Fréttablaðið - 20.03.2019, Page 32
Greenvolt er að þróa rafhlöður morgundagsins með nanótækni. Tæknin okkar mun valda straumhvörfum. Það verður
hægt að aka rafmagnsbíl á einni
hleðslu hringinn í kringum Ísland.
Draumurinn er að það verði hægt að
fljúga hringinn í kringum hnöttinn
á rafmagnsflugvél með því að nýta
sólarorku,“ segir Ármann Kojic, fram
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Á meðal fjárfesta í Greenvolt er
fjárfestingarsjóðurinn Village Glo
bal sem meðal annars er fjármagn
aður af Bill Gates, stofnanda Micro
soft; Jeff Bezos, stofnanda Amazon,
Reid Hoffmann, stofnanda LinkedIn;
Evan Williams, stofnanda Twitter,
og f leirum. Sjóðurinn fjárfestir í
fyrirtækjum sem eru að stíga sín
fyrstu skref.
Aðrir í hluthafahópnum fyrir utan
starfsmenn Greenvolt eru engla
fjárfestar, íslenskir og erlendir, auk
lögmannsstofu sem sérhæfir sig í
einkaleyfum en þeir vildu fjárfesta
í félaginu þegar þeir fóru að vinna í
einkaleyfinu. Að svo stöddu eru for
svarsmenn Greenvolt ekki reiðubún
ir að upplýsa hve miklu fé fyrirtækið
hefur safnað frá fjárfestum. „Einn
fjárfestir sagði okkur hvernig hann
hafði fjárfest í Tesla en hefði ekki
skilið stefnu fyrirtækisins nægilega
vel og hefði selt of snemma. Hann
vildi því komast inn í fjárfestahóp
Greenvolt til að gera ekki sömu mis
tök tvisvar,“ segir Ármann.
Ármann, sem er íslenskur, er með
aðsetur í Kísildalnum í Kaliforníu
en fjármálastjórinn Stuart Bron
son, sem er Breti, er með skrifstofu
í Sjávarklasanum á Grandavegi. Það
er við hæfi þegar rætt er við stórhuga
frumkvöðla í fundarherbergi þeirra
hér á landi, að Íslendingurinn er
rammaður inn í iPad enda staddur
í Bandaríkjunum en Bretinn situr
með blaðamanni vopnaður tebolla.
Ármann viðurkennir að fyrra
bragði að hann hafi tamið sér
hugsunarhátt tæknifólksins í Kísil
dalnum. Segja má að við það hafi
hann sleppt af sé beislinu, leyfi sér
að hugsa mun stærra en áður og hafi
mikla ástríðu fyrir verkefninu. Frá
sögnin ber það með sér.
Tæknin mun valda straumhvörfum
Greenvolt er að þróa nýja tegund rafhlaða. Draumurinn er að það verði hægt að fljúga hringinn í kringum hnöttinn á rafmagns-
flugvél með því að nýta sólarorku. Á meðal fjárfesta er sjóður sem fjármagnaður er af Bill Gates, Jeff Bezos og fleirum.
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Stuart Bronson, fjármálastjóri Greenvolt, segir að ferjur í Noregi verði að vera rafdrifnar frá árinu 2026. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI.
Ég spjallaði til að
mynda við Michael
Bloomberg, stofnanda
Bloomberg og fyrrverandi
borgarstjóra New York, um
rekstur Greenvolt.
Ármann Kojic,
framkvæmdastjóri Greenvolt
ERT ÞÚ
AÐ RÁÐA?
Vantar þig háskólamenntað starfsfólk?
Kynntu þér sumarátak
Vinnumálastofnunar og BHM
á vinnumalastofnun.is
Tæknin virkar
Bronson segir að Greenvolt hafi nú
þegar framleitt rafhlöðu. „Við höfum
sýnt fram á að tæknin virkar, nú er
að bæta vöruna og við viljum gera
það í samstarfi við önnur fyrirtæki
sem þurfa á tækninni að halda.“
Ármann segir að Village Global
byggi á öflugu tengslaneti þeirra sem
leggi sjóðnum til fé. „Stofnendurnir
rannsökuðu hvað skeri úr um hvort
sprotafyrirtæki nái miklum árangri.
Lykilstefið er tengslanetið. Af þeim
sökum er stefna Village Global að
frumkvöðlar sem sjóðurinn styðji
við bakið á geti leitað ráða til fjár
festa sjóðsins sem allir eru reyndir
úr viðskiptalífinu.
Við erum að keppa við olíurisa. Ef
við eigum að fara alla leið þurfum
við stuðning frá mönnum á borð við
þessa sem áður hafa verið nefndir.
Við getum leitað til tengslanetsins
þegar á þarf að halda.
