Fréttablaðið - 13.04.2019, Side 62
Stjörnugrís hf, sem er eitt af
leiðandi fyrirtækjum í
kjötiðnaði á Íslandi,
auglýsir eftir kjötiðnaðarmönnum og mönnum vönum
kjötskurði til framtíðarstarfa.
Umsóknarfrestur er til 17. Apríl.
Vinsamlegast sendið umsóknir og fyrirspurnir
á leifur@svinvirkar.is
Lausar stöður
grunnskólakennara í
Stóru-Vogaskóla
Stóru-Vogaskóli óskar eftir að ráða grunnskólakennara
í eftirfarandi stöður:
• Umsjónarkennslu
• Náttúrufræði
• Heimilisfræði
• Smíði
• Textíl
• Sérkennslu
Stóru-Vogaskóli er 170 barna grunnskóli þar sem skóla-
starf er í senn metnaðarfullt og faglegt. Einkunnarorð
skólans eru virðing, vinátta og velgengni sem endur-
speglast í daglegu starfi í skólanum. Í skólanum er góður
starfsandi og hefur skólinn á að skipa öflugu og
áhugasömu starfsfólki.
Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í nálægð við
fjölbreytta náttúru. Stóru-Vogaskóli er grænfánaskóli.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf sem grunnskólakennari
• Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
• Færni í samvinnu og teymisvinnu
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
• Ábyrgð og stundvísi
• Áhugi á að starfa með börnum
Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á póstfangið
skoli@vogar.is fyrir föstudaginn 27. apríl 2019.
Nánari upplýsingar veita Hálfdan Þorsteinsson skólastjóri
og Hilmar Egill Sveinbjörnsson aðstoðarskólastjóri
í síma 440-6250.
Til þjónustu reiðubúin
Verið velkomin í öflugt lið fagfólks á HSS!
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja leitar að metnaðaðarfullum
einstaklingum til framtíðarstarfa á spennandi vinnustað þar
sem áhersla er á góða þjónustu, þverfaglega teymisvinnu og
jákvæðan starfsanda.
• Hjúkrunarfræðingar
• Sálfræðingar
• Sérfræðingar í heimilislækningum
• Barnageðlæknir
• Geðlæknir
Frekari upplýsingar á Starfatorgi og á vef HSS.
www.skagafjordur.is
Leikskólastjóri óskast til starfa
Vilt þú vera hluti af öflugu stjórnendateymi í leik- og grunnskólum
Skagafjarðar? Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir stöðu leikskólastjóra
lausa til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá 1. júní 2019 eða eftir
samkomulagi. Leitað er að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til að
leiða skólastarfið með jákvæðum hætti, stilla saman strengi starfsmanna
og heimila og vera tilbúinn til að vinna í teymum með sérfræðingum
skólaþjónustu og yfirstjórn skólamála í héraðinu. Hann þarf að vera
framsýnn, lausnamiðaður, hugmyndaríkur og umbótasinnaður. Ítarlegri
upplýsingar um starfið auk menntunar- og hæfniskröfur má finna á
heimasíðu sveitarfélagsins.
Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2019.
Nánari upplýsingar veitir Herdís Á Sæmundardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma
455 6000 eða has@skagafjordur.is Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í
gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is
(laus störf). Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.
Laus er til umsóknar staða skólastjóra Dalvíkurskóla
Dalvíkurskóli er 220 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru: Þekking og færni, virðing og vellíðan. Skólinn flaggar Grænfána og vin-
nur eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar. Skólastarfið byggist á teymisvinnu og að nám og kennsla sé ávallt einstaklingsmiðað með
áherslu á snemmtæka íhlutun. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn til að ganga glaður til verka og leiða af dugnaði öflugt skólasamfélag
með samstöðu, jákvæðni og árangur að leiðarljósi.
Starfssvið:
l Að veita skólanum faglega forystu og leiða þróun skólastarfs til framtíðar í samræmi við skólastefnu Dalvíkurbyggðar, Aðalnámskrá
grunnskóla og lög um grunnskóla
lAð stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans
lAð bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
lKennaramenntun og leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi er skilyrði
lFramhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- og menntunarfræða er kostur
lÞekking á áætlanagerð, fjármálastjórnun og stefnumótunarvinnu er kostur
lReynsla á sviði stjórnunar og faglegrar forystu menntastofnana er kostur
lFrumkvæði, leiðtogahæfni og góðir skipulagshæfileikar
lFramúrskarandi færni í samskiptum
lGóð íslenskukunnátta og færni til að miðla upplýsingum
Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra framtíðarsýn í skólamálum og er skapandi og metnaðarfullur. Staðan er laus frá 1. ágúst 2019.
Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsókn þarf að fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, upplýsingar um frumkvæði á sviði skólamála og
annað er málið varðar (kynningarbréf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við hvetjum bæði konur
og karla til að sækja um starfið.
Dalvíkurbyggð er 1900 manna sveitarfélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og
lærdómssamfélag og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi. Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar eru með því
besta sem gerist hér á landi, jafnt sumar sem vetur. Dalvíkurbyggð er heilsueflandi samfélag. Sveitarfélagið er framsækið og leggur metnað
sinn í að veita íbúum góða þjónustu
Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2019
Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar, netfang
gisli@dalvikurbyggd.is eða í símum 4604916 og 8631329. Umsókn ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi skal
sent á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is.
Skólastjóri Dalvíkurskóla
1
3
-0
4
-2
0
1
9
1
1
:2
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
F
-C
4
9
C
2
2
C
F
-C
3
6
0
2
2
C
F
-C
2
2
4
2
2
C
F
-C
0
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K