Morgunblaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2018 Sú afstaða hefur lengi verið við lýði að náttúran sé óumbreytanlegt fyrirbæri í þjón- ustu mannkyns. Hin upplýstari á meðal okk- ar hafa hins vegar gert sér grein fyrir því að þetta viðhorf mun leiða okkur í glötun. Um- hverfið er ekki lengur annars flokks áhyggjuefni; það er satt að segja grundvall- aratriði sem ætti að hafa að leiðarljósi í öll- um málum sem varða þróun til framtíðar. Það er mikilvægara en nokkru sinni fyrir litlar þjóðir eins og Sílebúa – sem oft verða fyrir mestum búsifjum út af tjóni við strand- lengjuna vegna loftslagsbreytinga – að vinna að því að vernda umhverfið og viðhalda um leið efnahagslegum uppgangi nú þegar vöxt- ur heldur áfram hjá iðnvæddum löndum á borð við Brasilíu og Kína halda áfram að vaxa og millistéttin heldur áfram að stækka og í kjölfarið á því að Bandaríkjamenn höfn- uðu Parísarsáttmálanum. Góðu fréttirnar eru að umhverfisvandinn er orðinn svo brýnn að hann hefur skerpt vitund okkar um stöðuna. Slæmu fréttirnar eru að við erum þegar orðin sein fyrir. Við erum síðasta kynslóð valdhafa sem geta tekið ákvarðanir í tæka tíð til að afstýra hörm- ungum á plánetunni allri. Þær ákvarðanir, sem við tökum í dag, gætu leitt okkur til framtíðar þar sem lofslagsmál verða í betri skorðum eða þær gætu grafið undan öryggi í mat, vatni og orku um ókomna áratugi. Til að átta sig á mikilvægi umhverfismála þarf hver sem nálgunin er óhjákvæmilega að spyrja spurninga um kostnað. Það þarf að taka frá talsvert fjármagn eigi að draga úr áhrifum, að ekki sé talað um að laga sig að breyttum aðstæðum og greiða fyrir um- skiptin frá úreltum framleiðsluháttum. Um leið og við sættum okkur við að hugmyndin um skammtímahagvöxt getur ekki verið okk- ar eina leiðarljós eru næstu spurningar: Hversu mikið eigum við að fjárfesta í þessu? Hvað miklu erum við tilbúin að fórna? Það er ekkert einfalt svar. Lykillinn hér er að skilja að í allri hagfræðilegri nálgun þarf að gera ráð fyrir hlutfallslega litlum kostnaði af að fara þessa leið þegar tekin eru með í reikninginn áhrif vaxandi magns koltvísýr- ings í andrúmsloftinu. Daglega koma fram nýjar rannsóknir sem veita vísbendingar um hvað aðgerðarleysi getur verið afdrifaríkt: þurrkar, skógareldar, ofsaveður og öfgakennd úrhelli sem hafa mikil áhrif á uppskeru, kvikfénað og innviði. Kostnaður aðgerðarleysis kemur líka fram í því að milljónir manna eru tilneyddar að fara á vergang og skyndilega er kominn þrýst- ingur á heilbrigðiskerfi að vera tilbúin að bregðast við brjótist út sjúkdómsfaraldrar. Samkvæmt Alþjóðabankanum valda nátt- úruhamfarir á ári hverju tjóni sem sam- svarar 250 milljarða dollara (30 billjóna króna) tapi í neyslu. Staðreyndin er sú að loftslagsbreytingar gætu orðið til þess að þeim sem búi við sára fátækt hafi fjölgað um 100 milljónir árið 2030. Eins og sérfræðingar hafa áður bent á erum við einfaldlega að ónýta þróunarstarf ef við komum ekki bönd- um á loftslagsbreytingar. Í Síle höfum við hafist handa við þetta verkefni, að minnsta kosti að hluta. Þökk sé ágengri orkustefnu, sem hrint var í fram- kvæmd 2014 á öðru kjörtímabili mínu á for- setastóli, höfum við þrefaldað þá endurnýj- anlegu orku, sem er á boðstólum í dreifikerfi okkar og lækkað verðið úr 130 dollurum (16.300 krónum) í 32 dollara (4.000 krónur) á kílóvattstund. Fyrir 2014 vorum við ekki aðeins háð innfluttri orku frá öðrum löndum, við vorum einnig komin upp á náð og miskunn langvarandi þurrka. Síðan höf- um við beislað