Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Side 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Side 6
ERLENT 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2018 Joshua Becker, stofnandi vefsíðunnar becomingminimalist.com, er einn þeirra sem hafa vakið athygli á þessari miklu neyslu um jólin. Hann bendir á í pistli á foxnews.com að snemma á nítjándu öld hafi ríkar fjölskyldur haldið upp á jólin með því að gefa mat og drykk til þeirra sem hafi þarfnast þess. Þetta hafi síðan breyst upp úr miðri nítjándu öld og árið 1890 hafi börn verið farin að afhenda búðarjólasveinum óskalista sína. Hann vill að við spólum aðeins til baka og bendir á að gott sé að eyða meira í þá sem þurfi á því að halda og minna í þá sem eigi of mikið. Í anda mínimalismans mælir hann með því að gefa heldur minna en leggja áherslu á meiri gæði og hann bendir fólki líka á að gefa eitthvað sem hægt er að borða eða upplifa; þannig hlað- ist ekki óþarfa hlutir upp hjá fólki sem nú þegar eigi of mikið. Sannur jólaandi sé falinn í því að leggja áherslu á það sem í raun skipti mestu máli og hvetur hann fólk til að horfa inn á við. Jólin eru ekki bara hátíðbarnanna heldur eru þau ekki síður hátíð kaupmanna. Búist er við því að meðal-Bandaríkja- maðurinn eyði 1.250 bandaríkjadöl- um, 157.000 kr., í gjafir, ferðalög og skemmtun í kringum jólahátíð- ina í ár. Þetta er 5% meira en í fyrra að því er fram kemur í grein cbsnews.com en þar eru tölur frá ráðgjafarfyrirtækinu PwC hafðar til hliðsjónar. Þeir sem eyða mest eru karlmenn, hátekjufólk af alda- mótakynslóð og meðlimir í Amazon Prime. Neytendur leggja áherslu á góð tilboð og stresslausa verslun, samkvæmt rannsókn PwC. Þeir vilja ekki eyða miklum tíma í að kaupa jólagjafir og vilja alls ekki þurfa að fara í margar búðir. Þrátt fyrir að verslun sé að fær- ast mikið á netið sögðust níu af tíu ætla að fara í búðir að versla fyrir jólin. Ljóst er að mikið er verslað í kringum svartan föstudag og tilboð honum tengd og hefur sala á net- inu farið vaxandi. Samkvæmt forbes.com var vöxturinn 23,6% milli ára. Í grein á cnbc.com kemur fram að samtök smásala í Bandaríkj- unum búist við því að meðalneyt- andinn eyði rúmlega þúsund döl- um, 126.000 kr., í allt frá gjöfum, jólafötum og jólamat í ár, sem sé 4,1% aukning frá í fyrra. Önnur spá, frá NerdWallet, spáir um 18% aukningu á því sem fólk eyði í jóla- gjafir í ár og að meðaltalið verði 776 dalir, 97.000 kr. Þetta eru nið- urstöður könnunar sem gerð er ár- lega fyrir NerdWallet. Það sem er kannski verra er að könnunin leiddi í ljós að næstum þrír af hverjum tíu voru enn að borga skuldir vegna jólagjafakaupanna í fyrra. Meira en helmingur eyðir meira en hann ætlaði sér fyrir jól- in eða hefur enga fjárhagsáætlun til hliðsjónar við jólagjafakaupin. Skuldin eftir jólavertíðina er að meðaltali 130.000 kr. Samkvæmt yougov.com er talan yfir þá sem skulda enn fyrir jóla- gjöfunum í fyrra um 15% en sú tala er 19% eða nærri einn af hverjum fimm hjá aldamótakyn- slóðinni. Bandaríkjamenn bjartsýnir Síðasta jólavertíð var sú besta fyr- ir smásala í meira en áratug og stefnir í að þessi verði enn betri. 