Morgunblaðið - 31.12.2018, Side 62

Morgunblaðið - 31.12.2018, Side 62
62 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2018 Almennt er ég á því að fyrir hvern hlut sem við glötum hlotnist okkur eitthvað annað. Í neðan- jarðarlestinni í New York-borg í gær taldi ég 30 manns í vagninum og allir nema einn störðu á snjalltækið sitt. Sumir voru einnig með heyrn- artólin í eyrunum. Skyndilega sá ég þessa senu eins og ég væri að horfa á hana úr fram- tíðinni; græjurnar sem fólkið var með í hönd- um voru gamaldags og klunnalegar, eins og allir væru með súrefnistank. Ég er viss um að dag einn verða þessi tæki grædd í fólk með skurðaðgerð. Það er bara spurning um tíma. Ég játa að ég er fíkill líkt og milljónir annarra manna. Mér finnst ég nakinn án snjalltækis- ins. Ég fyllist örvæntingu þegar ég man ekki hvar ég lagði það frá mér. Ég játa: mér finnst gott að vera með framlengingu á heilanum þegar ég man ekki einhverja staðreynd. Mundi ég vilja að tækið yrði grætt í mig? Ég held ekki. Það sem við höfum bætt við í aðgengi að upplýsingum hefur glatast þegar kemur að tíma okkar. Hverjum einasta tölvupósti, hverjum skilaboðum, hverju símtali fylgja væntingar um tafarlaus viðbrögð. Félagsvefir og fréttaflutn- ingur allan sólarhringinn krefjast stöðugrar athygli. Eina leið hef ég fundið til að endurheimta dálítinn tíma og hún er að hægja einfaldlega á hlutunum með íhugun. Taka nokkur augnablik út af fyrir mig. Kippa úr sambandi við býflugnabúið. ©2018 The New York Times og Richard McGuire. Anja Jahn Richard McGuire Richard McGuire er bandarískur listamaður, tónlistarmaður og rithöfundur. Nýútkomin bók hans heitir Richard McGuire Art for the Street 1978-82. Hann skrældi alltaf eplið hægt, yfirvegað, gerði hlé til að stilla hljóðið í útvarpinu þar sem við sátum við eldhúsborðið. „Þetta eru fréttir klukkan sex …“ sagði þulurinn að venju og afi brosti. Amma, sem var fyrir aftan okkur upptekin yfir pottunum, settist ávallt hjá okkur og hellti sér í glas úr Johnny Walker-viskí- flösku, sem innihélt aðeins vatn þar sem áfengisbanni hafði verið lýst yfir í Pakistan mörgum árum áður. Síðan hófust nánast alltaf sögur þar sem afi lýsti sætu mangóunum, sem hann hnuplaði af trjám nágrannans. Amma sagði frá and- spyrnuhreyfingunni, sem hún gekk í áður en Indlandsskaga var skipt 1947. Tvö barnabörn sátu hugfangin og bitu hvort í sína eplasneið- ina. Þessi síðdegi við eldhúsborðið og sögurnar sem okkur voru sagðar mótuðu hvernig við sáum heiminn. Við höfðum munað tímans og löngun til að deila honum með öðrum. Nú eru dætur mínar með græjur og hafa svo mikið að gera að meira kemst ekki fyrir á dagatalinu. Það er enginn tími fyrir niðurskorin epli eða sög- ur. Það er mjög lítill tími til að vera barn. ©2018 The New York Times og Sharmeen Obaid-Chinoy Bina Khan Sharmeen Obaid-Chinoy Sharmeen Obaid-Chinoy er pakistanskur blaðamaður, kvikmyndagerðar- maður og aðgerðasinni. Hún hefur unnið tvenn Óskarsverðlaun og þrenn Emmy-verðlaun. Á næstu þremur áratugum munu náttúru- greind og gervigreind verða eitt; við munu lifa um ófyrirséðan tíma og verða billjón sinnum greindari. Á þessum tímum hröð- unar í þróun tækninnar eru fátækt, sjúkdóm- ar, skortur á nauðsynjum, ólæsi og ofbeldi á undanhaldi. Á undanförnum tuttugu árum hefur fátækt í heiminum minnkað um rúman helming. Á undanförnum 200 árum hafa lífs- líkur okkar tvöfaldast. Þetta eru aðeins tvö dæmi um undraverðar framfarir sem við höf- um náð fram eftir því sem fram heldur í nú- tímanum og sambærilegar framfarir hafa náðst í að auka menntun, tryggja hreinlæti og koma á lýðræði um allan heim. Grundvöllur þessarar þróunar er jöfn og stöðug tvöföldun á hlutfalli verðs og afkasta annars vegar og bolmagni hins vegar í upp- lýsingatækni – tækni sem er þúsund sinnum öflugri nú en fyrir nokkrum árum og verður milljón sinnum öflugri eftir 20 ár. Um leið og læknavísindi, landbúnaður, orka og fram- leiðsla