Fréttablaðið - 20.03.2019, Side 16
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
Borgun sagði í lok síðasta árs upp viðskiptasamböndum við seljendur sem ekki rúmast
innan nýrrar áhættustefnu korta-
fyrirtækisins, að því er fram kemur
í ársreikningi fyrirtækisins fyrir
síðasta ár. Forsvarsmenn Borgunar
segjast þannig setja langtímahags-
muni framar skammtímasjónar-
miðum og telja að uppsagnirnar
muni vera fyrirtækinu til hagsbóta
til framtíðar.
Sem kunnugt er gerði Fjármála-
eftirlitið á árinu 2017 margvíslegar
athugasemdir við eftirlit kortafyrir-
tækisins með peningaþvætti og fjár-
mögnun hryðjuverka. Krafðist eftir-
litið þess meðal annars að Borgun
sliti viðskiptasambandi sínu við
tíu erlend fyrirtæki vegna þess að
fyrirtækið kannaði ekki áreiðan-
leika upplýsinga um þau með full-
nægjandi hætti.
Í skýringum við ársreikning
Borgunar fyrir síðasta ár er bent á
að síðla árs 2017 hafi viðskiptasam-
böndum verið sagt upp við tölu-
verðan fjölda seljenda sem seldu
þjónustu eingöngu yfir internetið
utan heimamarkaða. Ekki hafi
verið stofnað til nýrra viðskipta-
sambanda við slíka seljendur á
síðasta ári.
Þá hafi Borgun ákveðið, í sam-
ræmi við nýja áhættustefnu sína,
að segja upp viðskiptasamböndum
sem ekki rúmist innan stefnunnar.
Eins og Markaðurinn hefur
greint frá nam tap Borgunar tæp-
lega 1,1 milljarði króna í fyrra. Í
ársreikningnum er tekið fram að
tapið skýrist fyrst og fremst af hratt
minnkandi tekjum af erlendum við-
skiptum hjá seljendum sem selja
vöru og þjónustu eingöngu yfir int-
ernetið.
Auk þess megi rekja lægri hreinar
þjónustutekjur til aukins kostn-
aðar umfram tekjur af innlendri
færsluhirðingu sem skýrist aðal-
lega af drætti í innleiðingu á nýjum
lögum um lækkun milligjalda. Þá
hafi hreinar þjónustutekjur einnig
lækkað vegna neikvæðrar fram-
legðar af stórum erlendum seljanda
sem Borgun tók í viðskipti í lok árs
2017.
Hreinar rekstrartekjur Borgunar
voru 2.031 milljón króna í fyrra og
drógust saman um 52 prósent á
milli ára. Rekstrargjöld voru 3.312
milljónir á síðasta ári og lækkuðu
um tæp 11 prósent frá fyrra ári.
Íslandsbanki ákvað í byrjun árs-
ins að hefja að nýju söluferli á 63,5
prósenta hlut bankans í Borgun,
eins og fram hefur komið í Markað-
inum, en alþjóðlega ráðgjafarfyrir-
tækið Corestar Partners stýrir ferl-
inu. – kij
Sleit viðskiptum sem rúmast
ekki innan áhættustefnu
Sæmundur Sæmundsson, forstjóri
Borgunar.
52%
var samdráttur í hreinum
rekstrartekjum Borgunar í
fyrra.
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, telu r að jafnvel þótt nýjum keppinautum takist ekki að hrifsa til sín
stóra sneið af innlánamarkaðinum
muni aukin samkeppni mögulega
auka jaðarkostnað stóru viðskipta-
bankanna þriggja af innlánum.
Aukin samþjöppun á markað-
inum eftir að sparisjóðirnir féllu
sé stór ástæða þess að vaxtamunur
hafi aukist á undanförnum árum.
„Bankarnir munu sjá harðari
heim,“ segir hann í samtali við
Markaðinn.
Innan við viku eftir að Auður, ný
fjármálaþjónusta Kviku banka, hóf
að bjóða sparnaðarreikninga fyrir
einstaklinga á fjögurra prósenta
vöxtum höfðu meira en fimm millj-
arðar króna safnast á reikningana,
samkvæmt heimildum Markaðar-
ins.
Þjónusta Auðar, sem tók til starfa
á þriðjudag í síðustu viku og býður
óbundna reikninga á netinu, miðar
við að viðskiptavinir afgreiði sig
sjálfir en fái á móti, eins og tekið
var fram í tilkynningu frá Auði,
umtalsvert betri vexti en aðrir
bankar bjóði sem eru á bilinu 0,3 til
2,15 prósent.
„Innlánsvextir á Íslandi eru lágir
og með lítilli yfirbyggingu sáum við
tækifæri til þess að geta boðið betri
kjör en bjóðast núna. Þetta er vís-
bending um hvert bankakerfið er
að þróast og hvernig sú þróun getur
leitt til þess að viðskiptavinir njóti
betri kjara,“ var haft eftir Ólöfu
Jónsdóttur, forstöðumanni Auðar,
í Fréttablaðinu í síðustu viku.
Arion banki og Íslandsbanki segj-
ast í svari við fyrirspurn Markaðar-
ins ekki hafa, enn sem komið er,
fundið mikið fyrir áhrifum af nýju
samkeppninni. Fyrrnefndi bank-
inn nefnir að nokkuð hafi verið um
Samkeppni leiði til minni vaxtamunar
Dósent í hagfræði segir aukna samkeppni á innlánamarkaði geta birst í minni vaxtamun. Innlán á nýjum reikningum Auðar, sem
er í rekstri Kviku, eru komin yfir fimm milljarða. Íslandsbanki bendir á að meiri áhætta fylgi fjárfestingarbanka en alhliða banka.
