Morgunblaðið - 31.12.2018, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31. 12. 2018 57
Fyrsta verslun Ikea var opnuð í Hyderabad á Indlandi og var
brugðið frá hefðbundinni stefnu með því að lækka verð og
breyta vöruúrvali – meira að segja matseðlinum í kaffihúsi
verslunarinnar – til þess að falla indverskum neytendum í
geð. Í bígerð er hjá stærsta húsgagnasala heims að opna
þrjár verslanir til viðbótar á næstu tveimur árum til að ná til
ört vaxandi millistéttar í landinu.
NYT
Fyrsta verslun
Ikea á Indlandi
Fyrsta konan bættist í raðir orrustuflugmanna í Japan í ágúst
og rauf þar með kynjamúrinn í landi þar sem karlar ráða lög-
um og lofum á vinnumarkaði. Misa Matsumi er 26 ára gamall
liðþjálfi og sagðist hún hafa fengið innblástur frá bandarísku
kvikmyndinni „Top Gun“. Hún gekk í japanska varnarliðið ár-
ið 2014. Þar var byrjað að taka við kvenkyns umsækjendum
árið 1993, en konur máttu ekki sækja um að verða orrustu-
flugmenn fyrr en 2015. Ákvörðunin um að aflétta banninu við
að konur mættu vera orrustuflugmenn var hluti af átaki um
að fjölga konum á vinnumarkaði í Japan.
Jiji Press
Fyrsta konan í röðum
orrustuflugmanna í Japan
Metverð fékkst fyrir verk eftir lifandi
bandarískan blökkumann þegar
myndin „Fyrri tímar“ („Past Times“) var
seld á uppboði hjá Sotheby’s fyrir 21,1
milljón dollara (2,6 milljarða króna).
Myndin er frá 1997 og sýnir svart fólk
að spóka sig. Tónlistarstjarnan Sean
„Diddy“ Combs keypti verkið. Seljandi
var hafnar- og ráðstefnustjórn Chi-
cago-borgar, sem keypti verkið á 25
þúsund dollara (rúmar þrjár milljónir
króna).
Sotheby’s
Metverð fyrir
málverk eftir
bandarískan
blökkumann
GIUSEPPE CACACE
Fyrsta tískuvikan í Sádi-Arabíu
Tískuvika var haldin í fyrsta sinn í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, í apríl. Sjá mátti að viðburð-
urinn var haldinn í konungsríki þar sem íhaldssemi ræður för. Þrátt fyrir að áhorfendur væru
aðeins konur ríkti samfélagsmiðlabann þannig að myndum af konum, sem ekki voru klædd-
ar abaja eða gólfsíðum yfirklæðum, yrði ekki lekið. Skipuleggjendur sögðu hins vegar að um
tímamótaviðburð hefði verið að ræða í landi þar sem enn er ætlast til þess að konur lúti karl-
kyns gæslumönnum sínum.
Chris Wattie
Marijúana leyft í Kanada
Neysla marijúana í afþreyingarskyni var lögleidd í Kanada, sem varð fyrsta stóra hagkerfið til
að stíga þetta skref. Kanada er annað landið til að lögleiða marijúana. Áður hafði það verið
gert í Úrúgvæ. Frá og með miðjum október gátu þeir sem eru yfir 18 ára aldri keypt og notað
þurrkuð marijúanalauf og -olíur. Búist er við að lögleiðingin muni skila milljörðum dollara í
tekjur þegar hún verður komin til fullrar framkvæmdar.
Safn í París opnað
fyrir strípalinga
Forráðamenn safnsins Palais de Tokyo í París ákváðu
að láta sér ekki nægja að vera með nektarmyndir í sal-
arkynnum sínum og opnuðu dyr þess fyrir strípal-
ingum í fyrsta skipti. Nútímalistasafnið bauð sam-
tökum náttúrusinna í París upp á skoðunarferð um
safnið, en aðeins í þetta eina skipti. Í París er einnig
fyrsti veitingastaðurinn fyrir þá sem vilja láta Adams-
og Evuklæðin duga, O’Naturel. Hann var opnaður
seint á árinu 2017. Þar er einnig að finna svæði í al-
menningsgarði fyrir þá sem vilja vera naktir.
Fyrsta „pulsuhundasafn“
sögunnar
Tveir fyrrverandi blómaskreytingamenn opnuðu fyrsta
safnið sem helgað er „pulsuhundum“. Dackel-safnið
er í Bæjaralandi í Þýskalandi. Þar má finna hundafrí-
merki, brauð í laginu eins og hundar, postulínsstyttur,
plaköt og aðra muni helgaða greifingjahundinum, sem
er ein elsta ræktaða hundategundin í Þýskalandi.
Vél til að hreinsa
plast úr sjó
Fyrsta vélin til að hreinsa plastrusl úr sjó var sett í
gagnið í september. Var haldið í áttina að svæði í
Kyrrahafinu á milli Havaí og Kaliforníu þar sem einna
mest hefur safnast saman af plastúrgangi. Vélin er
hugarfóstur manns sem flosnaði upp úr háskóla. Hug-
myndina fékk hann á táningsaldri. Sumir sérfræðingar
hafa áhyggjur af því að vélin muni gera meiri skaða en
gagn og betra væri að einbeita sér að því að koma í
veg fyrir að plast fari í hafið.
Franska þingið bannar
snjalltæki í skólum
Franska þingið setti lög um að banna snjallsíma í skól-
um og tóku þau gildi í september. Nemendur á aldr-
inum þriggja til fimmtán ára verða að skilja snjallsíma,
spjaldtölvur og önnur stafræn tæki eftir heima eða
slökkva á þeim á skólalóðinni. Undantekningar eru
gerðar fyrir fatlaða og óhefðbundið skólastarf. Sumir
þingmenn hæddust að nýju lögunum og bentu á að
þegar væri bannað að nota snjallsíma í kennslustof-
unni á meðan kennsla færi fram.
Fyrsta verksmiðjan til að
vinna orku úr rusli í Afríku
Fyrsta verksmiðjan til að vinna orku úr sorpi var gang-
sett í Eþíópíu. Mulatu Teshome, forseti landsins, var
meðal fyrirmenna við opnun verksmiðjunnar sem kost-
aði 120 milljónir dollara (15 milljarða króna) og nefnist
Reppie. Verksmiðjan var reist á landfyllingu í útjaðri
Addis Ababa. Gert er ráð fyrir að hún taki við 80% af
sorpi sem verður til í höfuðborginni og sjái borg-
arbúum fyrir 30% af orkuþörf þeirra.
©2018 The New York Times og Tricia Tisak