Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Page 35
Friðgeir Einarsson vaknar stund-
um upp í líkama ferðamannsins
sem skilur ekki alveg hvað hann er
að gera eða á að vera að gera.
Morgunblaðið/Eggert
Ég hef séð svona áður heitirnýtt smásagnsafn eftir Frið-geir Einarsson, en áður hafa
komið frá honum smásagnasafnið
Takk fyrir að láta mig vita og
skáldsagan Formaður húsfélagsins.
Friðgeir segir að sögurnar í Ég
hef séð svona áður hafi allar verið
skrifaðar á þessu ári, þótt vísarnir
að þeim, hugmyndirnar, hafi orðið
til á síðustu árum. „Þær eru allar
skrifaðar á þessu almanaksári og
svolítið tilfundnar í kringum
ákveðið þema sem er túrismi í eig-
inlegri og óeiginlegri merkingu,
nokkuð sem ég hef haft áhuga á
lengi,“ segir Friðgeir, sem hefur
reyndar starfað við ferðamennsku
síðastliðin tvö ár. „Ég hef mikinn
áhuga á ferðalöngum en vakna líka
stundum upp í líkama ferðamanns-
ins sem skilur ekki alveg hvað
hann er að gera eða á að vera að
gera.“
Friðgeir segist ekki mikið inn-
fallaskáld, stundum fái hann ein-
hverja vitrun og skrifi þá niður, en
það sé oft algjört smáatriði. „Síðan
þarf ég að pína sjálfan mig til að
setjast niður og skrifa og stundum
líður mér eins og megnið af vinnu-
deginum fari í að píska mig
áfram.“
Utanveltu í eðlilegum
aðstæðum
– Þú segir túrismi í eiginlegri og
óeiginlegri merkingu, ertu þá að
vísa í það þegar maður er utan-
veltu í eðlilegum aðstæðum?
„Það að upplifa framandleika í
hversdagslegu lífi, að upplifa eitt-
hvað sem allir eru að gera og
skilja en maður skilur ekki af
hverju maður gerir það eða vill
það sjálfur. Einhver aftenging,
sem er stemningin sem ég var að
reyna að skrifa í kringum, en það
var ekki endilega markmiðið að
stíga alltaf nákvæmlega á þann
punkt.“
– Í sögunni Virki er til að mynda
maður sem er að gera eitthvað
sem hann eiginlega langar ekki til
að að gera eða veit eiginlega ekki
hvers vegna hann ætti að vera að
gera.
„Mér líður stundum þannig þeg-
ar ég er að ferðast. Ég tala nú
ekki um ef ég ákveð að taka mynd-
ir af einhverri kirkju eða einhverju
mannvirki sem ég hef í raun engan
áhuga á. Jafnvel þegar ég geng yf-
ir Skólavörðuholtið og sé að fólk er
að taka myndir af Hallgrímskirkju
og rennir í grun að ekki hafi allir
sama áhugann á arkitektúr Guð-
jóns Samúelssonar. Hugsanlega
enginn, en alla vegana ekki svona
margir.“
Framleidd upplifun
– Til að stimpla það inn að ég hafi
verið hér þarf ég að taka mynd af
því þótt ég eigi aldrei eftir að
skoða hana aftur.
„Akkúrat og kemur kannski líka
aðeins inn á framleiðslu á svoleiðis
augnablikum; að maður sé að
framleiða minningu sem er kannski
ekkert endilega í samræmi við
raunveruleika ferðalagsins.“
– Í sögunni Þjálfun nýrra leið-
sögumanna er verið að búa til
minningar, búa til upplifun fyrir
ferðamanninn sem er ekki ekta,
skiptir ekki máli af því það er ver-
ið að selja þessa upplifun.
„En það þarf líka að passa að
leiða upplifunina framhjá þeirri
staðreynd eða lenda því á ein-
hverjum þægilegum stað þannig að
ferðamenn þurfi ekki að hugsa um
að þeir séu ferðamenn þótt þeim
sé ekið um á stórum bílum fullum
af öðrum ferðamönnum.“
Hversdagslegur
framandleiki
Í nýju smásagnasafni veltir Friðgeir Einarsson fyrir sér
ferðamennsku í eiginlegri og óeiginlegri merkingu
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
16.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 5.-11. DESEMBER
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Stúlkan hjá brúnniArnaldur Indriðason
2 BrúðanYrsa Sigurðardóttir
3 Útkall – þrekvirki í djúpinuÓttar Sveinsson
4 ÞorpiðRagnar Jónasson
5 Siggi sítrónaGunnar Helgason
6 Þitt eigið tímaferðalagÆvar Þór Benediktsson
7 Orri óstöðvandiBjarni Fritzson
8 HornaugaÁsdís Halla Bragadóttir
9 Ungfrú ÍslandAuður Ava Ólafsdóttir
10 Sextíu kíló af sólskiniHallgrímur Helgason
11 Fíasól gefst aldrei uppKristín Helga Gunnarsdóttir
12
Kaupthinking – bankinn
sem átti sig sjálfur
Þórður Snær Júlíusson
13 Beint í ofninnNanna Rögnvaldardóttir
14 Hvolparnir bjarga jólunumHvolpasveitin
15 Lára fer til læknisBirgitta Haukdal
16 KrýsuvíkStefán Máni
17
Aron – sagan mín
Aron Einar Gunnarsson og
Einar Lövdahl
18
Henny Hermanns
– vertu stillt!
Margrét Blöndal
19 Skúli fógetiÞórunn Jarla Valdimarsdóttir
20 Steindi í orlofiSteinþór Hróar Steinþórsson
Allar bækur
Eftir fjörugan lestur um Strandir
og Dali les ég verk ferðafélaganna.
Fyrst Lifandilífslæk, það var fyrsta
flokks að heyra Bergsvein Birgis-
son lesa úr þeirri bók á söguslóð og
honum var hlýlega
tekið á Ströndum.
Hin er Ungfrú Ís-
land Auðar Övu.
Þegar hún las á
Drangsnesi línuna
um hvað tæki eig-
inlega margar blaðsíður að taka
fram úr traktor ef James Joyce væri
farþegi í sérleyfisrútunni bráðnaði
ég og hef hlakkað til síðan. Þriðji
ferðafélaginn var
Bjarni M. Bjarnason
og hans magnaða
Læknishús hef ég
þegar lesið. Af bóka-
messunni kom ég
svo heim með Etýð-
ur í snjó e. Yoko Tawada, sem Elísa
Björg Þorsteinsdóttir þýðir, um ís-
birni sem taka fullan þátt í félagi
manna. Áðan sull-
aðist til dæmis blek á
feld bangsaömmu
sem er að handskrifa
ævisöguna! Þegar ég
samdi fyrir Hafn-
arfjarðarleikhúsið
leikþáttinn Ísbjörn óskast, um
hvítabjörn hjá umboðsmanni,
grunaði mig ekki að sá myndi síðar
eignast sálufélaga hjá japönskum
höfundi í Berlín.
ÉG ER AÐ LESA
Sigurbjörg
Þrastardóttir
Sigurbjörg Þrastardóttir
er rithöfundur.
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
SÍGILD HÖNNUN Í 50 ÁR
Fyrir 50 árum hannaði danski hönnuðurinn Arne Jacobsen fyrsta kranann fyrir Vola.
Æ síðan hefur hönnun og framleiðsla Vola verið í fremstu röð.