Fréttablaðið - 13.04.2019, Síða 66
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu íslenska ríkisins. Meginmarkmið bankans er
að stuðla að stöðugu verðlagi. Seðlabankinn skal enn fremur stuðla að fjármálastöðugleika.
Þá sinnir Seðlabankinn jafnframt viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðla-
banka, svo sem að varðveita gjaldeyrisvarasjóð og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi.
Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt
starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, þekkingu, sveigjanleika og jákvæðum sam-
skiptum.
Helstu verkefni:
• Umsjón með nýmiðlun í kynningarstarfi bankans.
• Nýsköpun í upplýsinga- og kynningarefni bankans.
• Gerð og miðlun upplýsinga um helstu verkefni
bankans.
• Umsjón með gerð myndræns kynningarefnis.
• Eftirfylgni upplýsingastefnu og markmiða í
upplýsingamálum.
• Ráðgjöf og aðstoð við efnisgerð vegna kynningar-,
fræðslu- og útgáfumála.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af kynningarstarfi og fjölmiðlun.
• Góðir samskiptahæfileikar.
• Góð kunnátta og ritfærni í íslensku og ensku.
• Góð þekking á efnahags- og peningamálum og
fjármálamörkuðum er kostur.
• Drifkraftur, frumkvæði og geta til að vinna faglega
og sjálfstætt.
Sótt er um störfin á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is en umsóknarfrestur er til og
með 29. apríl 2019. Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og
jafnréttisáætlun bankans. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármála-
fyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðrún S. Gunn-
arsdóttir, framkvæmdastjóri alþjóðasamskipta og skrif-
stofu seðlabankastjóra, netfang: gudrun.soley.gunnars-
dottir@sedlabanki.is og Íris Guðrún Ragnarsdóttir,
mannauðsstjóri, netfang: mannaudur@sedlabanki.is.
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða metnaðarfullan
einstakling í starf upplýsingafulltrúa á svið alþjóða-
samskipta og skrifstofu seðlabankastjóra til að vinna
að nýsköpun í upplýsinga- og kynningarstarfi bankans.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í
Reykjavík.
Upplýsingafulltrúi
2019 - 2022
Helstu verkefni:
• Umbrot á ritum bankans.
• Útlitshönnun prent-, skjá- og vefefnis.
• Framsetning upplýsinga á myndrænu formi,
glærugerð og línurit.
• Þátttaka í mótun hönnunarstaðals bankans.
• Sæti í samstarfshópi um þróun vefmála.
Hæfniskröfur:
• Grafískur hönnuður eða sambærilegt nám.
• Reynsla í grafískri hönnun og frágangi verkefna
í prent.
• Góð þekking á InDesign, Photoshop, Illustrator,
Acrobat Pro, Power Point, Word og Excel.
• Hæfni til að starfa sjálfstætt og í hópi.
• Frumkvæði, nákvæmni í vinnubrögðum og
metnaður í starfi.
• Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar.
• Góð þjónustulund.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sveinn Blöndal,
forstöðumaður, netfang: sveinn.blondal@sedlabanki.
is og Íris Guðrún Ragnarsdóttir, mannauðsstjóri, net-
fang: mannaudur@sedlabanki.is.
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing í um-
broti á sviði rekstrar. Markmið og hlutverk sviðsins
er að skapa umhverfi og aðbúnað sem gerir Seðla-
bankanum kleift að uppfylla hlutverk sitt sem best á
hverjum tíma. Um er að ræða 100% starfshlutfall með
starfsstöð í Reykjavík.
Sérfræðingur
Forstöðumaður Byggðasafns
Vestfjarða
Ísafjarðarbær auglýsir, f.h. stjórnar Byggðasafns Vestfjarða,
starf forstöðumanns laust til umsóknar. Um er að ræða
100% starf frá 1. september 2019 eða eftir nánara samkomu-
lagi. Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2019.
