Fréttablaðið - 13.04.2019, Side 8
VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími: 510 1700 • vr@vr.is • vr.is
Kjósum um
kjarasamninga VR
Kynntu þér nýja kjarasamninga VR
og greiddu þitt atkvæði rafrænt á vr.is
Atkvæðagreiðslu lýkur
mánudaginn, 15. apríl kl. 12.00 á hádegi.
Þitt atkvæði skiptir máli.
DÓMSMÁL Landsréttur hefur þyngt
fangelsisrefsingu manns úr fjórum
árum í sjö vegna kynferðisbrota
gegn barnungum dætrum sínum
tveimur og fyrir brot gegn nálg-
unarbanni.
Maðurinn var ákærður fyrir kyn-
ferðisbrot gegn stúlkunum í fjórum
liðum en var sýknaður að hluta í
héraði, meðal annars á þeim grund-
velli að frásögn eldri stúlkunnar
þætti ekki nægilega nákvæm og
afdráttarlaus og spurningar lög-
reglu hefðu verið leiðandi. Var
maðurinn af þessum sökum sýkn-
aður í héraði af ákæru um að hafa
haft samræði við stúlkuna í um eða
yfir tíu skipti á nokkurra ára tíma-
bili.
Stúlkan gaf viðbótarskýrslu fyrir
Landsrétti og að mati réttarins var
frásögn hennar trúverðug. Ekkert
væri fram komið í málinu, annað
en neitun ákærða, sem bent gæti til
þess að stúlkan gæfi rangan fram-
burð um brot mannsins. Sýknu
héraðsdóms á umræddum ákæru-
lið var því snúið við og maðurinn
sakfelldur fyrir brotin gegn eldri
dótturinni. Þá var sakfelling héraðs-
dóms staðfest um ítrekuð kynferðis-
brot gagnvart yngri dótturinni sem
framin voru þegar hún var á aldr-
inum sjö til níu ára.
Sami maður var fyrir nær 30 árum
dæmdur til fangelsisvistar fyrir kyn-
ferðisbrot gegn elstu dóttur sinni,
hálfsystur stúlknanna tveggja. – aá
Faðir fær sjö ára fangelsi
fyrir brot gegn dætrum
Landsréttur þyngdi dóm héraðsdóms um þrjú ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
BRETLAND Nigel Farage, fyrrverandi
formaður Sjálfstæðisf lokks Bret-
lands (UKIP) og einn helsti hvata-
maður Brexit, tilkynnti í gær um
stofnun nýs stjórnmálaflokks. Nýi
f lokkurinn ber hið einfalda nafn
Brexit Party, eða Útgönguflokkur-
inn, og stefnir á þátttöku í væntan-
legum Evrópuþingskosningum sem
Bretar þurfa að öllum líkindum að
taka þátt í í maí þar sem útgöngunni
úr Evrópusambandinu hefur verið
frestað.
Þessi frestun og pattstaðan sem
ríkir í Brexit-málum er hvatinn að
stofnun f lokksins. Farage hefur
ítrekað talað um að breska þingið
sé að „stela Brexit af þjóðinni“.
Stefnumálin verða þau sömu og
hjá UKIP, sagði Farage við BBC. „En
þegar horft er til mannskapsins er
mikill munur. UKIP hefur átt erfitt
með að laða til sín gott fólk og öfga-
menn hafa svert vörumerkið.“ – þea
Farage stofnar
nýjan flokk
Farage hefur kannski einhvern
tímann mætt í Brexit-partí. Nor-
dicphotos/AFP
STJÓRNMÁL Gunnar Bragi Sveins-
son, þingmaður og þingflokksfor-
maður Miðf lokksins, er kominn
aftur til starfa á Alþingi eftir að hafa
verið í veikindaleyfi undanfarna
daga. Unnur María Óskarsdóttir,
varaþingmaður Miðflokksins, mun
því víkja af þingi.
Gunnar Bragi er einn níu þing-
manna sem tóku sæti á Alþingi á ný
í gær, ýmist eftir ferðalög eða veik-
indi. Auk Gunnars
Braga tóku tveir
aðrir þingmenn
M i ð f l o k k s i n s
sæti á ný, þeir
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson og
Bergþór Ólason.
Næsti þing-
fundur verður
haldinn mánu-
daginn 29. apríl.
