðir sem völ
er á fyrir mjólk og með 66 prósent
minna kolefnisspor en áður,“ segir
Sunna Gunnars Marteinsdóttir,
verkefnastjóri upplýsinga- og
fræðslumála hjá Mjólkursam-
sölunni (MS).
„Mjólkursamsalan var fyrst
fyrirtækja sinnar tegundar til að
nýta sér þennan vistvæna val-
möguleika. Það munar um minna
þegar fyrirtækið pakkar árlega
mjólk í 25 milljónir mjólkurferna,“
upplýsir Sunna.
„Mikilvægt er að treysta á
hringrás hráefna því fyrir okkur
eru fernur efni í eitthvað annað og
meira en rusl,“ segir Sunna. „Við
viljum því gjarnan hvetja alla til að
setja tómar fernur í endurvinnslu
því þær geta áfram nýst sem efni-
viður í aðrar umbúðir.“
Plastið út og pappinn inn
Á síðasta ári tók Mjólkursamsalan
í notkun enn fleiri umhverfisvæna
valkosti undir mjólkurafurðir
sínar.
„Við hættum að nota plastdósir
utan um drykki og færðum okkur
alfarið yfir í pappafernur úr ábyrgri
skógrækt. Auk þess fjarlægðum við
plaströrin af G-mjólkinni,“ upplýsir
Sunna og MS er hvergi hætt. „Við
erum með athyglina á mögulegum
breytingum sem þurfa að uppfylla
kröfur, eru í takt við matvælaöryggi
og vel prófaðar. Umbúðir eru þó
ekki það eina sem MS þarf að horfa
til í framleiðsluferlinu því það er
einnig hægt að nýta hráefni betur
og minnka með því sóun.“
Mysa verður að víni
Til að nýta ostamysu betur var
tekin ákvörðun af Mjólkursam-
sölunni og Kaupfélagi Skagfirðinga
um að stofna Heilsuprótein á
Sauðárkróki.
„Við framleiðslu á osti verða til
50 milljónir lítra af mysu á hverju
ári. Mysan var ekki nýtt áður en nú
framleiðum við úr henni prótein
í heilsuvörur. Það gengur vel og á
næstunni ættum við einnig að sjá
mysuna verða að víni (etanóli).
Það eru því framundan tækifæri til
að nýta mysuáfengið í nýsköpun
í framleiðslu innlendra áfengra
drykkja. Eftir þessa vinnslu á mys-
unni í duft og etanól stendur aðeins
hreint vatn eftir,“ upplýsir Sunna en
hjá MS er verið að skoða enn frekari
tækifæri til að nýta betur hráefni í
framleiðslunni.
Íslenskuátak á afmælisári
Mjólkursamsalan fagnar nú 25 ára
afmæli samfélagsverkefnis sem
landsmönnum er að góðu kunnugt.
„Það er verkefnið „Íslenskan er
okkar mál“ sem hófst árið 1994
þegar Þórarinn Eldjárn orti ljóð
sem hefst á orðunum „Á íslensku
má alltaf finna svar“, sérstaklega
fyrir Mjólkursamsöluna í tilefni
samstarfs MS og Íslenskrar mál-
nefndar,“ útskýrir Sunna en ljóð
Þórarins var ort við þekkt lag Atla
Heimis Sveinssonar.
„Stærsta og sýnilegasta verkefni
fyrirtækisins í þessu átaki eru
textar og ljóð utan á mjólkurfern-
um sem margir muna eftir að hafa
lesið eða fylgst með börnum sínum
lesa,“ segir Sunna og bætir við að í
tilefni afmælisársins sé von á nýju
og skemmtilegu íslenskuátaki.
Um MS
Mjólkursamsalan varð til við
hagræðingu í mjólkuriðnaðinum
sem hófst skipulega um miðjan
tíunda áratuginn þegar stjórnvöld
ákváðu að lækka þyrfti kostnað
við vinnslu á mjólk. Næsta
áratuginn eftir hagræðinguna
sameinaðist rúmur tugur félaga
í mjólkuriðnaði í færri einingar.
Elsta einingin í sameinuðu félagi
er Mjólkursamlag KEA sem var
stofnað fyrir rúmlega 90 árum, í
september 1927, en Mjólkursam-
salan er í eigu bænda um land allt
og hefur starfað í núverandi mynd
frá árinu 2007.
Ostamysa var ekki
nýtt áður en nú
framleiðum við úr henni
prótein í heilsuvörur og
á næstunni ættum við að
sjá mysu verða að víni.
Sunna Gunnars Marteinsdóttir
Hjá Sýn hf. skiptist sam-félagsábyrgð félagsins í þrjú áherslusvið; sameiginlegt
virði, sjálfbærni og hlítni. Áhersla
er lögð á að hámarka jákvæð áhrif
á umhverfið og samfélagið í heild
og skapa þannig sameiginlegt virði
fyrir félagið og alla hagsmuna-
aðila,“ segir Sif Sturludóttir, for-
stöðumaður hjá Sýn. Hún bætir við
að Sýn hf. sýni samfélagsábyrgð í
verki með því að sinna hlutverki
sínu sem fjarskipta- og fjölmiðla-
fyrirtæki af fagmennsku og ábyrgð.
Lögð er áhersla á aukna sjálf-
bærni og lagt upp úr því að halda
jafnvægi á milli efnahags, umhverf-
is og samfélags í rekstrinum auk
þess sem starfað er í hlítni við
íslensk lög, reglur og almenn við-
mið.
