Fréttablaðið - 20.03.2019, Qupperneq 31
kosti við innkaup, samanber net-
verslun og kaup erlendis.
Eftirspurnin eftir fatnaði í Hag-
kaup til dæmis í Borgarnesi er með
þeim hætti að hún réttlætir ekki að
halda úti slíkri verslun.“
Hvernig gengur rekstur Zöru?
„Hann gengur ágætlega. Við lok-
uðum versluninni í Kringlunni árið
2017 og fjárfestum í versluninni í
Smáralind. Með þeim hætti tókst
okkur að snúa rekstrinum okkur
í hag. Zara, sem er fremsta fyrir-
tækið á þessu sviði í heiminum, er
ótrúlega flott fyrirtæki sem vinnur
vel með okkur. Verðstefnan og þær
vörur sem eru í boði eru lykillinn að
árangrinum.“
Réttlætir arðsemin það að reka
Zöru á Íslandi?
„Já, ég myndi segja það, en þetta
er krefjandi verkefni og markaður.“
Freistar það að setja Zöru í sölu?
„Það hefur ekki komið til umræðu.
Við höfum fjárfest í rekstrinum og
Zara hefur sérstöðu á markaðnum.“
Funduð þið fyrir samdrætti hjá
Zöru þegar H&M var opnuð?
„Við vorum að breyta rekstrinum
úr tveimur verslunum í eina við opn-
unina. Opnun H&M hafði ekki mikil
áhrif á rekstur Zöru. Samkeppnis-
hæfni vörumerkisins er með þeim
hætti að á flestum mörkuðum hefur
Zara yfirhöndina.“
Fjárfestar hafa sýnt Útilífi áhuga.
Hvað geturðu sagt um það?
„Við höfum verið að einfalda
rekstur Útilífs, meðal annars fækk-
að verslunum úr fjórum í tvær, og
endurnýjað útlit þeirra í Kringlunni
og Smáralind. Auk þess hefur verið
lögð vinna í að efla vörumerkið og
eftir því hefur verið tekið. Fjárfestar
hafa knúið dyra af og til og sýnt Úti-
lífi áhuga.
Hagar eru skráðir í Kauphöll og í
ljósi þess að í skoðun er hvort hægt
verði að ná saman við fjárfesta um
kaup á Útilífi þótti okkur eðlilegt að
upplýsa markaðinn um stöðu mála
á dögunum. Rekstur Útilífs er í góðu
horfi. Ef ekki fæst ásættanlegt verð
fyrir fyrirtækið rekum við það áfram
með bros á vör.“
Kaupin tóku 22 mánuði
Ræðum aðeins um samskiptin við
Samkeppniseftirlitið varðandi sam-
eininguna við Olís. Ferlið tók drjúgan
tíma.
„Það tók drjúgan tíma, mun lengri
tíma en æskilegt er. Það setur fyrir-
tækið sem er að fjárfesta og fyrir-
tækið sem er til sölu í erfiða stöðu.
Ferillinn þyrfti því að vera styttri.
Hins vegar verður engum einum
kennt um hversu langan tíma ferlið
tók.
Viðræður um sameiningu hófust
f ljótlega á árinu 2017 og ritað var
undir kaupsamning í apríl það ár.
Gild samrunatilkynning var send
til Samkeppniseftirlitsins í septem-
ber, tólf mánuðum síðar náðist sátt
við Samkeppniseftirlitið og þá hóf
óháður kunnáttumaður að meta
hæfi kaupenda að eignum sem við
urðum að selja samhliða kaupunum
á Olís. Þeirri vinnu lauk ekki fyrr
en í lok nóvember og þá var öllum
fyrirvörum aflétt. Kaupferlið sem
stjórnendur Haga unnu að tók því
22 mánuði og þar af var vinnan með
Samkeppniseftirlitinu 15 mánuðir.
Samkeppniseftirlitið var einkum
að horfa til skilgreiningar á mörkuð-
um og hvort við værum að kaupa fyr-
irtæki sem væri á markaði sem við
værum fyrir á. Jafnframt var litið til
þess hvort umsvif Haga yrðu of mikil
við kaupin. Horft var á landfræðilega
markaði, eins og Vestfirðir teljast sér
markaðssvæði, og það er tímafrekt
að rýna í alla markaði landsins. Eins
þarf Samkeppniseftirlitið ávallt að
óska eftir álitum frá keppinautum
og hagsmunaaðilum á öllum mörk-
uðum og meta hvað þeir hafa að
segja. Þetta er tímafrek vinna.“
Er þörf á Samkeppniseftirlitinu?
