Fréttablaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 88
Sítrónukaka er alltaf fersk og góð. Kakan er sérlega góð með glassúr. Um að gera að prófa
um helgina. Það er í góðu lagi að
frysta þessa köku. Þessi uppskrift
miðast við að kakan sé bökuð í ofn-
skúffu. Hún ætti að vera nægjanleg
fyrir tíu manns.
6 egg
6 dl sykur
250 g smjör
1 dl mjólk
11 dl hveiti
4 tsk. lyftiduft
2 dl sítrónusafi
Glassúr
6 dl flórsykur
4 msk. sítrónusafi
Þeytið saman egg og sykur. Bræðið
smjörið og blandið mjólkinni
saman við. Setjið öll þurrefni í
hrærivélarskál, bætið eggjahrær-
unni saman við ásamt mjólk og
smjöri. Síðan er það sítrónusafinn.
Allt hrært saman þar til blandan
verður létt og kekkjafrí.
Klæðið bökunarplötu með pappír.
Dreifið deiginu yfir og bakið
kökuna í 200°C heitum ofni í 25-30
mínútur. Kælið.
Hrærið saman flórsykri og sítrónu-
safa þar til verður fallegur glassúr.
Setjið yfir kökuna og látið stífna.
Skerið síðan kökuna í hæfilega
bita. Það má skreyta hana með
rifnum sítrónuberki.
Fersk sítrónukaka
Glæsileg sítrónukaka.
Marmarakaka er alltaf vinsæl með kaffinu. Hún geymist vel en er einstak-
lega bragðgóð alveg nýbökuð.
Hér er uppskrift með pínulitlum
breytingum frá hinni hefðbundnu
en góð er hún. Það sem þarf.
3½ dl mjólk
450 g sykur
1 tsk. vanillusykur
275 g hveiti
2½ tsk. lyftiduft
250 g bráðið smjör
2 egg
20 g kakó
150 g bráðið suðusúkkulaði
1 msk. rifinn appelsínubörkur
2 dropar appelsínugulur eða gulur
matarlitur
Súkkulaðisósa
200 g dökkt súkkulaði
1 dl rjómi
Blandið saman mjólk, sykri,
vanillusykri og hrærið með hveiti
lyftidufti, smjöri og eggi. Skiptið
deiginu í tvo hluta og setjið kakó og
súkkulaði í aðra blönduna en rifinn
appelsínubörk og matarlit í hinn.
Smyrjið kökuformið vel að innan
með smjöri og dreifið smávegi
hveiti yfir. Setjið súkkulaðideigið
í botninn og ljósu blönduna yfir.
Notið hníf til að hræra aðeins í
blöndunni þannig að marmara-
áferð myndist.
Bakið kökuna við 160°C í um það
bil eina klukkustund og korter.
Kælið í tíu mínútur á rist. Hægt er
að hella súkkulaðisósu yfir kökuna
fyrir þá sem það vilja. Einnig er
hægt að bera súkkulaðisósuna
fram með kökunni.
Marmarakaka
með appelsínu
Nýbökuð marmarakaka er ljúffeng.
Litlar og sætar marengskökur eru fallegar á borði. Þær er hægt að nota sem ýmiss konar
skraut, til dæmis ofan á tertur eða
múffins. Þá eru þær mjög góðar
með ís og berjum. Það er gaman að
gera svona fallegar kökur og bjóða
gestum með kaffinu. Í þessa upp-
skrift þarf.
3 eggjahvítur, best að láta þær
standa á borði fyrir notkun
225 g sykur
¼ tsk. salt
1 tsk. sítrónusafi
Setjið salt og sítrónusafa í skálina.
Bætið eggjahvítunum út í ásamt
⅓ af sykrinum. Þeytið og bætið
restinni af sykrinum rólega saman
við á meðan eggjahvíturnar stífna.
Setjið blönduna í þrjár skálar og
bætið sitthvorum matarlit út í
tvær skálarnar þannig að kökurn-
ar verði mislitar.
Marengsinum er síðan
sprautað á bök-
unarpappír
á plötu í
litlum
toppum.
Bakið við
60-70°C
hita í um
það bil tvo
tíma.
Fallegar
marengskökur Frábær hóptilboð
Sjáðu öll tilboðin okkar á
www.kinahofid.is
Opið alla daga
vikunnar frá
kl. 11:00 - 22:00
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l Sími 554 5022
TILBOÐ
4 réttir + súpa dagsins
aðeins 1.790 kr.*
NAUTAKJÖT Í OSTRUSÓSU
KJÚKLINGUR Í KARRÝSÓSU
DJÚPSTEIKTAR RÆKJUR MEÐ SÚR/SÆTRI SÓSU
NÚÐLUR MEÐ GRÆNMETI
*tekið með heim – 2.100 kr. ef borðað er á staðnum.
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
3
-0
7
3
0
2
2
9
3
-0
5
F
4
2
2
9
3
-0
4
B
8
2
2
9
3
-0
3
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K