Mikil samþjöppun á íslenskum innlánamarkaði kann að hafa leitt til þess að mun meira bil er á milli innlána og
stýrivaxta hérlendis en þekkist á Norðurlöndunum, segir í nýlegri hvítbók um fjármálakerfið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kristinn
Ingi Jónsson
kristinningi@frettabladid.is
fyrirspurnir frá viðskiptavinum
og einhverjir hafi f lutt innistæður
sínar. Ekki hafi þó verið mikið um
slíkt enda séu innlánseigendur
almennt varkárir í eðli sínu.
✿ Innlán heimila í
bankakerfinu
Í milljörðum króna
n Óbundin lán n Bundin lán
408
475
Íslandsbanki bendir jafnframt
á að á meðan rekstraraðili Auðar,
Kvika banki, sé fyrst og fremst
fjárfestingarbanki sé fjárfestingar-
bankahluti Íslandsbanka lítill í
heildarrekstrinum. „Starfsemin er
því mjög ólík en ljóst er að töluvert
meiri áhætta fylgir fjárfestingar-
banka,“ segir í svari Íslandsbanka.
Ásgeir nefnir að samkeppni hafi
minnkað á skuldahlið fjármála-
stofnana eftir að sparisjóðirnir
hurfu af sjónarsviðinu þar sem
bankarnir þrír – Arion banki,
Íslandsbanki og Landsbankinn
– séu nú nær einráðir á innlána-
markaði.
Þess má geta að innlán heimila í
bankakerfinu námu alls 883 millj-
örðum króna í lok janúarmánaðar
en þau jukust um 76 milljarða króna
á síðasta ári.
„Þetta hefur verið nokkuð kósí
fyrir bankana,“ segir Ásgeir. „Auk
þess bjuggu þeir lengi vel við afar
góða lausaf járstöðu og þurftu
kannski ekkert að vera að teygja
sig til þess að ná í innlán en það eru
merki um að það sé nú að breytast.
Það er meiri lausafjárskortur að gera
vart við sig,“ nefnir hann.
Ásgeir segir að aukin samkeppni,
til að mynda tilraun Kviku banka til
þess að gera sig gildandi á innlána-
markaði, muni hafa áhrif á bankana
og bætast við þann þrýsting sem
þegar er til staðar og felst í minna
lausafé í umferð.
„Aukin samkeppni er þannig
til þess að fallin að hækka jaðar-
kostnað innlána. Jafnvel þótt það
muni ekki fara mikill peningur
yfir á sparnaðarreikninga Auðar
þá gæti samkeppnin þýtt að bank-
arnir þurfi að gera meira, svo sem
að gefa betri kjör á innlánum, til
þess að halda sínum viðskipta-
vinum. Áhrifin gætu birst í minni
vaxta mun,“ nefnir Ásgeir.
Í nýlegri hvítbók um fjármála-
kerfið var tekið fram að mikil
samþjöppun á íslenskum innlána-
markaði kynni að hafa leitt til þess
að mun meira bil væri á milli inn-
lána og stýrivaxta hér á landi en
þekktist á Norðurlöndum. Þannig
virtist sem vaxtamunurinn kynni
almennt að hvíla meira á innláns-
eigendum heldur en lántakendum.
Fylgjast vel með samkeppninni
Landsbankinn segist í svari við
fyrirspurn Markaðarins fylgjast
vel með samkeppni, úr hvaða átt
sem hún komi. Bankinn bjóði við-
skiptavinum betri kjör þegar um
sé að ræða bundin innlán sem við-
skiptavinir nýti almennt fremur til
sparnaðar en óbundin innlán.
Sem dæmi um slík kjör bjóði
bankinn 3,85 prósent vexti á fast-
vaxtareikningum ef viðskiptavin-
urinn er tilbúinn til þess að binda
að lágmarki 500 þúsund krónur í
þrjá mánuði. Vextirnir séu 4,2 pró-
sent ef innistæðan er bundin í tólf
mánuði og þá séu hæstu vextir á
bundnum innlánum nú allt að 5,5
prósent.
Þá leggi bankinn áherslu á alhliða
fjármálaþjónustu fyrir viðskipta-
vini en í því felist „mun meira en að
bjóða aðeins eina tegund innláns-
reikninga fyrir einstaklinga og litla
eða enga aðra þjónustu“.
Arion banki bendir á að við-
skiptavinir bankans hafi um langt
skeið átt þess kost að fá sambæri-
lega vexti og eru á reikningum
Auðar gegn bindingu til skamms
tíma. Til dæmis séu vextir á reikn-
ingi með þriggja mánaða skamm-
tímabindingu 3,9 prósent og ekki
sé gerð krafa um lágmarksinnlögn,
ólíkt reikningum Auðar.
„Almennt er þjónustustigið mjög
ólíkt,“ segir í svari bankans, „en
Arion banki býður upp á öf lugan
netbanka og app, þar sem hægt er
að framkvæma fjölda aðgerða hve-
nær og hvar sem er, og svo auðvitað
þjónustuver og net útibúa og hrað-
banka um land allt.“
2 0 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
2
0
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
9
-1
1
D
C
2
2
9
9
-1
0
A
0
2
2
9
9
-0
F
6
4
2
2
9
9
-0
E
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K