37% Bandaríkjamanna segja að fjármál þeirra séu í betra horfi en fyrir ári en 17% segjast standa verr, samkvæmt könnun sem The New York Times lét gera fyrir sig. Þessi bjartsýni Bandaríkja- manna virðist tengjast því að at- vinnuleysi hefur ekki verið minna í næstum hálfa öld. Neytendur eru vissulega bjartsýnni á framtíðina en áður. 41% býst við að verða á betri stað eftir ár en 14% búast við að hafa það verra. Meirihluti þátt- takenda í könnuninni býst við því að bjartir tímar séu fram undan í efnahagslífinu næstu fimm ár. Þessi bjartsýni og traust á efna- hagslífinu leiðir til þess að neyt- endur eyða meira, sagði Diane Swonk, hagfræðingur hjá bók- haldsfyrirtækinu Grant Thornton, í samtali við The New York Times. Hún segir að eyðsla sé meira í neyslu á borð við kostnað við að fara út að borða, ferðalög og fatn- að. „Fólk klæðir sig upp og fer út. Það á meiri pening til að eyða í svona hluti og ferðast meira.“ Milljarðar í óþarfa gjafir Þrátt fyrir að eyðslan verði meiri í ár er spurning hvort gjafirnar hitti betur í mark en áður. Meira en helmingur Bandaríkjamanna fær gjafir sem hann hefur ekki áhuga á og samkvæmt finder.com fara því 13 milljarðar bandaríkjadala, rúmlega 1.600 milljarðar króna, í óþarfa gjafir á ári hverju. Af þeim geymir fólk samt sem áður tæp- lega þriðjung, það gefur 22% ein- hverjum öðrum, 14% er skilað eða skipt, fólk selur 10% þeirra og 6% fara beint í ruslið. Það er því eins gott að hugsa sig vel um við jólagjafainn- kaupin. Hátíð kaupmanna Hver Bandaríkjamaður eyðir um hundrað þúsund krónum í jólagjafir og eru margir enn í skuld vegna gjafakaupa fyrir jólin í fyrra. Sumar gjafir fara beint í ruslið. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Joshua Becker Leitin að hinum sanna jólaanda AFP Stund milli stríða hjá jólasveini sem vinnur við að hlýða á óskir barna í verslunarmiðstöð í Kaliforníu. JEMEN Ríkisstjórn Jemen og uppreisnarmenn hafa komist að samkomulagi um vopnahlé í hafnarborginni Hodeida. Í Jemen ríkir hungursneyð og er borgin mjög mikilvæg í því að koma mat til fólksins í landinu. Viðræður fóru fram í Svíþjóð undir stjórn Sameinuðu þjóðanna. Vonast er til þess að vopnahléið leiði til varanlegs friðar í landinu. ÍRAN Baráttumaður fyrir mannréttindum í Íran, sem fangelsaður var fyrir skilaboð sín á samfélagsmiðlum, er látinn eftir 60 daga hungurverkfall. Vahid Sayadi Nasiri hafði m.a. verið ásakaður um að hafa móðgað erkiklerkinn Ali Khamenei. Hann fór í hungurverkfall m.a. til að mótmæla slæm- um aðbúnaði og skorti á lögfræðiaðstoð. BRETLAND Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, fór í vikulok til Brussel til þess að ræða lagaleg mál varðandi Brexit á ráðstefnu leiðtoga í Evrópusambandinu. May hafði betur í atkvæðagreiðslu um vantraust á hana á miðvikudag en staða hennar er löskuð eftir þetta. Hún ætlar ekki að leiða Íhaldsfl okkinn í kosningunum 2022. BANDARÍKIN Apple hefur tilkynnt að það ætli að byggja nýja miðstöð fyrir fyrirtækið í Austin í Texas en fyrirtækið er nú þegar með starfsemi í borginni. Þetta felur í sér fjárfestingu Apple upp á um 126 milljarða króna. Fyritækið segir að með byggingu húsnæðisins verði það á endanum stærsti vinnuveitandinn úr einkageiranum í ríkinu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.