Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Qupperneq 6
ERLENT
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2018
Joshua Becker, stofnandi vefsíðunnar becomingminimalist.com, er
einn þeirra sem hafa vakið athygli á þessari miklu neyslu um jólin.
Hann bendir á í pistli á foxnews.com að snemma á nítjándu öld hafi
ríkar fjölskyldur haldið upp á jólin með því að gefa mat og drykk til
þeirra sem hafi þarfnast þess. Þetta hafi síðan breyst upp úr
miðri nítjándu öld og árið 1890 hafi börn verið farin að
afhenda búðarjólasveinum óskalista sína.
Hann vill að við spólum aðeins til baka og bendir á
að gott sé að eyða meira í þá sem þurfi á því að halda
og minna í þá sem eigi of mikið. Í anda mínimalismans
mælir hann með því að gefa heldur minna en leggja
áherslu á meiri gæði og hann bendir fólki líka á að gefa
eitthvað sem hægt er að borða eða upplifa; þannig hlað-
ist ekki óþarfa hlutir upp hjá fólki sem nú þegar eigi
of mikið. Sannur jólaandi sé falinn í því að leggja
áherslu á það sem í raun skipti mestu máli og
hvetur hann fólk til að horfa inn á við.
Jólin eru ekki bara hátíðbarnanna heldur eru þau ekki
síður hátíð kaupmanna. Búist
er við því að meðal-Bandaríkja-
maðurinn eyði 1.250 bandaríkjadöl-
um, 157.000 kr., í gjafir, ferðalög
og skemmtun í kringum jólahátíð-
ina í ár. Þetta er 5% meira en í
fyrra að því er fram kemur í grein
cbsnews.com en þar eru tölur frá
ráðgjafarfyrirtækinu PwC hafðar
til hliðsjónar. Þeir sem eyða mest
eru karlmenn, hátekjufólk af alda-
mótakynslóð og meðlimir í Amazon
Prime. Neytendur leggja áherslu á
góð tilboð og stresslausa verslun,
samkvæmt rannsókn PwC. Þeir
vilja ekki eyða miklum tíma í að
kaupa jólagjafir og vilja alls ekki
þurfa að fara í margar búðir.
Þrátt fyrir að verslun sé að fær-
ast mikið á netið sögðust níu af tíu
ætla að fara í búðir að versla fyrir
jólin. Ljóst er að mikið er verslað í
kringum svartan föstudag og tilboð
honum tengd og hefur sala á net-
inu farið vaxandi. Samkvæmt
forbes.com var vöxturinn 23,6%
milli ára.
Í grein á cnbc.com kemur fram
að samtök smásala í Bandaríkj-
unum búist við því að meðalneyt-
andinn eyði rúmlega þúsund döl-
um, 126.000 kr., í allt frá gjöfum,
jólafötum og jólamat í ár, sem sé
4,1% aukning frá í fyrra. Önnur
spá, frá NerdWallet, spáir um 18%
aukningu á því sem fólk eyði í jóla-
gjafir í ár og að meðaltalið verði
776 dalir, 97.000 kr. Þetta eru nið-
urstöður könnunar sem gerð er ár-
lega fyrir NerdWallet. Það sem er
kannski verra er að könnunin
leiddi í ljós að næstum þrír af
hverjum tíu voru enn að borga
skuldir vegna jólagjafakaupanna í
fyrra. Meira en helmingur eyðir
meira en hann ætlaði sér fyrir jól-
in eða hefur enga fjárhagsáætlun
til hliðsjónar við jólagjafakaupin.
Skuldin eftir jólavertíðina er að
meðaltali 130.000 kr.
Samkvæmt yougov.com er talan
yfir þá sem skulda enn fyrir jóla-
gjöfunum í fyrra um 15% en sú
tala er 19% eða nærri einn af
hverjum fimm hjá aldamótakyn-
slóðinni.
Bandaríkjamenn bjartsýnir
Síðasta jólavertíð var sú besta fyr-
ir smásala í meira en áratug og
stefnir í að þessi verði enn betri.
37% Bandaríkjamanna segja að
fjármál þeirra séu í betra horfi en
fyrir ári en 17% segjast standa
verr, samkvæmt könnun sem The
New York Times lét gera fyrir sig.