„Já, það er þörf á því og starfsemi
þess er mikilvæg. Það þarf að koma
í veg fyrir samkeppnisbrot og gæta
þess að fyrirtæki fari að lögum. Sam-
keppniseftirlitið sinnir f lóknum
verkefnum fyrir lítinn markað. Það
má einfalda þá vinnu og gera hana
skilvirkari, sérstaklega þegar um er
að ræða samruna sem er neytendum
til hagsbóta.
Jafnvel þótt Hagar séu stórt fyrir-
tæki á Íslandi erum við alls ekki stórt
fyrirtæki. Vinnan reyndi mikið á
starfsmenn okkar. Það starfa tólf á
skrifstofu móðurfélagsins og enginn
okkar er lögmaður, því síður er hér
rekin lögfræðideild sem getur sinnt
verkefnum á borð við þetta.
Stjórnendur fyrirtækisins eru
störfum hlaðnir við að sinna dag-
legum rekstri og samruni sem þessi
tekur mikinn tíma og orku frá þeim.
Það mættu vera skýrari leiðbein-
ingar frá Samkeppniseftirlitinu og
það hefði verið til bóta ef það hefði
komist á lausnamiðað samtal fyrr í
ferlinu.
Það þarf að auðvelda atvinnulíf-
inu að bregðast hratt við breyttum
aðstæðum, hvort sem um er að ræða
samdrátt í efnahagslífinu, innkomu
alþjóðlegra keðja á markað eða
breyttan veruleika vegna tækninýj-
unga, samanber aukna netverslun.“
Í ljósi samruna við Olís: Er einhver
framtíð í að selja bensín?
„Jarðefnaeldsneyti verður áfram
drjúgur þáttur í sölu á orkugjöfum
í einhvern tíma. Það er hins vegar
ljóst að draga mun úr sölunni. Að því
sögðu, þá er ekki handan við hornið
að hægt verði að knýja áfram vöru-
flutninga, sjávarútveg og landbúnað
með öðru en jarðefnaeldsneyti þótt
einkabíllinn og almenningssam-
göngur muni í auknum mæli verða
drifin með umhverfisvænni hætti.
Það eru mikil verðmæti fólgin
í rekstri Olís, mannauði og í þeim
staðsetningum sem fyrirtækið hefur
yfir að ráða. Hægt er að samhæfa
rekstur Olís við rekstur dagvöru sem
Hagar hafa undir höndum.“
Þróa reit í Breiðholti
Talandi um staðsetningar. Hagar
hafa hafið viðræður við Reykja-
víkurborg um þróun á landsvæði við
Stekkjarbakka. Segðu aðeins frá því.
„Hagar festu kaup á reitnum, sem
telur tæplega 20 þúsund fermetra,
fyrir fáeinum árum. Það vill svo til að
Olís er með starfsemi á svæðinu og
á næstu lóð. Eftir sameiningu fyrir-
tækjanna var ákveðið að skoða upp-
byggingu á svæðinu að nýju.
Við sjáum fyrir okkur annars
vegar allt að 400 íbúða byggð á reitn-
um og hins vegar að þar verði rekin
verslun og þjónusta. Svæðið hentar
okkar rekstri vel. Það liggur að
umferðaræðum og það er eftirspurn
eftir Bónus á svæðinu. Þá viljum við
einnig koma á fót ÓB bensínstöð.
Hefði ekki verið brugðið á það
ráð að skipuleggja svæðið af sjálfs-
dáðum hefði okkur skort tækifæri
til að opna verslun í nágrenninu.
Við sjáum fyrir okkur að geta rekið
þarna öfluga búð en auk þess eru
umtalsverð verðmæti fólgin í bygg-
ingarverkefninu sem er steinsnar frá
fyrirhugaðri Borgarlínu.“
Er uppbyggingin komin á rekspöl?
„Við erum í þann mund að fara
að kynna frekari hugmyndir fyrir
Reykjavíkurborg og erum bjartsýn
á það samtal. Það er búið að kynna
frumhugmyndir og hefja samtalið
en núna fer það vonandi á fulla ferð í
framkvæmd.“
Hvernig á að haga uppbyggingunni
á svæðinu í ljósi þess að stefnt er á að
byggja fjölda íbúða?