– khn
Gunnar Bragi
tekur sæti á
þingi á ný
K JARAMÁL Hjúkrunarráð Land-
spítala skorar á samningsaðila í
komandi kjaraviðræðum hjúkr-
unarfræðinga að hafa að leiðar-
ljósi skort á hjúkrunarfræðingum
á Landspítala. „Nauðsynlegt er að
leitað verði allra mögulegra leiða
til að bæta kjör og starfsumhverfi
hjúkrunarfræðinga,“ sagði í álykt-
un sem ráðið sendi frá sér í gær.
Úrskurður gerðardóms um kjör
hjúkrunarfræðinga frá árinu 2015
rann út um mánaðamótin. Kjara-
deilan fyrir fjórum árum var afar
strembin og eftir tæplega þriggja
vikna verkfall setti Alþingi lög-
bann á verkfallið, sem og lengra
verkfall BHM.
Að því er kom fram í ályktun
hjúkrunarráðsins bitnar skortur
á hjúkrunarfræðingum á Land-
spítala einna verst á bráðamót-
tökunni. Þar hafa legið að meðal-
tali 20 til 30 sjúklingar undanfarið
ár sem bíða eftir að komast á legu-
deild og er meðaldvalartími inn-
lagðra á bráðamóttökunni nú um
24 klukkustundir.
Miðað er við að sjúklingar dvelji
ekki lengur en í sex tíma á bráða-
móttöku og sagði í ályktuninni
að rannsóknir sýndu að óþarf-
lega löng dvöl gæti haft alvarlegar
af leiðingar fyrir sjúklinga.
„Viðunandi mönnun hjúkrunar-
fræðinga er grundvallarforsenda
þess að Landspítali geti sinnt lög-
bundnu hlutverki sínu. Til að ná
fram viðunandi mönnun er nauð-
synlegt að bæta kjör og starfsum-
hverfi þessarar lykilstéttar,“ sagði
í ályktuninni aukinheldur.
Kjaraviðræður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga og samninga-
nefndar ríkisins eru hafnar en aðil-
ar hittust síðast í byrjun vikunnar.
Næsti fundur er áformaður strax
eftir páska. Þá eru viðræður hafnar
við Reykjavíkurborg.
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður
félagsins, sagði fyrr í vikunni að
lítið væri að frétta af viðræðunum.
Staðreyndin væri sú að beðið hefði
verið eftir því að kjarasamningar
tækjust á almenna vinnumark-
aðnum. Nú væri hins vegar hægt
að setja aukinn kraft í vinnuna.
Ljóst er að staðan á Landspítala
er slæm þegar kemur að mönnun
hjúkrunarfræðinga. Eftir fall WOW
air bárust af því fréttir að hjúkr-
unarfræðingar, sem höfðu fært sig
yfir í störf f lugfreyja hjá félaginu,
væru farnir að hafa samband til að
spyrjast fyrir um laus störf.
Anna Sig r ún Baldursdóttir,
aðstoðarmaður forstjóra Land-
spítalans, sagði þá að brýn þörf
væri fyrir um eitt hundrað hjúkr-
unarfræðinga til að halda uppi
þeirri starfsemi sem spítalinn ætti
að sinna. Enn f leiri hjúkrunarfræð-
inga vantaði hins vegar til þess að
hægt væri að sinna öllu sem spítal-
inn vildi gera.
thorgnyr@frettabladid.is
sighvatur@frettabladid.is
Samningsaðilar hafi skort á
hjúkrunarfræðingum í huga
Hjúkrunarráð Landspítalans hefur áhyggjur af skorti á hjúkrunarfræðingum á spítalanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hjúkrunarráð Land
spítala sendi í gær frá
sér áskorun þar sem
skorað er á samnings
aðila í komandi kjara
viðræðum hjúkrunar
fræðinga að hafa skort
á hjúkrunarfræðingum
á spítalanum að leiðar
ljósi. Gerðardómur frá
2015 er runninn út og
viðræður við samninga
nefnd ríkisins hafnar.
1 3 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
4
-2
0
1
9
1
1
:2
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
F
-9
8
2
C
2
2
C
F
-9
6
F
0
2
2
C
F
-9
5
B
4
2
2
C
F
-9
4
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K