Fréttablaðið - 20.03.2019, Qupperneq 25
Starfsfólk Laxár
býr yfir gríðar-
legri þekkingu
og reynslu
á sínu sviði.
Allir starfsmenn
eru með tíu
til þrjátíu ára
starfsreynslu
sem tryggir
stöðugleika í
framleiðslu-
gæðum.
Hjá Laxá starfa níu
manns og eru allir
starfsmenn með tíu til
þrjátíu ára starfsreynslu
sem tryggir stöðugleika í
framleiðslugæðum.
Við hjá Laxá framleiðum náttúrulegt fiskeldisfóður fyrir allar helstu tegundir
af eldisfiski hérlendis, það er fyrir
bleikju, lax, f latfisk og regnboga-
silung. Til að tryggja hágæða-
fóður er ávallt notað fyrsta f lokks
hráefni. Helmingur hráefna í
ECO-fiskafóðri frá Laxá er inn-
lent hágæða fiskimjöl og lýsi sem
á uppruna sinn í Norður-Atlants-
hafi og auk þess er notað inn-
f lutt jurtamjöl og repjuolía til að
lækka kostnað við fóðurgerð. Til
að uppfylla þarfir markaðarins
er eingöngu notað náttúrulegt
litarefni í stað hefðbundins
litarefnis fyrir laxfiska og því
eru öll hráefni í ECO fiskafóðri
náttúruleg. Fiskafóðri frá Laxá er
ætlað að uppfylla næringarþarfir
hverrar fisktegundar og tryggja
hámarksvöxt með sem lægstum
fóðurstuðli,“ segir Gunnar Örn
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Laxár.
„Fóðurverksmiðjan Laxá var
stofnuð árið 1991 og er því orðin
28 ára rótgróið og stöndugt fyrir-
tæki. Verksmiðjan er á Akureyri en
Laxá er dótturfélag Síldarvinnsl-
unnar í Neskaupstað,“ heldur hann
áfram.
Framleiðir fyrir
innanlandsmarkað
„Laxá framleiðir um 10.000 tonn
af fiskafóðri árlega og er það
eingöngu selt innanlands með
áherslu á landeldi á seiðum og
matfiski, þar sem tæknilega getur
verksmiðjan ekki framleitt þetta
fituríka fiskafóður sem notað er
fyrir lax í sjókvíaeldi. Meðal við-
skiptavina eru þó öll stærstu fisk-
eldisfyrirtæki landsins og hefur
Laxá yfir 80% markaðshlutdeild
Náttúrulegt
fiskeldisfóður í
hágæðaflokki
Fóðurverksmiðjan Laxá hf. framleiðir og selur fóður á
innanlandsmarkaði til fiskeldisfyrirtækja. Fyrirtækið var
stofnað árið 1991 og er verksmiðjan staðsett á Akureyri.
Það framleiðir um 10 þúsund tonn af fiskafóðri á ári.
Frá verksmiðjunni á Akureyri. „Við hjá Laxá framleiðum náttúrulegt fiskeldisfóður fyrir allar helstu tegundir af eldisfiski hérlendis, það er fyrir bleikju, lax, flatfisk og regnbogasilung,“ segir Gunnar Örn framkvæmdarstjóri meðal annars.
Gunnar Örn, framkvæmdarstjóri Laxár sem framleiðir náttúrlegt fiskafóður.
Laxá framleiðir um 10.000 tonn af fiskafóðri árlega og er það eingöngu selt innanlands.
í fiskafóðri fyrir landeldi,“ segir
Gunnar Örn.
Laxá er þekkt fyrir stöðug og góð
gæði í fiskafóðri með hátt hlut-
fall fiskimjöls og lýsis, auk þess að
veita viðskiptavinum sínum góða
og sveigjanlega þjónustu.
„Hjá Laxá starfa níu manns
og eru allir starfsmenn með tíu
til þrjátíu ára starfsreynslu sem
tryggir stöðugleika í framleiðslu-
gæðum. Við hjá Laxá fylgjum
strangri gæðastefnu og notum
ekki erfðabreytt hráefni við
framleiðsluna. Allt okkar hráefni
er GMP-vottað, auk þess sem
við erum með alþjóðlega Global
GAP-gæðavottun fyrir framleiðslu
okkar,“ segir Gunnar Örn.
Vöruþróun og rannsóknir
Vöruþróun og rannsóknir eru
mikil vægur hluti af starfsemi
Laxár, enda markmiðið að fyrir-
tækið sé ávallt í fremstu röð í fram-
leiðslu á fiskafóðri. „Laxá tekur
þátt í rannsóknum með MATÍS,
Hólaskóla og Akuaplan-niva ásamt
okkar helstu viðskiptavinum í
fiskeldinu, en Laxá hefur tekið þátt
í nær öllum rannsóknum sem hafa
verið gerðar hérlendis og snerta
fóðurgerð fyrir eldisfisk. Auk þess
tekur Laxá þátt í norrænum og
evrópskum verkefnum sem eru
stærri í sniðum og er til að mynda
þátttakandi í stóru verkefni þar
sem affall úr skógariðnaði er notað
sem fæða fyrir SCP-bakteríur, sem
með gerjunarferli verða að úrvals
próteini í fóðurgerð,“ greinir
Gunnar Örn frá.
Auk innlendrar framleiðslu
flytur Laxá inn og endurselur
startfóður fyrir seiði frá Biomar og
Skretting. Einnig er f lutt inn ýmis-
legt sérfóður frá þessum aðilum og
meðal annars fóður fyrir smoltun á
laxaseiðum, fóður fyrir vatnsend-
urnýtingarkerfi í seiðastöðvum og
fóður fyrir hrognkelsi.
Laxá. Krossanes, 603 Akureyri. Sími
460 7200. Heimasíða www.laxa.is.
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXX 3 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RÍSLENSKUR STRANDBÚNAÐUR
2
0
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
8
-F
9
2
C
2
2
9
8
-F
7
F
0
2
2
9
8
-F
6
B
4
2
2
9
8
-F
5
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K