Fréttablaðið - 07.03.2019, Page 53
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG Reykjavík – Hvert skyldi mega rekja upphaf spill-ingar í stjórnmálum og viðskiptum á Íslandi? – spillingar sem varla getur dulizt nokkrum manni
lengur og er nú fastur liður í helztu
heimildum um spillingu á heims-
vísu svo sem Gallup og Transparency
International.
Það er segin saga að spilling og van-
traust eru nánast eins og tvær hliðar
á sömu mynt. Gallup greindi nýlega
frá því að næstum fimm af hverjum
sex Íslendingum vantreysta Alþingi
og fjórir af hverjum fimm vantreysta
viðskiptabönkunum. Nærtæk skýr-
ing á megnu vantrausti í garð Alþingis
er spilling stjórnmálanna og margar
birtingarmyndir hennar. Spilling
grefur undan trausti.
Einkavæðingin? Kvótakerfið?
Menn leita mislangt aftur í tímann að
upphafinu.
Sumir kunna að telja ófögnuðinn
hafa byrjað með einkavæðingu
bankanna 1998-2003 sem var svo illa
og óheiðarlega ef ekki beinlínis glæp-
samlega útfærð að hún leiddi lóðbeint
til hruns fjármálakerfisins fáeinum
árum síðar með hörmulegum af leið-
ingum fyrir mikinn fjölda fólks innan
lands og utan. Alþingi samþykkti
en lét þó hjá líða að rannsaka hvort
lög voru brotin við einkavæðingu
bankanna.
Flestir hljóta samt að geta fallizt
á að einkavæðing bankanna var
ekki bara uppspretta nýrrar spill-
ingar heldur einnig af leiðing eldri
spillingar sem hafði brotizt upp á
yfirborðið 15-20 árum fyrr. Það var
þegar Alþingi ákvað gegn ítrekuðum
aðvörunum að af henda útvegs-
mönnum ókeypis aðgang að fiskinum
í sjónum sem hefur þó í bráðum 30
ár átt að heita sameign þjóðarinnar
skv. lögum. Alþingi hóf þá til f lugs
nýja stétt auðmanna sem hafa leikið á
þingið eins og falska fiðlu æ síðan.
Þetta ráðslag Alþingis hefur haft
alvarlegar af leiðingar. Innviðir sam-
félagsins – heilbrigðisþjónustan, vel-
ferðarkerfið o.f l. – hafa sumir veikzt,
sumir segja morknað, meðan hin nýja
stétt auðmanna hefur rakað saman
annarra fé í eigin þágu.
Höftin? Hermangið?
Enn aðrir telja ófögnuðinn hafa risið
löngu fyrr, sumir nefna höftin 1927-
1960, aðrir stríðið 1939-1945. Ísland
var eitt fátækasta land Vestur-Evrópu
þegar síðari heimsstyrjöldin brauzt
út og eitt ríkasta landið í stríðslok.
Svo var fyrir að þakka hernámi
Breta 1940 og Bandaríkjamanna
1941 og þeim uppgripum sem fylgdu
hernáminu. Bandaríkjamenn
ílentust hér eftir stríð í krafti Kef la-
víkursamningsins sem þeir gerðu við
íslenzk stjórnvöld 1946 til að leysa
af hólmi herverndarsamninginn frá
1941 eins og Valur Ingimundarson
prófessor lýsir vel í bók sinni Í eldlínu
Kalda stríðsins 1996. Herverndin
skilaði Íslendingum ekki bara
miklum tekjum heldur gagngerum
umskiptum í efnahagslífinu, nýrri
verkmenningu o.m.f l. Gjaldeyris-
tekjur af hernum námu 15%-20% af
heildargjaldeyristekjum þjóðarinnar
1953-1955. Séu öll árin sem herinn
var hér skoðuð í heild, 1940-2006,
lætur nærri að gjaldeyristekjurnar af
hernum hafi numið um 2% af lands-
framleiðslu á ári að jafnaði.
Hermangið leiddi af sér spillingu
og efnahagsbrot. Kristján Pétursson
löggæzlumaður lýsir því undir rós
í sjálfsævisögu sinni Margir vildu
hann feigan (1990) hvernig reynt
var að múta honum til að fella niður
rannsókn á olíumálinu sem lyktaði
m.a. með sektardómi Hæstaréttar yfir
einum helzta virðingarmanni lands-
ins. Kristján sagði mér í einkasamtali
að hann þakkaði Bjarna Benedikts-
syni, þá dómsmálaráðherra, síðar
forsætisráðherra, fyrir að hafa tryggt
sér og félögum sínum skjól til að ljúka
rannsókninni.
Þetta er ekki allt. Stjórnvöld kreistu
lánsfé á góðum kjörum auk beinna
styrkja út úr Bandaríkjastjórn og
öðrum bandamönnum í tengslum við
eða skiptum fyrir veru hersins hér
með lítt dulbúnum hótunum um að
snúa sér ella til Rússa eins og Valur
Ingimundarson rekur í bók sinni.
Þennan sama leik léku Færeyingar
gagnvart Dönum fram að hruni Fær-
eyja 1989 eins og Eðvarð T. Jónsson
lýsir í bók sinni Hlutskipti Færeyja
(1994).
Í þessu ljósi þarf að skoða áhuga
ríkisstjórnar Íslands eftir hrun á að
af la „nýrra vina“. Frændum okkar og
vinum á Norðurlöndum sem ásamt
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fjármögn-
uðu rústabjörgunina hér heima þegar
til kastanna kom brá í brún þegar
þeir stóðu frammi fyrir hótunum
stjórnvalda strax eftir hrun um að
leita ásjár hjá Rússum, og einnig Kín-
verjum eins og síðar kom í ljós. Seðla-
bankinn sendi menn til Moskvu til að
semja við Kremlverja. Bankinn á enn
eftir að gera grein fyrir þeirri för og
lyktum hennar líkt og ýmsu öðru.
Við getum farið enn lengra aftur í
tímann til að grafast fyrir um rætur
spillingarinnar. Bankahneyksli, sum
með stjórnmálaívafi, hafa gosið upp
annað veifið allar götur frá fyrstu
árum heimastjórnar. Spillingin er þó
ekki nema öðrum þræði afsprengi
einstakra atburða sögunnar heldur
vefur, spillingarvefur. Meira næst, frá
Panama.
Kaldir eldar
Gallup greindi nýlega frá því að
næstum fimm af hverjum sex
Íslendingum vantreysta Alþingi
og fjórir af hverjum fimm van-
treysta viðskiptabönkunum.
Nærtæk skýring á megnu van-
trausti í garð Alþingis er spill-
ing stjórnmálanna og margar
birtingarmyndir hennar. Spill-
ing grefur undan trausti.
Sparneytnari, hagkvæmari og hljóðlátari ISUZU D-MAX
Isuzu D-Max BASIC dísil, beinskiptur. Verð: 5.090.000 kr. (Verð án vsk: 4.100.483 kr.)
Isuzu D-Max PRO dísil, sjálfskiptur. Verð: 5.990.000 kr. (Verð án vsk: 4.830.645 kr.)
164 hestöfl – 3.500 kg dráttargeta. Eyðsla frá 7,0 l/100km* E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
8
2
5
I
s
u
z
u
D
-
M
a
x
a
lm
e
n
n
5
x
3
8
m
a
rs
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 7 . M A R S 2 0 1 9
0
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
F
-8
E
C
8
2
2
7
F
-8
D
8
C
2
2
7
F
-8
C
5
0
2
2
7
F
-8
B
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
7
2
s
_
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K