Morgunblaðið - 31.12.2018, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31. 12. 2018 67
„Facebook“ (2017-18)/George Condo/olíustifti á lín/80 tommur sinnum 225 tommur (þrískipt mynd)/©2018 George Condo
„Facebook“ (2017-18)
Undanfarin ár hafa verk mín verið sýnd um allan heim, í París,
Aþenu, Hong Kong, Danmörku og Washington, D.C. Á ferðum mín-
um var ég í viðtölum spurður um álit mitt á bandarískum stjórn-
málum. Allir vildu fá að vita hvað vandamálið væri: Hafa Bandaríkin
gefið sig falsfréttum á hönd – er það falska orðið raunverulegt?
1988 skrifaði ég stutta ritgerð um listrænar kenningar mínar. Þar
talaði ég um nokkuð sem ég kallaði „gerviraunsæi“, listrænan stíl
sem ég notaði í mínum eigin málverkum og skilgreindi að hluta sem
„birtingu raunveruleikans með því að tefla því sem er gervi fram“.
Á þeim 30 árum sem síðan eru liðin hefur gerviraunsæi færst af
sviði listarinnar og tekið yfir alþjóðleg stjórnmál og sprengt kjarn-
orkusprengju í veldi sannleikans. Árið 2018 var sannleikurinn
sprengdur í tætlur.
Félagsmiðlum er einkum að kenna um uppgang stjórnmála-
gerviraunsæis. Ég gerði þetta málverk, „Facebook“, til að særa út
lygarnar sem ég held að séu inngrónar í menningu vina sem vilja
gerast vinir þínir á félagsmiðlum en eru ekki vinir þínir – samsafn
botta, trölla og framandi upplýsinga. Skilaboð stjórnmála í dag
eru ótti og því miður virkar óttinn. En við getum tekið stjórnina aft-
ur; við getum einfaldlega hætt að vera hrædd. Listin hefur komið
fram sem ein hinsta sanna reynslan okkar. Listamenn þurfa að
beina penslum sínum að stjórnvöldum og segja: „HÆTTIÐ AÐ
LJÚGA AÐ OKKUR!“
George Condo
George Condo er bandarískur sjón-
listamaður. Í afstraktmyndum sínum
og súrrealískum mannamyndum,
einkum af skálduðum persónum,
leitar hann í ýmsar heimildir og stíl-
brögð. Verk hans er að finna í eigna-
söfnum Museum of Modern Art og
Metropolitan Museum of Art í New
York, og Tate Modern í London,
meðal annarra stofnana.
Með leyfi George Condo, Skarstedt, New York, og Sprüth Magers, Berlín, London, Los Angeles
Með nýju Opn heyrnartækjunum verður auðveldara að taka þátt í samræðum í fjölmenni og
hljóðupplifun verður eðlilegri en nokkurn tímann fyrr. Opn heyrnartækin skanna hljóðumhverfið
100 sinnum á sekúndu til að aðgreina talmál frá hávaða og koma jafnvægi á hljóð í kringum þig.
Þannig getur þú staðsett, fylgt eftir og einbeitt þér að þeim hljóðum sem þú vilt heyra.
Prófaðu nýju Opn heyrnartækin í 7 daga
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Hefðbundin heyrnartæki Nýju Opn heyrnartækin
Tímapantanir í síma 568 6880
www.heyrnartaekni.is