Fréttablaðið - 20.03.2019, Síða 41
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
20. MARS 2019
Hvað? Tónleikar
Hvenær? 12.15
Hvar: Salurinn Kópavogi
Fiðluleikarinn Sif Tulinius og
píanóleikarinn Sólveig Anna Jóns-
dóttir leiða tónleikagesti Salarins
í ferðalag um Frakkland, Þýska-
land og Ítalíu. Þær leika verk eftir
Leclair, Beethoven og Czardas eftir
Monti og spanna tónleikarnir því
tímabilið frá barrokk til róman-
tíkur. Tónleikarnir eru liður í dag-
skrá Menningarhúsanna í Kópa-
vogi, Mennning á miðvikudögum
sem fer fram í hverri viku. Allir
velkomnir, aðgangur ókeypis.
Hvað? Málþing í tilefni af dómi
Mannréttindadómstóls Evrópu
Hvenær? 12-13.30
Hvar: Askja, salur N-132, Sturlu -
götu 7, Reykjavík
Lagastofnun Háskóla Íslands
efnir til málþings í tilefni af dómi
Mannréttindadómstóls Evrópu.
Framsögumenn verða Davíð Þór
Björgvinsson, dómari í Lands-
rétti, Björg Thorarensen prófessor,
Trausti Fannar Valsson dósent,
Kristín Benediktsdóttir dósent og
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, héraðs-
dómari og formaður Dómara-
félagsins.
Hvað? Myndakvöld Ferðafélags
Íslands
Hvenær? 20
Hvar: Mörkin 6, Reykjavík
Sigurjón Pétursson ljósmyndari
verður með sýningu af slóðum
Árbókar 2019 sem nefnist Mos-
fellsheiði, landslag, leiðir og saga.
Eftir hlé verður Gísli Óskarsson
með frásögn af dagsferð sem
lengdist í annan endann. Mynda-
sýning í minningu Jóhannesar
Jónssonar rafvirkja. Aðgangseyrir
kr. 600. Innifalið kaffi og kleinur
í hléi.
Hvað? Kvartett Péturs Östlund
Hvenær? 21
Hvar: Kaldalónssalur Hörpu
Jazzklúbburinn Múlinn, ný-krýnd-
ur verðlaunahafi Íslensku tónlist-
arverðlaunanna, heldur áfram með
vordagskrá sína sem að þessu sinni
fer fram í Kaldalónssal, Hörpu. Á
tónleikunum í kvöldkemur fram
kvartett trommuleikarans Péturs
Östlund. Með honum leika saxó-
fónleikarinn Sigurður Flosason,
Eyþór Gunnarsson leikur á píanó
og bassaleikarinn Gunnar Hrafns-
son. Miðaverð er 2.500 krónur og
1.500 kr. fyrir nemendur og eldri
borgara. Miðar fást í miðasölu
Hörpu, harpa.is og tix.is.
Capernaum (eng sub) ....................... 17:30
Brakland (danish w/eng sub) ....... 18:00
*Taiwan Film Festival - Sérverð 800 kr*
*Warriors of Rainbow (eng sub) 19:00*
FYRIR: Fordrykkur + EFTIR: leikstjóra Q&A
Birds of Passage (ice sub) ........... 20:00
Taka 5 // Take 5 (eng sub) ........... 20:00
Arctic (ice sub)....................................... 22:00
Birds of Passage (eng sub) ..........22:15
Free Solo (english - no sub) ..........22:30
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
Aðalfundur Símans hf.
verður haldinn fimmtudaginn 21. mars 2019
kl. 10:00 að Nauthól við Nauthólsvík
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endur-
skoðanda, lagður fram til staðfestingar. Ákvörðun um ráðstöfun
hagnaðar félagsins á reikningsárinu.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs.
4. Kosning tveggja einstaklinga í tilnefningarnefnd.
5. Kosning stjórnar félagsins.
6. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins sem og
þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd fyrir störf þeirra.
8. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
9. Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum
skv. 55. gr. hlutafélagalaga og framkvæmd endurkaupaáætlunar.