„Við höfum unnið að Samfélags-
uppgjöri, í samvinnu við Klappir
Core, þar sem stuðst er við ESG-
leiðbeiningar sem Nasdaq hefur
sett fram fyrir skráð fyrirtæki á
markaði. Þessi viðmið uppfylla
ákveðna þætti hins alþjóðlega
staðals Global Reporting Initiative
sem auðveldar fyrirtækjum og
stofnunum að miðla upplýsingum
um samfélagsábyrgð með gagn-
sæjum og skýrum hætti.
Hlutverk Sýnar hf. er að vera leið-
andi fyrirtæki á sviði fjarskipta og
fjölmiðlunar á Íslandi. Sem dæmi
um árangur af stefnu félagsins í
þessum efnum má nefna víðtæka
Áhersla á að hámarka jákvæð
áhrif á umhverfið og samfélagið
Sif Sturludóttir,
forstöðumaður
hjá Sýn. Fyrir-
tækið hefur
sett sér ákveðin
markmið í
umhverfis- og
loftslagsmálum
sem eru til þess
fallin að draga
úr mengun og
hafa þannig
jákvæð áhrif
á vistspor
félagsins.
vottun skv. ISO 27001-staðlinum
sem félagið undirgengst árlega,“
segir hún.
Félagið hefur verið vottað fyrir-
myndarfyrirtæki í góðum stjórnar-
háttum, þá hefur fyrirtækið fengið
Hvatningarverðlaun jafnréttis-
mála.
Sýn hf. er einn aðalstyrktaraðili
Slysavarnafélagsins Landsbjargar,
bakhjarl KSÍ og vinnur náið með
UN Women á Íslandi.
Sýn hf. hefur sett sér ákveðin
markmið í umhverfis- og loftslags-
málum sem eru til þess fallin að
draga úr mengun og hafa þannig
jákvæð áhrif á vistspor félagsins.
Sýn hf. skrifaði undir loftslagsyfir-
lýsingu FESTU og Reykjavíkurborg-
ar um markmið í loftslagsmálum
og hefur einnig einsett sér að efla
vistvænar samgöngur, draga úr
myndun úrgangs og stuðla að betri
orkunýtingu. Félagið hefur einsett
sér að ganga um landið af virðingu,
með umhverfisvernd að leiðarljósi.
Þannig er ávallt leitast við að fram-
kvæmdir á vegum félagsins valdi
sem minnstu umhverfisraski.
„Sýn hf. hefur sett sér það mark-
mið að flokka allt sorp sem fellur
til í starfseminni, auka þannig
endurvinnslu og draga úr ónauð-
synlegri urðun á sorpi. Leitast er
við að lágmarka notkun á óendur-
nýjanlegum auðlindum og losun
skaðlegra efna út í umhverfið eins
og kostur er,“ segir Sif.
Á árinu fluttist öll sameinuð
starfsemi félagsins í höfuðstöðvar
Sýnar hf. að Suðurlandsbraut 8-10.
„Við leggjum áherslu á heilbrigði
og vellíðan starfsmanna á vinnu-
staðnum. Í höfuðstöðvum félagsins
er mikið lagt upp úr góðri hljóðvist,
loftræstingu og birtuskilyrðum
og má þar nefna að eingöngu er
notast við LED-perur í skrifstofu-
rýminu með tilliti til endingar,
ljósgæða, hagkvæmni og áhrifa á
umhverfið. Sýn hf. styður starfsfólk
til að stunda vistvænar samgöngur
t.d. með því að veita samgöngu-
styrk sem fólk er duglegt að nýta
sér, almenningssamgöngur eru
mjög aðgengilegar frá Suðurlands-
brautinni. Einnig bjóðum við upp
á hleðslustöðvar fyrir rafbíla, læsta
hjólageymslu og framúrskarandi
búningsaðstöðu.“
Sýn er í virku samstarfi við
Vinnuvernd og hefur félagið
þar greiðan aðgang að fagaðilum
á sviði heilbrigðismála. „Einn-
ig erum við í samstarfi við Kara
Connect varðandi sérfræðiaðstoð
fyrir starfsfólk. Það er ýmislegt á
döfinni tengt þessum málaflokki
og er félagið til dæmis að vinna að
því að bjóða starfsfólki Sýnar upp á
þjónustu t.d. sálfræðinga á vinnu-
tíma eða jafnvel eftir að vinnu-
tíma lýkur. Sýn hf. lauk nú í lok
nóvember vottunarferli félagsins
samkvæmt vinnuverndarstaðlin-
um ISO 45001 og er fyrst íslenskra
fyrirtækja til að fá vottunina
samkvæmt nýrri útgáfu staðals-
ins. Endurvottun fer nú fram árlega
en sú fyrsta er ráðgerð í mars 2019.“
Umhverfisvænni umbúðir hjá MS
Sunna Gunnars Marteinsdóttir verkefnastjóri hjá MS. MYND/ANTON BRINK
Kolefnisspor af
umhverfisvænni
fernum Mjólkur-
samsölunnar
hefur minnkað
um 66%. Plast-
dósir hafa vikið
fyrir pappa og pró-
teinduft í heilsu-
vörur er nú unnið
úr ostamysu sem
áður fór til spillis.
10 KYNNINGARBLAÐ 7 . M A R S 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA
0
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
F
-A
2
8
8
2
2
7
F
-A
1
4
C
2
2
7
F
-A
0
1
0
2
2
7
F
-9
E
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K