Fréttablaðið - 20.03.2019, Side 24
Hugtakið strandbúnaður er í ætt við hugtakið landbún-aður.
„Ráðstefnan Strandbúnaður
er nú haldin í þriðja sinn til að
efla umræður og umfjöllun um
strandeldi sem skiptist í þrjár
höfuðgreinar: fiskeldi, skelfisk-
rækt og þörungaeldi,“ segir Þor-
leifur Eiríksson, formaður stjórnar
félagsins Strandbúnaðar sem
stuðlar að faglegri og fræðandi
umfjöllun um strandbúnað og
stendur fyrir ráðstefnunni Strand-
búnaður.
Þorleifur er dýrafræðingur og
framkvæmdastjóri Rorum sem
sérhæfir sig í rannsóknum og
ráðgjöf í umhverfismálum. Á ráð-
stefnunni Strandbúnaður 2019
flytur hann erindið „Niðurbrot líf-
ræns efnis undir sjókvíum. Aukinn
skilningur á hvíldartíma.“.
„Fiskeldi getur farið fram í sjó
og á landi en nú er mest rætt um
fiskeldi í sjókvíum. Bleikjueldi er
eingöngu á landi og seiðaeldi fer
alltaf fram á landi,“ segir Þorleifur
og margt ber á góma ræðumanna
í málstofum ráðstefnunnar um
fiskeldi.
„Fjallað verður um framfarir í
fiskeldi, fóðrun og sjúkdómavarn-
ir, innviðauppbyggingu og flesta
hluti sem tengjast fiskeldi. Einnig
meginstrauma, markaðssetningu,
tækifæri til vaxtar og fiskeldi í
hlutfalli útflutningstekna en nú er
fiskeldi aðallega á Vestfjörðum og
Austfjörðum. Mikilvægi fiskeldis
eykst svo þegar fiskstofn hrynur
eins og gerst hefur með loðnuna
sem nú er horfin. Þá verður sér-
staklega farið í þróun fóðurs og
rætt um kolefnissporið sem er
mjög lítið,“ upplýsir Þorleifur.
Á ráðstefnunni verður sérstak-
lega rætt hvernig fiskeldi er að
breytast.
„Við tölum um vinnslu, sölu og
meðferð hráefnis, tækniþróun
í sjókvíaeldi og vandamál eins
og laxalús, en rannsóknir eru nú
að hefjast sem meta eiga áhrif
laxeldis og laxalúsar á villtan lax.
Þá verður fjallað um sjálf bærni í
fiskeldi en það kemur sífellt betur í
ljós að fiskeldi er sjálf bær iðnaður.“
Þörungar vinsælir til átu
„Þörungaeldi er alltaf að aukast.
Síeldi á smáþörungum gengur
mjög vel en þeir eru notaðir í lyfja-
iðnað og fæðubótarefni. Nú er líka
hugað að eldi á stærri þörungum
en þeir eru vinsælir til manneldis
og matreiðslu á veitingastöðum,“
upplýsir Þorleifur um spennandi
málstofur um þörungaeldi, þar á
meðal eina frá nýjum ræktanda
á Mývatni en hingað til hefur
þörungaeldi aðallega farið fram á
Suðurnesjum.
„Í dag er líka byrjað að rækta
stórþörunga innanhúss. Það má
búast við að eftirspurn eftir þeim
aukist vegna þess að sjávarfang
verður æ meira í tísku, menn eru
að færa sig meira yfir í grænmeti
og horfa þá til þörunga sem eru
bráðhollir og bragðgóðir.“
Skelfiskur sem ber af
Skelfiskrækt er sú grein strand-
búnaðar sem hefur átt hvað
erfiðast uppdráttar. Í skelfiskrækt
verður aðallega fjallað um kræk-
lingaeldi sem er nú í mikilli lægð.
„Farið verður yfir tækifæri og
áskoranir í skelfiskeldi, en það
hefur öll tækifæri til að margfald-
ast. Erfiðleikar felast meðal annars
í hversu dýrt skelfiskeldið er, en
annað vandamál eru eitranir sem
ekki er enn búið að ná tökum á
og sala á ferskmarkaði því ekki er
hægt að flytja skelfiskinn ferskan
út án þess að setja hann fyrst í
sóttkví og við það minnkar virðið.
Einnig er vandi við lirfuveiðar en
þótt yfirleitt sé til nóg af lirfum
þyrfti að tryggja þær í stórum stíl
með því að rækta þær,“ upplýsir
Þorleifur.
Hann segir íslenskan krækling
þykja ómótstæðilegt lostæti á
heimsvísu.
„Við verðum með málstofu
um eldi á sæeyrum í lóðréttum
eldiskerjum sem taka minna
flatarmál og íslenskan krækling
sem af burðahráefni til mat-
vinnslu. Holdfylling hans er mikil
í ferskum sæ og með ferskri fæðu
og þegar skelin er opnuð blasir við
djúsí sælkerabiti. Því eru mikil
tækifæri í kræklingaræktun sem
ekki hafa verið nýtt,“ segir Þor-
leifur.
„Grundvallaratriði ráðstefn-
unnar er að fara yfir tækifæri í
strandbúnaði, skoða hvað er hægt
að gera, hvað er gott að við gerðum
og hvort eitthvað sé tapað mál. Það
sýnir mikilvægi ráðstefnunnar
þar sem framleiðendur, kaup-
endur, þjónustufyrirtæki og rann-
sóknaraðilar hittast og fara yfir
það vítt og breitt hvernig stunda á
strandbúnað með tilliti til tækni
og aðstöðu, og vonir til að lausnir
gefist sem eru ásættanlegar,
vistvænar og sjálf bærar,“ segir
Þorleifur.