Verði tillagan samþykkt felur það í sér að heimildarinnar
verður getið í sérstökum viðauka við samþykktir félagsins
og skal viðaukinn vera hluti af samþykktunum þann tíma
sem heimildin er í gildi, sbr. grein 8.1 samþykkta félagsins.
10. Önnur mál.
Reykjavík, 20. mars 2019,
Stjórn Símans hf.
BÆKUR
Húðflúrarinn í Auschwitz
Höfundur: Heather Morris
Þýðandi: Ólöf Pétursdóttir
Útgefandi: Forlagið
Blaðsíður: 298
Skáldævisagan Húðf lúrarinn í Auschwitz kom út á frum-málinu fyrir rúmu ári. Verkið
leit dagsins ljós í íslenskri þýðingu
fyrr á þessu ári. Um er að ræða skál-
dævisögu skrifaða af hinni nýsjá-
lensku Heather Morris, byggða á
frásögnum slóvakíska gyðingsins
Ludwigs Eisenberg frá árum hans í
útrýmingarbúðum nasista. Það er
ýmislegt sem gerir Húðflúrarann í
Auschwitz frábrugðna öðrum frá-
sögnum af helförinni, en helst er
það að verkið er í grunninn ástar-
saga tveggja fanga úr búðunum.
Aðalsöguhetjan, Ludwig eða Lale,
kemur til Auschwitz árið 1943. Fyrir
röð tilviljana fær hann það verkefni
að húðf lúra númer á aðra fanga
í búðunum. Hann kynnist hinni
ungu Gitu, þegar hann fær það
verkefni að húðf lúra fanganúmer
á hana.
H ú ð f l ú r a r i n n í
Auschwitz verður strax
hugfanginn af ungu,
ókunnugu konunni og
fella þau hugi saman,
mitt í skelfingu fanga-
búðanna. Vegna starfs
síns í búðunum nýtur
Lale ýmissa „fríð-
inda“ og tekst meðal
annars að smygla
inn í búðirnar lyfj-
um og mat til þess
að halda sjálfum
sér, en helst öðrum,
á lífi. Hryllingurinn
og myrkrið í verk-
inu víkur fyrir voninni og
hinni mannlegu þrá til að lifa af og
elska í búðunum sem brenndar eru
í manna minni og saga hinna ungu
elskenda er stórmerkileg.
En þrátt fyrir að saga þeirra Lale
og Gitu sé mögnuð þá skilar verkið
henni ekki fyllilega. Bókin er byggð
upp eins og nokkuð einfaldur reyf-
ari eða ódýr ástarsaga sem maður
finnur rykugan uppi í bústað. Sam-
tölin eru einföld og oft, sérstaklega
í síðari hluta verksins, tilgerðarleg.
Lesanda þyrstir eftir meiri
dýpt í umhverfið, allar
litlu frásagnirnar í
verkinu og samtölin.
Á sama tíma nær
verkið ekki að mála upp
sterka mynd af Gitu.
Lesandinn fær einungis
að sjá hana flata, í gegn-
um augu Lale. Verkið
er að sjálfsögðu skrifað
út frá frásögnum Lale,
svo það er að vissu leyti
skiljanlegt en á sama tíma
gerir höfundur tilviljana-
kenndar tilraunir til að
skrifa út frá sjónarhorni
Gitu og mistekst það.
Verkið gerir sögu Gitu og Lale
engan veginn fyllilega skil. Undir-
rituð getur ekki annað en óskað
þess að sögupersónur væru enn á
lífi til þess að hægt væri að gera aðra
tilraun til að skrifa sögu þeirra.
Bryndís Silja Pálmadóttir
NIÐURSTAÐA: Mögnuð saga í litlausum
búningi.
Elskendur í útrýmingarbúðum
Björg Thorarensen prófessor er einn framsögumanna í Öskju. MYND/VALLI
Pétur Östlund mætir með kvartett
sinn í Kaldalónssal Hörpu.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M I Ð V I K U D A G U R 2 0 . M A R S 2 0 1 9
2
0
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
9
-1
6
C
C
2
2
9
9
-1
5
9
0
2
2
9
9
-1
4
5
4
2
2
9
9
-1
3
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K