„Hagar munu ekki byggja og selja
íbúðir. Okkar þáttur í uppbygging-
unni er verslun og þjónusta. En það
eru verðmæti fólgin í reitnum. Þar
sjáum við fyrir okkur samstarfsað-
ila. Við gætum til að mynda selt hann
að hluta eða í heilu lagi til verktaka
eftir að nýtt skipulag hefur fengist
samþykkt.“
Hvaða verkefnum eru þið einkum í
varðandi samruna við Olís?
„Verkefnin eru fjölmörg. Það er
til dæmis unnið að því að f lytja
vöruhúsastarfsemi Olís í Aðföng,
dreif ingarmiðstöð Haga. Með
þeim hætti mun nást töluverð
hagkvæmni. Bætt vörudreifing er
grunnurinn að bættum innkaupum
og betri magnafsláttum, sem bætir
samkeppnishæfni dótturfélaganna
og gerir okkur kleift að bjóða við-
skiptavinum góðar vörur á góðu
verði. Jafnframt er unnið að því að
endurfjármagna Haga.
Við samruna við Olís var okkur
gert að selja Bónus á Hallveigarstíg.
Við höfum fengið mikil viðbrögð við
lokuninni. Það er ákall um að opna
Bónus í miðbænum. Það nægir ekki
að reka verslunina á Laugaveginum.
Við horfum því til þess að reisa Bón-
usverslun á Sæbraut ásamt ÓB stöð, á
lóð í eigu Olís, en það mun taka tíma
að vinna að þeirri uppbyggingu. Hún
yrði í göngufæri frá stórum húsum í
grenndinni.“
Agnarsmá alþjóðlega
Eru öflug vöruhús lykillinn að sam-
keppnishæfni í verslun þegar kemur
að því að bjóða gott verð á Íslandi?
„Já. Margir segja að við séum stór-
ir kaupendur á Íslandi en við erum
agnarsmáir kaupendur í alþjóð-
legu samhengi. Það að geta flutt inn
ákveðnar vörur í heilum gámi og
dreift í ólíkar verslanir skiptir veru-
lega máli. Fjöldi erlendra fyrirtækja
selur ekki til Íslands nema í gegnum
milliliði, því við erum fámenn þjóð.“
Costco kom með hvelli en nú virðist
verslunin vera á minni siglingu. Talið
er að í upphafi hafi markaðshlut-
deildin verið 15 prósent en sé nú fimm
prósent. Hvernig horfir það við þér?
„Á íslenskan mælikvarða eru
þetta umtalsverð viðskipti og virðist
heimilt að selja vörur undir kostn-
aðarverði. Við höfum til dæmis séð
íslenskar vörur verðlagðar undir
okkar kostnaðarverði. Þetta hefur
áhrif á íslenska markaðinn.
Við urðum fyrir töluverðri gagn-
rýni fyrir tveimur árum þegar næst-
stærsti smásali í heimi kom inn á
markaðinn. Fyrir þann tíma og eftir
opnunina hefur Bónus verið ódýrasti
valkosturinn á Íslandi í fjölda verðk-
annana og við bjóðum sama verð um
land allt. Ég segi það fullum fetum:
Við erum að gera margt vel og erum
stolt af því að Bónus er ódýrasti val-
kosturinn á markaði þar sem alþjóð-
legur risi keppir.“
Fyrst þú nefnir Bónus. Mín upp-
lifun er að Krónan hafi verið sprækur
keppinautur að undanförnu og betr-
umbætt verslanir sínar.
„Okkar keppinautar hafa fjár-
fest mikið í nýjum verslunum og
aukið við verslunarfermetra sína.
Við höfum hins vegar fækkað versl-
unarfermetrum um 25 þúsund á
fimm árum. Á þeim tíma var tekið til
í rekstrinum og áhersla lögð á sam-
keppnishæfni til lengri tíma. Á sama
tíma uxu okkar helstu keppinautar
og bættu við verslunum. Það er því
eðlilegt að það hafi orðið breyting á
þessum tíma.“
Voruð þið að spila varnarleik á
meðan þeir voru í sókn?
„Já, að vissu leyti varnarleik og á
sama tíma unnum við að eðlilegum
breytingum í takt við aukna sam-
keppni og breytt umhverfi.“
Hagar hafa á undanförnum árum
dregið sig að mestu út úr fataversl-
un. Áður rak samstæðan Topshop,
Debenhams, All Saints, Day, Coast,
Dorothy Perkins, Evans og Ware-
house.