verða birtingarmyndir upplýs- ingatækni munum við sjá róttækar breyt- ingar á öllum sviðum lífs okkar, þar á meðal í heilsu, mat, fatnaði, húsnæði og vinnu. Framtíðin er betri en þú heldur. Þannig að frekar en að horfa til þess sem samfélagið gæti hafa orðið viðskila við hlakka ég til framtíðar þar sem tegund okkar rýfur af sér viðjar erfðafræðilegar arfleifðar okkar og nær meiri hæðum í greind, efnislegum fram- förum og langlífi en við getum ímyndað okk- ur. © 2018 The New York Times og Ray Kurzweil Weinberg-Clark Photography Ray Kurzweil Ray Kurzweil er bandarískur rithöf- undur, tölvunarfræðingur, uppfinn- ingamaður og framtíðarfrömuður. Þegar ég gekk í Brooklyn College snemma á áttunda áratugnum voru engin skólagjöld. Þar sem ég bjó heima hjá mér voru einu útgjöld mín bækur, hádegis- matur og strætómiðar í og úr skóla. Ég notaði tímann til að leggjast yfir listir og bókmenntir og hafði á tilfinningunni að ég væri að leggja í ævilanga för sem skipti öllu máli. Ólíkt matsölustöðunum þar sem ég borðaði hádegismat á hverjum degi rétti háskólinn mér ekki reikning eftir tíma eða þegar ég hafði setið við klukkustundum saman á bókasafninu. Á vetrarkvöldum leið mér eins og birtan, sem barst út um glugga skólastofanna, hefði orðið til vegna heilastarfseminnar, sem fram fór þar innan dyra. Orkan kom hins vegar frá sama stað og sú sem fór í ljósastaurana sem lýstu mér leiðina heim, úr vösum skattborgaranna í þágu íbúa Brooklyn. Á undanförnum árum hef ég átt þess kost að kenna við einkaháskóla í Banda- ríkjunum og ríkisrekna háskóla í Evrópu. Nemendurnir, sem ekki þurfa að borga, nálgast vinnu sína með yfirvegun, sem ekki eru möguleg þegar skólagjaldamæl- irinn tifar í bakgrunninum. Í hagkerfi þar sem hugmyndin um að þurfa „starf“ til að vera verðugur tryggðra grunntekna er dregin í efa er augljóst að þeim borgurum, sem hafa áhuga, ætti að nýju að standa til boða að læra og kenna í háskólum án skólagjalda sem ríkið styð- ur. ©2018 The New York Times og Ben Katchor handout Ben Katchor Ben Katchor er bandarískur teiknari og þekktastur fyrir teiknimyndasög- urnar um Julius Knipl fasteigna- ljósmyndara sem hafa hlotið lof gagnrýnenda. Við erum að miklu leyti hætt að leggja vísvitandi rækt við lýðræðislega þekkingu – þá þekkingu, hæfileika og getu sem fólk á opinberum vettvangi þarf að hafa til að bera til að viðhalda heilbrigðu lýðræði. Samkvæmt bandarísku námsstofnuninni höfðu þeir sem útskrifuðust úr menntaskóla í Bandaríkjunum tekið þrjú ólík námskeið um lýð- ræði, samfélag og stjórnsýslu og samfélagsfræði voru samofin námsefni fyrstu tólf ár skólagöngunnar. Nú er nám um samfélagið aðeins einnar annar námskeið í stjórnsýslu eða samfélagsfræðum í þeim 40 ríkjum þar sem slík krafa er fyrir hendi. Afleiðingarnar af því að draga úr fjárfestingu í menntun í samfélagsmálum virðist skýr. Samkvæmt stjórnmálafræðingunum Roberto Foa og Yascha Mounk telja aðeins um 30% aldamótakynslóðarinnar „grundvallaratriði“ að búa við lýðræði, en 72% þeirra, sem fæddust fyrir seinni heimsstyrjöld, líta svo á. Við ættum að snúa þessu við og getum gert það. Í júní vor sett ný viðmið í námsskrá Massachusetts þar sem ég á heima. Kynnt var til sögunnar ársnámskeið í samfélagsmálum fyrir áttunda bekk og áherslan var aukin á samfélagsfræði á öðrum sviðum námsefnisins. Við getum endurreist fræðslu um samfélagið ríki fyrir ríki. Vitaskuld myndi menntun í samfélagsmálum án úrbóta á því hvernig pólitískar stofnanir eru reknar ekki leysa vandann, en án borgara sem vita hvernig á að reka lýðræðislegar stofnanir og hvers vegna við gætum viljað hafa þær munum við ekki geta bjargað lýð- ræðinu. ©2018 The New York Times og Danielle Allen Handout Danielle Allen Danielle Allen er fornfræðingur og stjórnmálafræðingur. Hún er prófessor við Harvard-háskóla og höfundur Cuz: The Life and Times of Michael A. STÓRA SPURNINGIN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.