„Strandeldi er sérlega umhverf-
isvænt og með minnsta kolefnis-
spor af öllu dýraeldi í heiminum.
Því er sorglegt hvað umræða um
strandeldi hefur einkennst af
neikvæðum þáttum þess, eins
og erfðamengun og umhverfis-
mengun, því ef allt væri tekið
saman kæmi í ljós hversu vistvænt
strandeldi er þótt vissulega þurfi
að taka tillit til ákveðinna atriða.“
Tekist á við lífrænan úrgang
Í fiskeldi er mestmegnis einblínt á
þrjú atriði: erfðamengun, laxalús
og úrgang sem hleðst upp undir
sjókvíum.
„Fiskar skíta eins og aðrar líf-
verur en þegar horft er á fjóshaug
í landbúnaði er vitað að hann
verður notaður í áburð og ekki
látinn hlaðast upp. Það sama á
við í strandbúnaði; við vitum að
úrgangur af fiskeldi er gríðarlegur
og að hann hleðst upp á meðan
fiskeldi fer fram í kvíum en ekki
án inngrips og úrlausna,“ upp-
lýsir Þorleifur sem hjá Rorum
vinnur að rannsókn á hvíldartíma
botnsins undir fiskeldi í samvinnu
við Háskóla Íslands, belgíska og
hollenska háskóla, og rannsóknar-
stofnun í Noregi.
„Áður héldu menn að hafsbotn-
inn tæki við öllum úrgangi sem svo
brotnaði upp jafnóðum en magnið
sem frá eldisfiskunum kemur er
svo mikið að áhrifa gætir f ljótt og
upp hlaðast lífræn efni sem hafa
áhrif á dýraríkið undir sjókvíum.
Í fyrstu græða sumar tegundir
mikið og fjölgar gríðarlega en það
eru vísitegundir sem gefa okkur
til kynna að það er mengun frá
fiskeldinu. Smám saman hlaðast
þær upp og þá skapast hætta á því
sem ekki má gerast, að of mikið
brennisteinsvetni myndist og geti
valdið hættu,“ útskýrir Þorleifur
um brennisteinsvetni sem er ban-
eitruð lofttegund með tilheyrandi
ódaun.
„Þegar súrefni þrýtur hægist á
niðurbrotinu og að lokum deyr
allt á botninum. Til að koma í veg
fyrir þessa hættu er uppsöfnun líf-
ræns kolefnis og áhrif þess á lífríki
sjávar í námunda við sjókvíarnar
vaktað, en þegar slátrun er búin
fær svæðið hvíld. Í hvíldinni gefst
dýrum og bakteríum á botninum
tími til að nærast á lífrænum leif-
unum sem svo dreifast um sjóinn
og færa aftur heim tegundir sem
voru farnar en héldu sig í nágrenn-
inu. Svæðið nær því smám saman
ásættanlegum fjölbreytileika og
þá er hægt að hefja fiskeldi á ný,“
útskýrir Þorleifur.
„Af þessu má sjá að strandbún-
aður hefur áhrif en áhrifunum
er haldið innan marka og þegar
fiskeldinu er hætt mun svæðið
jafna sig og verða aftur náttúrulegt
svo erfitt er að sjá að þar hafi verið
eldi. Fiskeldi er því afturkræft og
við höfum séð að þetta er mögu-
legt með tilraunum okkar fyrir
austan og vestan, þar sem fjöl-
breytni dýralífs varð jafn ríkuleg
og áður.“
Hvíldartími mikilvægur
Í fiskeldi er talað um kynslóða-
skipti og tekur hver kynslóð tvö ár.
Þá eru seiði sett í eldið að vori og
slátrað að hausti árið eftir.
„Í dag eru sett stærri og stærri
seiði út í eldið til að flýta ferlinu
og minnka hættu á stroki, eða
sleppifiskum. Allt er það hluti af
vörnum við erfðamengun því það
eru eingöngu kynþroska fiskar
sem ætla sér að hrygna sem ganga
upp í árnar,“ útskýrir Þorleifur sem
vinnur nú að annarri lotu í rann-
sókn Rorum og samstarfsaðila.
„Við rannsóknirnar notum við
sérstakt kjarnatæki til að bora
ofan í leðju lífræns úrgangsins,
tökum sýni og skoðum hvar dýrin
eru stödd í leðjunni og hvernig þau
haga sér eftir því hvort fiskeldið er
mikið eða lítið. Þá kemur í ljós að
þetta er fyrst og fremst í yfirborð-
inu en þegar skítur hleðst upp og
verður of þykkur lengist hvíldar-
tíminn sem er nauðsynlegur til
að svæðið nái sér að fullu,“ segir
Þorleifur.
Umhverfisstofnun sér um
strangt eftirlit og vöktun með líf-
rænum úrgangi fiskeldis.
„Við teljum að hægt sé að gera
fiskeldi skilvirkara og mæla
hvíldartímann nákvæmar því
niðurstöður rannsókna hafa sýnt
fram á að stundum er hægt að
stytta hann. Hvíldartími upp-
safnaðra lífrænna efna fer þó eftir
magni eldisins og hve lengi það
stendur yfir og þar er enginn einn
tími réttur þótt fastatala til við-
miðunar sé eitt ár.“
Þorleifur Eiríksson er dýrafræðingur, formaður stjórnar félagsins Strandbúnaðar og framkvæmdastjóri Rorum. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Framhald af forsíðu ➛
Strandeldi er
sérlega umhverfis-
vænt og með minnsta
kolefnisspor af öllu
dýraeldi í heiminum.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RÍSLENSKUR STRANDBÚNAÐUR
2
0
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
8
-F
9
2
C
2
2
9
8
-F
7
F
0
2
2
9
8
-F
6
B
4
2
2
9
8
-F
5
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K