Forstöðumaður annast daglegan rekstur Byggðasafns
Vestfjarða og hefur yfirumsjón með varðveislu muna
safnsins. Hann veitir Byggðasafni Vestfjarða forstöðu, hefur
umsjón með söfnun þjóðlegra muna, skrásetningu þeirra,
viðgerð og uppsetningu sýninga. Hann sér um, að safnið sé
til sýnis almenningi á tilteknum tímum og hefur frumkvæði
að kynningu á þeim menningarsögulegu heimildum sem þar
eru varðveittar. Forstöðumaður starfar samkvæmt saf-
nalögum og er það megin hlutverk byggðasafnsins að safna
þjóðlegum munum, skrásetja og setja upp til sýninga fyrir
almenning.
Helstu verkefni:
• Ber ábyrgð á stefnumótun safnsins ásamt því að vinna
starfsáætlanir og markmið í samræmi við safnalög og
samþykktir Byggðasafns Vestfjarða
• Vinnur fjárhagsáætlun í samvinnu við stjórn safnsins og
fylgir henni eftir í starfi
• Hefur frumkvæði að og sér um öflun styrkja til reksturs og
sérverkefna
• Annast fjárreiður safnsins og sér um að innheimta tekna
fari fram
• Hefur umsjón með gerð kynningarefnis og sér um kyn-
ningarmál safnsins
• Yfirumsjón með skýrslugerð og skilum til viðeigandi aðila
• Situr fundi stjórnar Byggðasafns Vestfjarða og situr fundi
nefnda eða ráða samkvæmt ósk stjórnar Byggðasafns
Vestfjarða
• Yfirumsjón með meðferð, skráningu og uppsetningu muna
samkvæmt safnalögum
• Starfsmannamál
• Vinnur samkvæmt lögum og reglugerðum sem um safnið
gilda hverju sinni sem og siðareglum minjasafna
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólamenntun á ábyrgðarsviði safnsins (s.s. menning-
ar- og safnafræði, þjóðfræði, menningarmiðlun) og/eða
önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af sambærilegum störfum kostur
• Reynsla í sýninga- og rýmishönnun
• Reynsla af stjórnun og rekstri kostur
• Hæfni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og leið-
togahæfileikar
• Skipulagshæfni, metnaður og frumkvæði
• Mjög góð íslensku og enskukunnátta og hæfni til að miðla
upplýsingum bæði í mæltu máli og rituðu
• Góð almenn tölvukunnátta, hæfni við vinnu með mynd- og
teikniforrit sem og önnur tölvuvinnsla
• Talnagleggni og skilningur á rekstri
Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra
sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknum skal skilað til mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar
í netfangið baldurjo@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja
ferilskrá og kynningarbréf. Við hvetjum bæði konur og karla
til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar gefur Baldur Ingi Jónasson, man-
nauðsstjóri, í síma 450-8032 eða í gegnum tölvupóst. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
-Við þjónum með gleði til gagns-
ÍSAFJARÐARBÆR
Starfsmaður í móttöku
EY óskar eftir að ráða áreiðanlegan og þjónustulipran
einstakling til starfa í móttöku. Um 50% starf er að ræða,
en hærra starfshlutfall kemur til greina. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni felast í móttöku gesta og símsvörun,
umsjón með fundarherbergjum, yfirlestri texta á íslensku
og ensku ásamt öðrum verkefnum.
Hæfniskröfur►►
• Menntun sem nýtist í starfi og góð tölvukunnátta
• Samskiptafærni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
• Samviskusemi, snyrtimennska og þagmælska
• Góð kunnátta í ritaðri og talaðri íslensku og ensku
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist til Hildar Pálsdóttur,
hildur.palsdottir@is.ey.com, eða í gegnum heimasíðu EY.
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl nk.
www.ey.is ©
2
01
9
Er
ns
t &
Y
ou
ng
e
hf
, ö
ll
ré
tt
in
di
á
sk
ili
n.
1
3
-0
4
-2
0
1
9
1
1
:2
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
F
-B
5
C
C
2
2
C
F
-B
4
9
0
2
2
C
F
-B
3
5
4
2
2
C
F
-B
2
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K