Ég spjallaði til að mynda við Mich
ael Bloomberg, stofnanda Bloom
berg og fyrrverandi borgarstjóra
New York, um rekstur Greenvolt. Bill
Gates hitti fyrir fjórum mánuðum
frumkvöðla á vegum Village Global
en við ákváðum að bíða með að hitta
hann því á þeim tíma vorum ekki
komnir nógu langt á okkar vegferð.
Prufuútgáfan af rafhlöðunni hafði
ekki litið dagsins ljós,“ segir Ármann.
Frumkvöðlarnir segja frá raf
hlöðunni á mannamáli. „Það
þekkja allir hvað raf hlöður eru
lélegar. Síminn er stöðugt raf
magnslaus og marga langar í raf
magnsbíl en drægð er ekki nægt.
Hugmyndin okkar er að rafhlaðan
í símanum endist í mánuð og mögu
legt verði að hlaða rafmagnsbílinn
jafn hratt og þegar dælt er bensíni á
hann. Nú tekur það lengri tíma því
hefðbundnar rafhlöður ráða ekki
við hraðhleðslu.
Í stað þess að vinna áfram með
hefðbundnar klunnalegar rafhlöður
fórum við þá leið að nýta svokall
aða „solid state“ tækni. Það er hægt
að vefja henni eins og fyrir töfra í
koltrefjar. Það er efni sem er mikið
nýtt við smíði bíla, báta og flugvéla.
Nú eru rafhlöður í rafmagnsbílum
400 kíló. Það er ígildi þriggja fílsunga
í skottinu. Okkar hugmynd er að
vefja batteríi sem er mun léttara í
húdd bílsins, hurðarkarma og ýmis
legt annað sem gert er úr koltrefjum.
Solid state tæknin gerir það líka að
verkum að hægt verður að hlaða
bílinn á ógnarhraða, jafn hratt og að
dæla bensíni á hann,“ segir Ármann.
Bronson segir að vandinn við
hefðbundnar rafhlöður sé að ekki
sé hægt að hlaða þær hratt því þá
springi þær. Hleðslutæki dragi því
úr spennunni sem sé hleypt í raf
hlöðuna. „Það takmarkar mjög
notkun hefðbundinna rafhlaða og
því aukast notkunarmöguleikar
verulega þegar þeirri hindrun er rutt
úr vegi. Solid state rafhlöður hitna
heldur ekki.“
Þróa rafmagnsbáta
Greenvolt á í samstarfi við verk
og ráðgjafarfyrirtækið Novis, sem
starfar í sjávarútvegi og er sömu
leiðis með aðsetur í Sjávarklasan
um, um að þróa rafmagnsbát. „Það
er hægt að koma rafhlöðunni fyrir
í skipsskrokknum en þar er pláss
sem annars hefði ekki nýst. Hug
myndin er að smíða fyrst minni
strandveiðibáta og f lutningabáta.
Hægt og rólega er svo hægt að færa
sig upp í stærri skip.
Ýmsir bátar þurfa ekki að sigla
langar leiðir. Í ofanálag munu ferjur
í Noregi þurfa að ganga fyrir raf
magni frá árinu 2026. Þær henta
okkur vel því þær sigla stuttar vega
lengdir og hægt verður að hlaða þær
afar hratt,“ segir Bronson.
Starfsmenn Greenvolt eru átta.
„Við erum samblanda af Íslending
um, Bretum og Króötum. Afi minn
var Serbi og því er eftirnafn mitt
sérkennilegt. Við erum einnig með
starfsemi þar í landi,“ segir Ármann.
Bronson segir að viðskiptaþróun
in fari fram á Íslandi en rætt sé við
fjárfesta og mögulega samstarfsað
ila í Bandaríkjunum. „Rannsóknar
stofan er á ótilgreindum stað,“ bætir
Ármann við.
Að hans sögn er teymið blanda
af vísindamönnum sem hugsa með
hefðbundnum hætti og þeim sem
leyfa sér að dreyma. „Það er mikil
væg blanda þegar reynt er á þanþol
þess sem er mögulegt.“
Ármann segir að þegar vísinda
stofnun var að staðfesta einkaleyfið
í Bandaríkjunum hafi starfsmenn
hennar byrjað á að kenna þeim
grundvallaratriði í eðlisfræði enda
fór tækni Greenvolt á svig við ýmis
viðtekin vísindalögmál. „Eftir að
hafa vottað vinnuna okkar báðust
þeir afsökunar.“
2 0 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN
2
0
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
9
-2
0
A
C
2
2
9
9
-1
F
7
0
2
2
9
9
-1
E
3
4
2
2
9
9
-1
C
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K