Fréttablaðið - 20.03.2019, Síða 40
AMY GERÐI
ÞETTA MEÐ SVO
SÉRSTÖKUM
HÆTTI AÐ ÉG
HELD AÐ HÉR Á
LANDI SÉU
ENGIN FOR-
DÆMI FYRIR
SLÍKU.
Gjöfin frá Amy Engil-berts er heiti sýn-ingar í Listasafni Íslands sem stendur til 12. maí. Amalie Engilberts var dóttir
Jóns Engilberts listmálara og Tove
Engilberts, fædd árið 1934 í Dan-
mörku og lést í desember árið 2007.
Amy eins og hún var kölluð, var vin-
sæl spákona hér á landi og fékkst við
dulspeki í fjölda ára.
„Amy lést árið 2007 og stuttu
síðar kom í ljós að hún hafði ánafn-
að Listasafni Íslands fjármuni til
listaverkakaupa, auk nokkurra
listaverka úr eigu sinni. Amy gerði
þetta með svo sérstökum hætti að
ég held að hér á landi séu engin for-
dæmi fyrir slíku. Fjármunina átti að
setja í sjóð í hennar nafni og í 10 ár
ætti að festa kaup á nýrri íslenskri
myndlist að vali safnsins,“
segir Harpa Þórsdóttir,
safnstjóri Listasafns
Íslands. „Þarna var
Amy ekki að setja
hömlur, hún hefði
vel getað sett skil-
yrði um það hvaða
verk saf nið ætti að
kaupa. Það gerði hún ekki
og það sýnir hversu mikið
örlæti og stórhugur bjó þarna að
baki. Hún setti þó einhverjar kvaðir
sem hægt var að ganga að og þar á
meðal var sú að sett yrði upp sýning
á verkunum að 10 árum liðnum.
Innkaupanefndir safnsins hafa séð
um kaupin og fyrsta listaverkið var
keypt árið 2009 en það var verk
eftir Eygló Harðardóttur sem var
útnefnd myndlistarmaður ársins á
dögunum. Tvö síðustu verkin voru
síðan keypt í upphafi árs.“
Þrjár kynslóðir listamanna
Verkin sem keypt voru og eru nú á
sýningunni eru öll eftir núlifandi
listamenn. Þeir eru: Bjarki Braga-
son, Brynhildur Þorgeirsdóttir,
Eygló Harðardóttir, Guðmundur
Thoroddsen, Helgi Þórsson, Hildi-
gunnur Birgisdóttir, Hulda Vil-
hjálmsdóttir, Jeannette Castioni,
Jón Axel Björnsson, Magnús Helga-
son, Pétur Thomsen, Sigga Björg
Sigurðardóttir og Þórdís Aðalsteins-
dóttir.
„Þetta eru svona þrjár kynslóðir
listamanna, þeir elstu eru fæddir
kringum 1955 og yngsti listamað-
urinn er fæddur 1983, ferill lista-
mannanna er mislangur eins og
gefur að skilja. Verkin eru mjög ólík
en rauði þráðurinn er Amy Engil-
berts. Sýningin ber með sér hversu
góða myndlistarmenn við eigum.
Verkin eru mjög sterk, fjölbreytt og
af miklum gæðum,“ segir Harpa.
Ólík nágrannaþjóðum
Spurð hvort það sé ekki sérlega
gleðilegt fyrir safnið að hafa fengið
þessa aukafjármuni til
kaupa á listaverkum segir Harpa:
„Það flaug engill yfir safnið. Ég fór
einu sinni inn í safn í miðri Amst-
erdam og safnstjórinn sagði: „Þetta
var lítið einkasafn sem var í bílskúr
í úthverfi borgarinnar. Svo kom
maður sem átti peninga. Hann
var engillinn sem f laug yfir þetta
safn.“ Mér þótti þetta fallega sagt.
Stundum fljúga englar yfir söfn og
það gerðist hjá okkur hér í Lista-
safni Íslands.
Ég segi stundum þegar ég lýsi
starfi mínu sem safnstjóri að það
er tvennt sem fyllir mann verulega
góðri orku og gleður hjartað. Það
er þegar englar f ljúga yfir söfn og
þegar myndast biðraðir inn á söfn.
Þetta tvennt hef ég upplifað.“
Spurð hvort eitthvað sé um það
að einstaklingar styrki safnið
segir Harpa: „Einstaklingar og fjöl-
skyldur hafa allt tíð styrkt Listasafn
Íslands með ýmsum hætti, sér-
staklega hvað varðar gjafir á lista-
verkum, af miklum rausnarskap.
Við erum ríkisstofnun, rekin að
hluta með fjármunum frá ríkinu og
að hluta með þeim tekjum sem við
öflum sjálf, til dæmis með aðgangs-
eyri að sýningum og viðburðum
okkar. Það er ekki endilega greið
leið að styrktaraðilum, við erum
ólík nágrannaþjóðum okkar sem
eiga ýmsa sjóði sem beina sjónum
að stofnunum eins og okkar.“
Það flaug engill
yfir safnið
Amy Engilberts ánafnaði Listasafni Ís-
lands fjármuni til listaverkakaupa.
Nú stendur yfir sýning í safninu á þeim
verkum sem keypt voru fyrir gjöfina.
„Verkin eru mjög sterk, fjölbreytt og af miklum gæðum,“ segir Harpa. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
130 verk
Hjá Listasafni Íslands er komin
út bókin 130 verk úr safneign
Listasafns Íslands. Eins og
titillinn gefur til kynna er þar
að finna 130 listaverk sem
raðað er eftir aldri og hverju
verki fylgir greinargóður texti á
íslensku og ensku.
„Þessi bók er skrifuð af
sérfræðingum, mestu leyti sér-
fræðingum safnsins. Halldór
Björn Runólfsson fyrrverandi
safnstjóri valdi verkin ásamt
ritnefnd,“ segir Harpa Þórs-
dóttir. „Þessi verk eru vörður
í íslenskri listasögu. Þau eru
ólík og þarna eru ekki bara
alþekktustu verk þjóðarinnar.
Það verður gaman fyrir marga
að kynnast verkum sem þeir
þekktu ekki áður. Í bókinni er
einungis eitt verk eftir hvern
myndlistarmann, en bækur
þessarar gerðar eru vinsæl vara
í safnbúðum listasafna. Við
eigum af nægu að miðla
svo framhald gæti
orðið á svona
útgáfu hjá
okkur.“
Verkin eru öll
eftir núlifandi
listamenn af
þremur kynslóð-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
2 0 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
0
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
9
-0
7
F
C
2
2
9
9
-0
6
C
0
2
2
9
9
-0
5
8
4
2
2
9
9
-0
4
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K