Morgunblaðið - 31.12.2018, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31. 12. 2018 29
Jólaævintýri Dickens er tímalaus klassík
um nirfilinn Ebeneser Scrooge, ríkan ein-
stæðing sem þolir ekki jólin. Á jólanótt vitja
hans alls kyns draugar sem eiga það sam-
merkt að ýta við karlinum og láta hann sjá
fegurðina í jólunum. Líkt og draugarnir hans
Skröggs hafa hinir ýmsu fortíðardraugar tek-
ið hús á heimsbyggðinni á árinu sem er að
líða. Fortíðardraugar þjóðernispopúlisma
sem kynda undir úlfúð og grafa undan lýð-
ræðisstoðum landa sinna eru víða. Vitjanir af
þessu tagi hafa einnig birst okkur hér heima.
Allir þessir draugar hafa sammerkt að þrá
„gömlu góðu“ tímana, hið fullkomna svart-
hvíta líf, þar sem pólitískur rétttrúnaður var
ekki einu sinni hugmynd. Skilaboðin er lituð
af einangrunarhyggju, landamæramúrum og
tortryggni gagnvart alþjóðasamstarfi og
auknum kröfum um gegnsæi og jafnrétti. Að
almannahagsmunir víki fyrir sérhagsmunum
er ekkert tiltökumál.
Óvissutímar kalla á nýja hugsun og
afstöðu
Eftir seinni heimsstyrjöld brugðust vestræn-
ar þjóðir við breyttri heimsmynd. Með áður
óþekktum hætti mynduðust bandalög um við-
skipta- og efnahagssamvinnu og sameig-
inlegar hervarnir. Þetta var tími ótta og jafn-
vægis. Eftir fall Berlínarmúrsins tók við tími
óttaleysis og nýrrar vonar með alþjóðavæð-
ingu í viðskiptum. Nú, þremur áratugum síð-
ar, hriktir í stoðum þess alþjóðakerfis sem
hefur verið umgjörð samvinnu vestrænna
þjóða í svo langan tíma. Framtíðin er alltaf
óráðin. En engum getur dulist að framundan
eru meiri óvissutímar í samskiptum þjóða en
flestir núlifandi Íslendingar hafa þekkt. Allar
þjóðir eru með einhverjum hætti öðrum háð-
ar. Jafnvel eyþjóð nyrst í Atlantshafinu er
ekki eyland í þeim skilningi.
Það er ekki óeðlilegt að dægurmál í nær-
umhverfinu taki hug okkar og mestan tíma.
En við megum þó ekki vera svo upptekin við
þau efni að hitt gleymist hvernig við komum
ár okkar fyrir borð í samfélagi þjóðanna. Sú
ákvörðun mun hafa langmest áhrif á full-
veldið, lífskjör almennings og nýsköpun ís-
lenskrar menningar, tækni og vísinda.
Hvað hefur breyst?
Það er einkum þrennt sem breytt hefur ótta-
leysinu eftir kalda stríðið í óvissa tíma.
Í fyrsta lagi er það neikvæð afstaða forseta
Bandaríkjanna til þess alþjóðakerfis sem þau
höfðu forystu um að mynda og Ísland hefur
verið virkur þátttakandi í bæði á sviði varn-
armála og efnahagssamvinnu. Svo vægt sé til
orða tekið hefur forseti Bandaríkjanna sáð
efasemdum um forystuhlutverk þeirra í sam-
tökum vestrænna lýðræðisþjóðanna en einnig
innan eigin raða. Vilji þau ekki vera kjölfest-
an í því samstarfi þarf að styrkja hana með
öðrum hætti. Ella er hætta á að illa fari.
Í öðru lagi hefur þjóðernisleg einangr-
unarhyggja eflst í Bandaríkjunum og víða í
Evrópu. Bandaríkin sem áður sáu hag í því að
stuðla að sameiningu Evrópu sjá nú tækifæri
í að sundra henni. Breska þjóðin ákvað að
rjúfa hin nánu efnahagslegu tengsl við önnur
Evrópuríki til þess að losna undan málamiðl-
unum við smærri ríki álfunnar. Efnahags-
legum og viðskiptalegum hagsmunum smá-
þjóða stendur ógn af þessari þróun. Það er
veruleikinn sem blasir við.
Í þriðja lagi er það áhyggjuefni að innan
nokkurra ríkja Atlantshafsbandalagsins og
Evrópusambandsins hefur þeim stjórn-
málaöflum vaxið fiskur um hrygg sem mark-
visst grafa undan meginstoðum lýðræðissam-
félagsins eins og dómstólum og fjölmiðlum.
Jafn réttur karla og kvenna, réttindi hinsegin
fólks, flóttafólks og annara minnihlutahópa er
dreginn í efa og fræjum tortryggni og upp-
lausnar sáð. Þetta eru kunnugleg stef.
