Fréttablaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 14
Knarrarvogi 4 104 Reykjavík Sími 585 1070 vov@vov.is www.vov.is
G
ra
fik
a 1
3
Við útvegum búnað til hverskonar
hreinsunar á fráveituvatni.
Lífræn hreinsun fyrir sveitarfélög með
viðkvæman viðtakanda
Vélræn eða lífræn hreinsun eftir aðstæðum á
hverjum stað.
Okkar búnaður er í nær öllum núverandi
fráveitu-hreinsikerfum á Íslandi.
Hafið samband við okkur og við gerum
tillögur um viðeigandi búnað.
VIÐ ERUM GÓÐIR Í
HREINSUN Á FRÁVEITUVATNI
Biorock. Fyrir sumarhús og bóndabæi
Tröppurist í kassa fyrir sveitarfélög. Vélræn hreinsun
Knarrarvogi 4 104 Reykjavík Sími 585 1070 vov@vov.is www.vov.is
G
ra
fik
a 1
3
Við útvegum búnað til hverskonar
hreinsunar á fráveituvatni.
Lífræn hreinsun fyrir sveitarfélög með
viðkvæman viðtakanda
Vélræn eða lífræn hreinsun eftir aðstæðum á
hverjum stað.
Okkar búnaður er í nær öllum núverandi
fráveitu-hreinsikerfum á Íslandi.
Hafið samband við okkur og við gerum
tillögur um viðeigandi búnað.
VIÐ ERUM GÓÐIR Í
HREINSUN Á FRÁVEITUVATNI
Biorock. Fyrir sumarhús og bóndabæi
Tröppurist í kassa fyrir sveitarfélög. Vélræn hreinsun
Knarrarvogi 4 104 Reykjavík Sími 585 1070 vov@vov.is www.vov.is
G
ra
fik
a 1
3
Við útvegum búnað til hverskonar
hreinsunar á fráveituvatni.
Lífræn hreinsun fyrir sveitarfélög með
viðkvæman viðtakanda
Vélræn eða lífræn hreinsun eftir aðstæðum á
hverjum stað.
Okkar búnaður er í nær öllum núverandi
fráveitu-hreinsikerfum á Íslandi.
Hafið samband við okkur og við gerum
tillögur um viðeigandi búnað.
VIÐ ERUM GÓÐIR Í
HREINSUN Á FRÁVEITUVATNI
Biorock. Fyrir sumarhús og bóndabæi
Tröppurist í kassa fyrir sveitarfélög. Vélræn hreinsun
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
Hagfræðideild Landsbankans metur gengi hlutabréfa í Eimskip á 158,2 krónur á
hlut í nýju verðmati og segir matið
endurspegla óvissu til næstu sex til
átján mánaða. Afkoma flutninga
félagsins hafi verið langt frá vænt
ingum í fyrra og líkur séu á því að
félagið verði áfram í varnarbaráttu
á þessu ári.
Til samanburðar stóð gengi
hlutabréfa í Eimskip í 182 krónum
á hlut þegar verðmatið var gefið út
í byrjun vikunnar en gengið lækk
aði um samtals 2,8 prósent í gær og
á mánudag og var 177 krónur á hlut
eftir lokun markaða í gær.
Í verðmatinu, sem Markaðurinn
hef r undir h ndum, er fjárfestum
ráðlagt að minnka við hlut sinn í
Eimskip. „Við teljum að félagið verði
áfram í varnarbaráttu árið 2019
vegna loðnubrests og lítils vaxtar
í öðrum útflutningi, Brexit, óvissu
í hagkerfinu sem hefur þegar haft
áhrif á magn innf lutnings, kjara
samninga og varðsamkeppni í
f lutningum til og frá Íslandi,“ segja
greinendur hagfræðideildarinnar.
Að auki sé enn beðið eftir því að
samkeppnisyfirvöld leggi blessun
sína yfir samstarf Eimskips og Royal
Arctic Line sem sé stór forsenda
fyrir kaupum fyrrnefnda félags
ins á tveimur nýjum skipum sem
séu sérútbúin til siglinga við heim
skautaskilyrði.
Annar stór áhættuþáttur í rekstr
inum, að mati hagfræðideildarinn
ar, er breytingar á losunarstöðlum
frá og með byrjun næsta árs sem
muni valda kostnaðarhækkunum
hjá skipafélögum.
Engu að síður telja greinendurnir
að EBITDA Eimskips – afkoma fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og skatta
– muni hækka á árinu. „Rekstrar
gírun“ í skipafélögum sé alþekkt og
jákvæður viðsnúningur í verði og
magni f lutninga geti bætt afkom
una töluvert. Þá séu möguleikarnir
með samstarfinu við Royal Arctic
Line stærsti hvatinn að hærra verð
mati. – kij
Lægra verðmat endurspeglar óvissu
Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri
Eimskips. LJÓSMYND/EIMSKIP
56%
var samdráttur í hagnaði
Eimskips á síðasta ári.