Þarf að fríska upp á Bónus?
„Bónus stendur fyrir sínu og fólk
veit að hverju það gengur í Bónus.
Bónus býður lægsta vöruverð á
Íslandi og það skiptir mestu máli.
Bónusverslunin sem opnuð var í
Skeifunni í desember er vel heppn-
uð. Fyrir rúmu ári endurgerðum
við verslunina á Smáratorgi og hún
er í anda þeirrar sem er í Skeifunni.
Viðtökur sýna að viðskiptavinir eru
ánægðir með Bónus í þeirri mynd
sem það er. Áherslan er á markvisst
vöruúrval og lágt vöruverð. Það
selur enginn á dagvörumarkaði jafn
mikið af íslenskri vöru. Bónus er
jafnframt langódýrasta verslunin á
markaðnum. Þetta er það sem neyt-
endur vilja.“
Athygli vekur að hluti af sátt Haga
við Samkeppniseftirlitið vegna sam-
runa Olís var að selja verslanir Bón-
uss við Hallveigarstíg, í Faxafeni og
á Smiðjuvegi. Í kjölfarið opnuðu for-
svarsmenn Bónuss veglegri verslun
í Skeifunni, steinsnar frá Faxafeni,
og hafa í skoðun, eins og fyrr segir,
að opna búð við Sæbraut, sem er í
grennd við Hallveigarstíg.
Hvernig horfir netverslun með
matvöru við þér?
„Það styttist í að hún fari á f lug.
Vefverslun með dagvöru, hér á landi
og víða erlendis, stendur enn sem
komið er ekki undir sér. Stærsta
fyrirtækið á þessu sviði í Bretlandi,
Ocado, hefur verið rekið með tapi á
annan áratug.
Það er eðlismunur á netverslun
með fatnað og mat. Í hverri inn-
kaupakörfu með fatnað eru keyptar
færri vörur, þær kosta einhver þús-
und og framlegðin er meiri. Í matar-
körfunni er fjöldi vara sem kosta lítið
og eru með lága álagningu. Starfs-
maður þarf að tína til, segjum 25
vörur, sem kosta samanlagt mögu-
lega fimm eða tíu þúsund krónur. Því
næst þarf að pakka þeim í þrennt;
þurrvöru, kælivöru og frystivöru.
Loks þarf að keyra vörurnar heim
að dyrum. Það gengur ekki upp með
þeirri álagningu sem er í matvöru,
bæði hér og erlendis, að það kosti
ekkert aukalega að bjóða þjónust-
una.
Að þessu sögðu munum við taka
skref á þessu sviði innan ekki svo
langs tíma og munum gera það með
þeim hætti að viðskiptin verða hag-
felld fyrir fyrirtækið og okkar við-
skiptavini. Það er mikilvægt að nýta
tæknina.“
Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir að fyrir 15 árum hafi verið löng röð af þeim sem vildu opna fataverslun í Kringlunni og Smáralind. Nú sé röðin horfin. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Sjálfsafgreiðsla verði
í 18 verslunum í ár
Sjálfsafgreiðslukassar eru í níu
verslunum Haga og stefnt er á
að þeir verði í 18 verslunum á
þessu ári. „Um 34-52 prósent
afgreiðslna fara þar í gegn sem
er meira en við bjuggumst við,“
segir Finnur. Lausnin henti vel á
álagstímum og fyrir viðskipta-
vini á hraðferð sem hafi keypt
fáa hluti. „Almennt hentar þetta
vel fyrir körfu sem er með 15
stykki eða minna.“
Það sé ekki hagkvæmt að
setja upp sjálfsafgreiðslu í versl-
unum þar sem fjöldi viðskipta-
vina helst nokkuð stöðugur,
eins og á ákveðnum stöðum
á landsbyggðinni. „Það hefur
margt breyst á undanförnum
árum. Nú kunna viðskiptavinir
betur á sjálfsafgreiðslutækni.
Þetta er orðið vinsælt erlendis,
sérstaklega í Bretlandi.“
Það er ekki handan
við hornið að hægt
verði að knýja áfram vöru-
flutninga, sjávarútveg og
landbúnað með öðru en
jarðefnaeldsneyti.
MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 2 0 . M A R S 2 0 1 9
2
0
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
9
-2
5
9
C
2
2
9
9
-2
4
6
0
2
2
9
9
-2
3
2
4
2
2
9
9
-2
1
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K