Þessi bjartsýni Bandaríkja-
manna virðist tengjast því að at-
vinnuleysi hefur ekki verið minna í
næstum hálfa öld. Neytendur eru
vissulega bjartsýnni á framtíðina
en áður. 41% býst við að verða á
betri stað eftir ár en 14% búast við
að hafa það verra. Meirihluti þátt-
takenda í könnuninni býst við því
að bjartir tímar séu fram undan í
efnahagslífinu næstu fimm ár.
Þessi bjartsýni og traust á efna-
hagslífinu leiðir til þess að neyt-
endur eyða meira, sagði Diane
Swonk, hagfræðingur hjá bók-
haldsfyrirtækinu Grant Thornton, í
samtali við The New York Times.
Hún segir að eyðsla sé meira í
neyslu á borð við kostnað við að
fara út að borða, ferðalög og fatn-
að. „Fólk klæðir sig upp og fer út.
Það á meiri pening til að eyða í
svona hluti og ferðast meira.“
Milljarðar í óþarfa gjafir
Þrátt fyrir að eyðslan verði meiri í
ár er spurning hvort gjafirnar hitti
betur í mark en áður. Meira en
helmingur Bandaríkjamanna fær
gjafir sem hann hefur ekki áhuga
á og samkvæmt finder.com fara
því 13 milljarðar bandaríkjadala,
rúmlega 1.600 milljarðar króna, í
óþarfa gjafir á ári hverju. Af þeim
geymir fólk samt sem áður tæp-
lega þriðjung, það gefur 22% ein-
hverjum öðrum, 14% er skilað eða
skipt, fólk selur 10% þeirra og
6% fara beint í ruslið.
Það er því eins gott
að hugsa sig vel um
við jólagjafainn-
kaupin.
Hátíð
kaupmanna
Hver Bandaríkjamaður eyðir um hundrað
þúsund krónum í jólagjafir og eru margir enn
í skuld vegna gjafakaupa fyrir jólin í
fyrra. Sumar gjafir fara beint í ruslið.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Joshua
Becker
Leitin að hinum
sanna jólaanda
AFP
Stund milli stríða hjá jólasveini sem vinnur við að hlýða á óskir barna í verslunarmiðstöð í Kaliforníu.
JEMEN
Ríkisstjórn Jemen og uppreisnarmenn hafa komist að
samkomulagi um vopnahlé í hafnarborginni Hodeida. Í
Jemen ríkir hungursneyð og er borgin mjög mikilvæg í
því að koma mat til fólksins í landinu. Viðræður fóru fram
í Svíþjóð undir stjórn Sameinuðu þjóðanna. Vonast er til
þess að vopnahléið leiði til varanlegs friðar í landinu.
ÍRAN
Baráttumaður fyrir mannréttindum í Íran,
sem fangelsaður var fyrir skilaboð sín á
samfélagsmiðlum, er látinn eftir 60 daga
hungurverkfall. Vahid Sayadi Nasiri hafði
m.a. verið ásakaður um að hafa móðgað
erkiklerkinn Ali Khamenei. Hann fór í
hungurverkfall m.a. til að mótmæla slæm-
um aðbúnaði og skorti á lögfræðiaðstoð.
BRETLAND
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands,
fór í vikulok til Brussel til þess að ræða
lagaleg mál varðandi Brexit á ráðstefnu
leiðtoga í Evrópusambandinu. May hafði
betur í atkvæðagreiðslu um vantraust á
hana á miðvikudag en staða hennar er
löskuð eftir þetta. Hún ætlar ekki að leiða
Íhaldsfl okkinn í kosningunum 2022.
BANDARÍKIN
Apple hefur tilkynnt að það ætli
að byggja nýja miðstöð fyrir
fyrirtækið í Austin í Texas en
fyrirtækið er nú þegar með
starfsemi í borginni. Þetta
felur í sér fjárfestingu
Apple upp á um 126
milljarða króna. Fyritækið
segir að með byggingu
húsnæðisins verði það á
endanum stærsti
vinnuveitandinn úr
einkageiranum í
ríkinu.