Félag í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu, sem eru eigendur Ísfélagsins í Vest
mannaeyjum, er komið í hóp 20
stærstu hluthafa tryggingafélagsins
TM með 1,14 prósenta hlut. Hlutur
félagsins, Kristins ehf., er metinn á
um 230 milljónir króna miðað við
núverandi gengi hlutabréfa í trygg
ingafélaginu.
Eins og greint var frá í Markaðin
um í janúar síðastliðnum hafa Guð
björg og fjölskylda aukið umtalsvert
við eignarhlut sinn í TM að undan
förnu en hluturinn, sem nemur
smanlagt nokkrum prósentum, er
aðallega í gegnum framvirka samn
inga hjá Íslandsbanka.
Kristinn ehf., sem birtist í liðinni
viku á lista yfir 20 stærstu hluthafa
TM, hóf að fjárfesta í trygginga
félaginu á árinu 2016 og nam eignar
hlutur félagsins 0,7 prósentum í lok
árs 2017.
Ekki hafa fengist staðfestar upplýs
ingar um nákvæmlega hversu stóran
hlut félög Guðbjargar eiga orðið í TM,
einkum á grundvelli framvirkra
samninga, en ljóst er að eignar
hluturinn er ekki stærri en samtals
fimm prósent enda væri félögunum
þá að öðrum kosti skylt að tilkynna
um það til Kauphallarinnar.
Breski vogunarsjóðurinn Lans
downe Partners hefur bætt nokkuð
við hlut sinn í TM undanfarið og fór
í síðustu viku með 7,8 prósenta hlut
í tryggingafélaginu. Þá hefur sjóður
á vegum bandarísku eignastýring
arinnar Eaton Vance Management
minnkað við sig og heldur nú á 1,4
prósenta hlut í félaginu borið saman
við 1,7 prósent í síðasta mánuði.
Sömu sögu er að segja af Frjálsa
lífeyrissjóðnum sem er ekki lengur
í hópi 20 stærstu hluthafa TM en
sjóðurinn átti 1,8 prósenta hlut í
félaginu í síðasta mánuði. – kij
Félag Guðbjargar í hóp
20 stærstu hluthafa TM
230
milljónir króna er markaðs-
virði hlutar Kristins ehf. í TM
Sala Heimavalla á eignum hefur gengið betur og hraðar fyrir sig á undanförnum mánuðum en
forsvarsmenn íbúðaleigufélagsins
gerðu ráð fyrir. Félagið samþykkti
þannig ýmist kauptilboð í eða seldi
samanlagt 168 íbúðir fyrir tæp
lega 5,3 milljarða króna á fyrstu tíu
vikum ársins.
Þetta var á meðal þess sem fram
kom í máli Erlends Magnússonar,
stjórnarformanns Heimavalla, á
aðalfundi leigufélagsins sem fór
fram síðasta fimmtudag.
Félagið samþykkti þannig á fyrstu
tíu vikum ársins að selja íbúðir sem
nema um níu prósentum af eigna
safni þess en félagið átti 1.892 íbúðir
í lok síðasta árs.
Í skýrslu stjórnar Heimavalla, sem
Erlendur flutti á aðalfundinum, kom
fram að í lok þessa árs væri áætlað
að fjöldi íbúða yrði um 1.600 og
að þeim myndi fækka enn frekar
á næsta ári, þrátt fyrir að félagið
áformaði að taka við nýjum íbúðum
á Hlíðarenda á sama tíma.
Til samanburðar sagðist félagið í
nóvember síðastliðnum reikna með
því að 1.645 íbúðir yrðu í eignasafn
inu í lok árs 2020.
Er nú gert ráð fyrir því að heildar
fjárbinding leigufélagsins verði að
minnsta kosti 20 prósentum lægri í
lok árs 2020 í samanburði við bind
inguna í lok síðasta árs.
Forsvarsmenn Heimavalla hafa
sagt að söluandvirði eigna verði nýtt
til þess að meðal annars hraða upp
greiðslu óhagstæðra lána og skulda
bréfa félagsins og minnka fjárbind
ingu hluthafa með endurkaupum á
hlutafé. Þá binda þeir vonir við að
breytt samsetning eignasafnsins
muni bæta arðsemi fjárfestingar
eigna félagsins. – kij
Seldu fyrir 5,3 milljarða
á fyrstu tíu vikum ársins
168
íbúðir í eigu Heimavalla
voru seldar á fyrstu tíu
vikum ársins.