orku sólar og vinds í eyði- mörkum okkar og meðfram strandlengj- unum og nýtt okkur gufuna djúpt ofan í eldfjöllunum með jarðhitaveitum. Við höfum tekið stærra hafsvæði undir verndarvæng ríkisins til að vernda sjávar- auðlindir okkar og vistkerfi strandlengj- unnar. Með því að vinna með einkageiranum hefur okkur einnig tekist að efla landvernd þannig að nú nær hún til svæðis á stærð við Sviss, sem opnar gríðarlega möguleika í þró- un sjálfbærrar ferðamennsku. Við erum einn- ig að fjárfesta í framtíðinni með fyrstu grænu sköttunum í álfunni og banni við plastpokum. Við höfum sýnt að framleiðnilíkön geta þróast. Líkt og fólk hefur uppgötvað á Ís- landi og í Kosta Ríka höfum við komist að því að það eru góð viðskipti að draga úr út- blæstri. Og við höfum sýnt að öll ríki, stór og smá, geta veitt forustu gagnlegum lausnum við umhverfisvandamálum. En ef við viljum breytingar um allan heim getum við ekki búist við að hvert land geri það sama og geri það upp á eigin spýtur. Við verðum að helga sameinaða krafta okk- ar vörn almannaheilla og finna jafnvægi á milli hagvaxtar, atvinnusköpunar og umhverfiskrafna. Ef við höldum áfram að gera allt eins og venjulega mun okkur mis- takast. Að halda þannig áfram væri leið til glötunar í ljósi sprengingar í fólksfjölgun, vaxandi eftirspurnar eftir orku og hættu- legra neysluvenja. Alþjóðlegt samstarf á borð við Parísarsamkomulagið og 2030 dag- skrána um sjálfbæra þróun veita fyrirmynd að því hvernig samnýta eigi krafta, styðja þá sem hafa setið eftir og leggja til aðrar leiðir. En við þurfum einnig að færast fram á við og gera áætlun – líkt og Bandaríkin gerðu þegar þau settu á fót Marshall-aðstoðina og buðu Evrópu efnahagsaðstoð eftir síðari heimsstyrjöld – til að hraða aðgerðum okkar og greiða fyrir fjárfestingum sem skipta máli og meðal annarra hluta draga úr þeim hætt- um sem fylgja kröfu hagkerfa okkar um framleiðni. Heimur ónýttra möguleika kemur til dæmis fram þegar við veltum fyrir okkur orkuskiptum. Verkefnið Drawdown, um- hverfisbandalag sem ekki er rekið í hagn- aðarskyni, hefur reiknað út að með því að auka framleiðslu vindorku á landi um 21,6% fyrir 2050 mætti draga úr losun CO2 um 8,4 gígatonn og spara 7,4 billjónir dollara (904 billjónir króna). Það er kominn tími til að meta virði þeirrar þróunar sem búast má við að leiði til varanlegrar samstöðu og frið- ar. Um það snýst þetta allt saman: að mannkyn lifi af og það verði gert með rétt- um hætti. ©2018 The New York Times og Michelle Bachelet Veiðimaður við yfirgefinn bát í hinu uppþorn- aða Poopó-vatni í Bólivíu. Íbúarnir eru farnir. Josh Haner/The New York Times Iðnaðarmenn einangra leiðslu í nýrri jarðvarmavirkjun í Síle. Þjóðin reiddi sig áður á innflutta orku, en hefur nú lagt áherslu á sjálfbæra orkugjafa. Meridith Kohut/The New York Times Það er lífsspursmál fyrir ríki heims að finna jafnvægi á milli hagvaxtar, atvinnusköpunar og sjálbærni í umhverfismálum. MICHELLE BACHELET var kjörin forseti Síle fyrst kvenna. Hún gegndi emb- ættinu frá 2006 til 2010 og aftur frá 2014 til 2018. Hún er yfir mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Með því að vinna með einkageiranum hefur okkur einnig tekist að efla land- vernd þannig að nú nær hún til svæðis á stærð við Sviss, sem opnar gríðarlega möguleika í þróun sjálfbærrar ferðamennsku. TÍMAMÓT: Í SKÝRSLU SÞ UM LOFTSLAGSMÁL ER DREGIN UPP DÖKK MYND AF ÁSTANDINU ÁRIÐ 2040 ’’ Hunsið loftslagsbreytingar á eigin ábyrgð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.