Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Blaðsíða 25
16.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 Við notum ekki MSG í súpuna okkar. Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum og stórmörkuðum landsins. Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp Rósakál með hvítlauk Meðlæti fyrir 4-6 800-900 g rósakál, allt skorið í tvennt 2 hvítlauksrif, rifin ½ bolli hvítlauksmajónes, eða eftir smekk 2 msk súrsað grænmeti (t.d. pikkl- aður rauðlaukur, sjá uppskrift annars staðar á síðunni) 2 msk skorinn graslaukur smá olía til steikingar salt Steikið rósakálið á pönnu í olíu og rifnum hvítlauk. Þegar það er byrjað að brúnast, saltið þá og setjið á disk. Bætið við hvítlauks- majónesi, sýrðu grænmeti og graslauk. Skreytið með basillaufum og fínt skorinni rauðri papriku. HVÍTLAUKSMAJÓNES 2 hvítlauksrif, rifin ¼ bolli matarolía 1 bolli majónes smá salt Steikið hvítlaukinn í olíunni og setjið svo í blandara. Bætið við majónesi og smásalti og blandið áfram. Þessi réttur er frábær sem forréttur eða meðlæti, passar t.d. mjög vel með jóla- skinku eða síld. Fyrir 5 til 10 10 egg 2 bollar majónes 1 msk chilisósa (t.d. sri- racha) cayennepipar á hnífs- oddi smá salt lauksulta (sjá uppskrift að neðan) steikt kapers pikklaður rauðlaukur (sjá uppskrift að neðan) Sjóðið eggin í tíu mín- útur. Skerið langsum og takið rauðurnar úr og setjið í matvinnslu- vél með majónesi, chil- isósu, salti og cayenne- pipar. Hrærið. LAUKSULTA 2 laukar, skornir í þunnar sneiðar 1 msk síróp (úr sykri) 1 msk sinnepsfræ smá salt smá smjör til steikingar Eldið laukinn á pönnu í smá smjöri. Þegar þeir byrja að brúnast, bæt- ið þá sinnepsfræjum og sírópi saman við og hrærið áfram. PIKKLAÐUR LAUKUR 1 rauðlaukur 1 bolli hrásykur 1 bolli sérríedik 1 bolli vatn Blandið saman ediki, hrásykri og vatni í pott og náið upp suðu. Kæl- ið. Afhýðið rauðlauk og skerið mjög þunnt og setjið út í volgan edik- vökvann og látið liggja í einn til tvo tíma. Raðið eggjahvítu- helmingum á disk. Setjið smá lauksultu í botninn á hverju eggi. Sprautið eggjarauðu- maukinu ofan á lauk- inn. Steikið kapers á pönnu og stráið yfir. Setjið pikklaða laukinn efst. Djöflaegg Rauða hanans Fyrir fjóra ½ bolli rasp ¼ bolli rjómi 2 msk ólífuolía 1 meðalstór rauðlaukur, skorinn smátt ½ kg nautahakk ½ kg svínahakk 2 msk hunang 1 stórt egg salt og nýmalaður pipar 3 msk ósaltað smjör SÓSAN 1 bolli kjúklingasoð ½ bolli rjómi ¼ bolli týtuber úr dós eða krukku 2 msk safi af súrum gúrkum salt og nýmalaður pipar Blandið raspi og rjóma saman í litla skál og hrærið með gaffli þannig að það blotni vel í raspinu. Geymið til hliðar. Hitið olíu á pönnu yfir miðl- ungshita. Steikið laukinn í u.þ.b. fimm mínútur, þar til hann er mjúkur. Takið af hitanum. Blandið saman nautahakki, svínahakki, lauk, hunangi og eggi og blandið vel saman í höndunum. Saltið og piprið. Blandið þá raspblöndunni sam- an við. Hnoðið kjötbollur með blaut- um höndum (svo hakkið klessist ekki við hendurnar). Þær eiga að vera á stærð við golfbolta. Leggið þær á rakan disk. Þú ættir að vera með u.þ.b. 24 litlar bollur. Bræðið smjör í stórri pönnu og hafið stillt á miðlungshita. Setjið bollurnar út á pönnuna, í nokkr- um hlutum ef þarf, og eldið í um sjö mínutur. Verið dugleg að snúa þeim á alla kanta á meðan þær eldast. Takið þær af pönnunni og setjið á disk en skiljið eftir um eina matskeið af fitunni á pönnunni. Til að búa til sósuna setjið pönn- una aftur á helluna og hrærið út á hana kjúklingasoði, rjóma, týtu- berjum og safanum af gúrkunum. Látið suðuna koma upp. Smakkið til með salti og pipar. Setjið kjötbollurnar út í sósuna, lækkið hitann og látið malla í fimm mínútur eða þar til sósan þykknar aðeins og bollurnar eru heitar í gegn. Berið fram með kartöflum (eða kartöflumús) og súrum gúrkum. Sænskar kjötbollur Fyrir 8 (dugar í eitt venju- legt brauðform) 1 bolli hveiti 1 bolli maísmjöl 2 msk sykur 2 tsk lyftiduft 1 tsk þurrkaðar aleppo- piparflögur (ef það fæst ekki má blanda sætri papriku við cayenne-pipar í hlutföll- unum fjórir á móti einum) ½ tsk salt 1 egg, slegið saman 1 bolli sýrður rjómi 1⁄3 bolli ab-mjólk (þynnt með smá mjólk) 2 msk olífuolía hunangssmjör Hitið ofnin í 200°C. Blandið hveiti, maís- mjöli, sykri, lyftidufti, aleppo-piparflögum og salti saman í skál. Þeytið í sér skál saman egg, sýrðan rjóma, ab- mjólk og olífuolíu. Blandið blöndunum saman og hrærið. Hellið deiginu í smurt brauðform. Bakið í ofni í 22-25 mínútur eða þar til tann- stöngull, sem stunginn er í brauðið, kemur hreinn út. HUNANGSSMJÖR ¾ bollar smjör við stofuhita ¼ bolli hunang Þeytið saman smjör og hunang og geymið í ísskáp þar til borið fram. Berið brauðið fram volgt með hunangssmjöri og jafnvel týtuberjum. Maísbrauð

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.