Þrír fjárfestar bítast um tæplega 54 prósenta eignarhlut í HS Orku, sem gæti verið metinn á nærri 40 milljarða íslenskra króna, eftir að
frestur til að gera skuldbindandi til
boð í hlut Innergex í íslenska orku
fyrirtækinu rann út föstudaginn 8.
mars síðastliðinn. Samkvæmt heim
ildum Markaðarins er um að ræða
sjóð í stýringu ástralska fjárfest
ingarbankans Macquarie, íslenska
félagið Arctic Green Energy, sem er
meðal annars í eigu kínverskra fjár
festingarfélaga, og breska fjárfesting
arfyrirtækið Ancala Partners en það
sérhæfir sig í innviðafjárfestingum.
Formlegt söluferli á eignarhlut
Innergex í HS Orku, sem er meðal
annars eigandi að 30 prósenta hlut í
Bláa lóninu, hófst um miðjan októ
ber í fyrra. HS Orka er þriðji stærsti
raforkuframleiðandi landsins og
jafnframt eina orkufyrirtækið á
Íslandi sem er í eigu einkafjárfesta.
Macquarie Group, sem hefur
komið að fjárfestingum í grænni
orku fyrir um 15 milljarða Banda
ríkjadala frá 2010, rekur meðal ann
ars sjóð sem fjárfestir í endurnýjan
legum orkugjöfum og innviðum.
Fulltrúar sjóðsins hafa áður horft
til innviðafjárfestinga hér á landi
en fram hefur komið í fjölmiðlum
að þeir hafi fundað með embættis
mönnum í fjármálaráðuneytinu
vorið 2017 í tengslum við áhuga
þeirra á að koma að rekstri Kefla
víkurflugvallar.
Arctic Green Energy, sem er
að stærstum hluta í eigu Hauks
Harðarsonar, stjórnarformanns og
stofnanda félagsins, hefur unnið
að því að þróa og reka umhverfis
vænar jarðhitaveitur í Asíu. Í fyrra
samdi fyrirtækið við kínversku fjár
festingarfélögin CITIC Capital og
China Everbright, ásamt Þróunar
banka Asíu, um fjármögnun upp á
150 milljónir dala, jafnvirði 17 millj
arða króna á núverandi gengi. Við
þá fjármögnun bættist China Ever
bright við hluthafahóp Arctic Green
Energy en CITIC Capital hefur verið
hluthafi í fyrirtækinu frá 2015.
Í fjárfestakynningu vegna sölu
ferlisins, sem ber heitið Project
Thor, kemur fram að áætlaður
hagnaður HS Orku fyrir fjármagns
liði, afskriftir og skatta (EBITDA) á
árinu 2019 sé 31 milljón dala. Gert er
ráð fyrir að EBITDA félagsins muni
hins vegar nærri tvöfaldast og verða
um 60 milljónir dala á árinu 2023.
Aðrir hluthafar HS Orku eru sam
lagshlutafélagið Jarðvarmi, sem er í
eigu fjórtán íslenskra lífeyrissjóða,
með 33,4 prósenta hlut og fagfjár
festasjóðurinn ORK með 12,7 pró
senta hlut. Svissneska fjárfestingar
félagið DC Renewable Energy, sem
er í eigu Bretans Edmunds Truell
sem hefur lengi unnið að því að
koma á sæstreng á milli Íslands og
Bretlands, gekk frá samkomulagi
um kaup á hlut ORK í byrjun októ
ber á liðnu ári.
Þau eru hins vegar ekki endanlega
frágengin, samkvæmt heimildum
Markaðarins, þar sem Truell hefur
ekki greitt fyrir hlutinn að fullu.
Miðað við kaupverðið á hlut ORK,
sem nemur rúmlega níu milljörð
um króna með árangurstengdum
greiðslum, er markaðsvirði HS Orku
í dag um 72 milljarðar.
Hagnaður HS Orku, sem á og
rekur orkuver í Svartsengi og á
Reykjanesi, nam 4.588 milljónum á
árinu 2017. Heildareignir voru 48,4
milljarðar og eigið fé félagsins um
35,5 milljarðar.
Ráðgjafar Innergex í söluferlinu
eru kanadíski bankinn Bank of
Montreal og íslenska ráðgjafarfyrir
tækið Stöplar Advisory.
hordur@frettabladid.is
Þrír fjárfestar bítast um
meirihluta í HS Orku
Söluferli á 54 prósenta hlut kanadíska félagsins Innergex í HS Orku hófst um miðjan október í fyrra.
Arctic Green Energy,
sem er meðal annars
í eigu kínverskra
fjárfesta, sjóður í
rekstri ástralska
bankans Macquire
Group og breska
fjárfestingarfyrirtækið
Ancala Partners gerðu
skuldbindandi tilboð
í 54 prósenta hlut í HS
Orku. Miðað við nýleg
viðskipti gæti hluturinn
verið metinn á nærri 40
milljarða króna.
2 0 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN
2
0
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
8
-F
E
1
C
2
2
9
8
-F
C
E
0
2
2
9
8
-F
B
A
4
2
2
9
8
-F
A
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K