Á slíkum óvissutímum þurfa þjóðir að taka
afstöðu. Hvaða hagsmuni og hvaða gildi þarf
að verja? Og með hverjum viljum við vinna að
því? Hagsmunum smáþjóða er betur borgið í
fjölþjóðasamvinnu en með tvíhliða samn-
ingum. Þess vegna þurfum við að meta í nýju
ljósi hvernig áfram verði unnið að hagsæld
þjóðarinnar og með hvaða þjóðum við viljum
skipa okkur í sveit. Viljum við fylgja Bretum
út af innri markaði Evrópusambandsins eða
standa með öðrum Norðurlöndum innan Evr-
ópusamvinnunnar?
Sjálfstæðisflokkurinn var áður kjölfesta og
forystuafl fyrir pólitískri og efnahagslegri
samvinnu við aðrar þjóðir. Nú er hann klofinn
í tvær fylkingar þar sem takast á þjóðernisleg
einangrunarhyggja og frjálslynd viðhorf um
alþjóðasamstarf.
VG og forverar þess stóðu áður gegn
hverju skrefi sem stigið var í þessum efnum.
Nú hefur flokkurinn gert sátt um að taka
stjórnskipulega ábyrgð á fortíðinni gegn því
að ræða ekki þær nýju áskoranir sem Íslands
stendur andspænis í framtíðinni. Það er
vissulega framför, áhugaverð fyrir sagnfræð-
inga, en ekki það sem komandi kynslóðir eru
að kalla eftir.
Þetta bandalag er í hnotskurn stærsti póli-
tíski vandinn á Íslandi um þessar mundir.
Bandalag kyrrstöðu sem ýtir jafnframt undir
óvissu um alþjóðlegar skuldbindingar okkar.
Þrátt fyrir að alþjóðasamstarf hafi aukið rétt-
læti og jafnað aðstöðumun í samfélaginu – og
mun gera það enn frekar með nýjum gjald-
miðli.
Fortíð eða framtíð?
Árið sem nú líður hjá var að mörgu leyti ár
andstæðna. Ár öfganna. Ár framfara á sama
tíma og víða er vegið að grunnstoðum lýðræð-
is og mannréttinda. Árið þar sem hin pólitíska
víglína hér heima breyttist; úr vinstri-hægri
yfir í frjálslyndi-íhaldssemi. Lína sem alltaf
er að skýrast betur og betur. Árið þar sem
aldrei hefur verið jafn kalt yfir sumartímann,
en tveggja stafa hitatölur mælst í desember.
Árið þar sem Liverpool er á toppi úrvalsdeild-
arinnar á jóladag og Keith Richards hætti að
drekka. Ár þar sem ýmsir vilja smætta
vandamálin í „við“ og „þið“ og gjáin heldur
áfram að stækka. Ár þar sem skotgrafirnar
verða dýpri og ógnin verður háværari.
En gleymum ekki ljósinu í samfélaginu
okkar. Samhygðinni og mennskunni. Við
megum ekki hætta að berjast fyrir hug-
sjónum okkar, og sitja þegjandi hjá. Við verð-
um að þora að tala um það sem er bannað,
taka afstöðu og tala fyrir málefnalegri um-
ræðu. Við þurfum því að kalla helstu fræði-
menn okkar að borðinu til að meta stöðu
landsins í þessari breyttu heimsmynd sem
blasir við. Um leið þurfum við að auka um-
ræðu um þetta mikilvægasta viðfangsefni
stjórnmálanna. Mynda nýja kjölfestu um
framtíðarhagsmuni Íslands í fjölþjóðlegri
samvinnu. Og reyna hvað við getum að kveða
niður þá fortíðardrauga sem standa í vegi fyr-
ir því að takast á við breytta veröld. Við
sjáum ekki allt fyrir. En við megum ekki
fresta því að takast á við framtíðina.
Við börðumst ekki fyrir frelsi þjóðarinnar
stjórnmálamannanna vegna. Fullveldið not-
um við best ef við getum gefið öllum þeim sem
vettlingi geta valdið frelsi, ekki aðeins innan
landsteinanna heldur einnig utan þeirra, til að
láta frumkvæði og sköpunargleði njóta sín í
hvívetna í þágu samfélagsins.
Lærum af fortíðinni, virðum fegurðina í
fjölbreytileika nútímans og fögnum því sem
framtíðin ber í skauti sér. Þá – rétt eins og
Skröggur karlinn – getum við sem upplýst
samfélag náð sátt um það hvert við viljum
stefna í framtíðinni.
Landsmönnum öllum óska ég gleðilegrar
hátíðar og farsæls komandi árs.
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Mikilvægasta viðfangsefni
stjórnmálanna
Við megum ekki hætta að berjast fyr-
ir hugsjónum okkar, og sitja þegj-
andi hjá. Við verðum að þora að tala
um það sem er bannað, taka afstöðu og tala
fyrir málefnalegri umræðu.
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR, FORMAÐUR VIÐREISNAR
’’