Fréttablaðið - 13.04.2019, Page 84
Þrátt fyrir allt
hefur vínyllinn
verið að auka við sig í
sölu undanfarinn áratug
þannig að við sjáum
fram á góða tíma.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Alþjóðlegur dagur plötu-búða er í dag, laugardag, og er honum fagnað víða
um heim, m.a. í Japan, Ástralíu,
Bandaríkjunum, Mexíkó og víða
í Evrópu. Nokkrar plötubúðir hér
á landi taka þátt, m.a. Smekk-
leysa plötubúð sem er á mótum
Skólavörðustígs og Óðinsgötu í
Reykjavík, en þar hefur deginum
verið fagnað undanfarin ár með
góðum árangri að sögn Ólafs
Sverris Traustasonar, sölumanns
verslunarinnar. „Þetta er dagur
sem er hugsaður til að vekja
athygli á plötubúðunum sjálfum,
sérstaklega þessum litlu sjálfstæðu
einingum sem gefa svo mikið af sér
til tónlistaráhugafólks og sam-
félagsins. Við ætlum svo sem ekki
að bjóða upp á flókna dagskrá,
aðallega ætlum við að hella upp á
kaffi og hafa það huggulegt með
gestum okkar. Þessi dagur hefur
alltaf verið hrikalega skemmti-
legur og ég mæli með því að taka
hringinn í miðbænum og fara í
allar plötubúðirnar. Þær taka allar
þátt og það er mjög gaman að geta
fagnað þessu almennilega svona
einu sinni á ári.“
Margt hefur breyst
Það eru fáar tegundir verslana sem
hafa gengið í gegnum jafn róttækar
breytingar og plötubúðir á undan-
förnum 10-15 árum enda sækja
flestir tónlist í dag gegnum síma
og tölvur. „Fyrir vikið hafa plötu-
búðir eðlilega þurft að breyta um
áherslur, bæði varðandi vöruúrval
og þjónustu. Í dag myndi ég segja
að hlutverk plötubúða snúist
mikið um persónulega þjónustu
við kúnnana og að panta t.d. inn
plötur fyrir þá. Um leið þarf líka að
vinna sér inn nýja fasta kúnna sem
maður reynir síðan að þjónusta
með sama hætti. Þrátt fyrir allt
hefur vínyllinn verið að auka
við sig í sölu undanfarinn áratug
þannig að við sjáum fram á góða
tíma og alþjóðlegur dagur plötu-
búða minnir okkur svo á það.“
Þrátt fyrir miklar breytingar segir
hann plötubúðir enn vera mjög
nytsamlegar. „Í verslunum hér í
miðbænum vinna plötusafnarar,
tónlistarfólk, plötusnúðar og alls
kyns tónlistarnördar. Þannig er
hægt að nýta sér starfsfólkið í
búðunum, endurvekja mannlegu
hliðina, fá að hlusta á plötur og
spjalla og kannski kynnast ein-
hverju nýju.“
Með breiðan smekk
Þar sem Ólafur vinnur í plötubúð
hlustar hann á tónlist nær alla
daga og öll kvöld og hefur breiðan
tónlistarsmekk. „Ég hlusta mjög
mikið á djass, kannski of mikið, en
annars er ég alltaf mjög opinn og
reyni að hlusta á eins mikið og ég
kemst yfir. Ég safna sjálfur plötum
og finnst ekkert betra en að setja
góða plötu á fóninn heima. Auk
þess nota ég líka Spotify eins og
allir og síðan finnst mér Band-
camp vera virkilega góður staður
til að kynnast tónlist og styrkja
tónlistarmenn beint. Svo er ég
reyndar að leita að kassettutæki í
augnablikinu.“
Aðrar plötubúðir sem eru í mið-
bænum og nágrenni hans, og halda
upp á alþjóðlegan dag plötubúðar-
innar eru m.a. Reykjavík Record
Shop á Klapparstíg, 12 tónar á
Skólavörðustíg og Lucky Records á
Rauðarárstíg.
Hljómplatan lifir enn góðu lífi
Í dag fagna plötubúðir víða um heim alþjóðlegum degi plötubúðarinnar. Nokkrar plötubúðir í
Reykjavík taka þátt og taka vel á móti gestum. Sala á vínylplötum hefur aukist jafnt og þétt.
Plötubúðir bjóða flestar upp á gott úrval af nýjum og gömlum plötum.
Það er fátt notalegra og meira róandi fyrir hugann en að róta í plötum.
Ólafur Sverrir Traustason, sölumaður hjá Smekkleysu plötubúð, einni þeirra
plötubúða sem taka þátt í viðburðinum á morgun. MYNDIR/SIGTRYGGUR ARI
MÓTORHJÓL
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um Mótorhjól kemur út laugardaginn 27. apríl.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Atli Bergmann markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5657 / atli@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vit að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur o ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . A P R Í L 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
3
-0
4
-2
0
1
9
1
1
:2
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
F
-B
F
A
C
2
2
C
F
-B
E
7
0
2
2
C
F
-B
D
3
4
2
2
C
F
-B
B
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K