Fréttablaðið - 13.04.2019, Page 100

Fréttablaðið - 13.04.2019, Page 100
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055. Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnt hafið okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og bróður, Gunnsteins Stefánssonar læknis. Helga Snæbjörnsdóttir Snæbjörn Gunnsteinsson Stefán S. Gunnsteinsson Árni Pétur Gunnsteinsson Gunnar Helgi Gunnsteinsson tengdadætur, barnabörn og systkini hins látna. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Steingrímur Gíslason frá Torfastöðum, lést aðfaranótt 8. apríl á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, Selfossi. Útförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 16. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið eða Vinafélag Ljósheima, reikn. 0152 26 60860, kt. 690216 0860. Árný V. Steingrímsdóttir Friðgeir Jónsson Jensína Sæunn Steingrímsd. Ægir Stefán Hilmarsson Aðalheiður Jóna Steingrímsd. Björn Magnússon Gísli Steingrímsson Ragnheiður Sigmarsdóttir Sigurður Þór Steingrímsson Guðbjörg Bergsveinsdóttir Birgir Árdal Steingrímsson Margrét Jónsdóttir Bergur Geir Guðmundsson Sigrún Óskarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Emilía Jónsdóttir, félagsráðgjafi Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Kindur heyrast jarma þegar Geirmundur Valtýsson tónlistarmaður tekur upp tólið og þegar ég hef orð á því hefur hann skýringu á reiðum höndum. „Þær urðu fúlar við mig þegar þær sáu að ég ætlaði að fara að tala í símann.“ Hann er sem sagt að gefa á Geirmundarstöðum. Ég furða mig á að hann gefi sér enn tíma til að vera bóndi, maður sem er úti um allar koppagrundir að spila. Er hann ekkert að hætta búskapnum? „Nei, nei. Ég er reyndar bara með um hundrað fjár á vetrarfóðrum og þrjátíu hross, hugsa að ég fjölgi fénu í haust, það er svo góð staða í sauðfjárræktinni,“ segir hann – í gríni. „En svo er ég auðvitað líka að spila og semja lög.“ Sem sagt ekkert gefið eftir. „Nei, á maður eitthvað að gera það? Maður verður búinn þegar maður leggst. En fyrst maður er á fótum verður eitthvað að hafa að gera.“ Það er 75 ára afmælið hans Geirmund- ar sem ég vil ræða en hann er ekkert sér- staklega spenntur fyrir því. „Ég á við það að stríða, eins og þú, að eldast um eitt ár á ári. En er náttúrlega yfir mig rogginn yfir að vera enn sprækur og hafa nóg að gera, eiginlega brjálað að gera. Það er yndislegt.“ Ætlarðu ekki að halda veglega upp á afmælið? „Ekki núna og það er kannski of snemmt að tala um það en ég ætla að halda afmælistónleika í Salnum í haust, 12. og 19. október. Þau verða með mér Diddú, Helga Möller og Ari Jóns. Þá getur fólkið komið og skemmt sér. Þetta verður alvöru. „Ég hef haldið rækilega upp á afmælið mitt, bæði þegar ég varð sextugur og eins hélt ég upp á 50 ára tón- listarafmælið mitt. Tónleikarnir í haust eru fyrst og fremst í tilefni þess að ég er búinn að spila í 60 ár.“ Þegar nánar er grennslast kemur í ljós að Geirmundur hefur nóg annað að gera um helgina en að halda veislu. „Ég er að keyra suður til Reykjavíkur núna að spila í sjötugsafmæli, svo þarf ég að vera í fermingu norður á Akureyri á laugardag og annarri hér í Skagafirði á sunnudaginn.“ Nú verð ég að sleppa söngvaranum úr símanum svo ærnar verði ekki mál- þola. Þegar ég spyr hvort hann eigi ein- hverja nýlega mynd segir söngvarinn ákveðinn: „Þið eigið nóg af myndum af mér, taktu bara flottustu myndina sem þú sérð!“ gun@frettabladid.is Eiginlega brjálað að gera Sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson er sjötíu og fimm ára í dag. Hann má ekkert vera að því að halda upp á það núna en lofar tvöföldum afmælistónleikum í október. Geirmundur hefur fullt að gera alla afmælishelgina en lofar stuði síðar. Smáraskóli í Kópavogi var með þema-daga í þessari viku. Þar voru heims-markmið Sameinuðu þjóðanna í öndvegi svo sem loftslagsmál og mengun, heilbrigði og efnahagur. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði nemendur og starfsfólk með hvatningarorðum varðandi verkefnin. Hún talaði um mikilvægi þess að full- orðnir skili jörðinni af sér í góðu ásig- komulagi og að allir sýni ábyrgð í neyslu og endurvinnslu á plasti. Nefndi einnig mikilvægi þess að öll börn í heiminum fengju að ganga í skóla. Vinna nemenda Smáraskóla var fjöl- breytt. Þeir fóru í vettvangsferðir, tóku viðtöl og bjuggu til hlaðvarpsþætti, héldu fata- og skósölu og styrktu góðgerðar- málefni. Þeir fengu gesti og fyrirlesara til að fjalla um geðheilbrigði og vellíðan og nokkrir nemendur prófuðu að synda í plastmenguðu vatni, Kópavogslaug veitti góðfúsleg afnot af lauginni. Salaskóli, Hörðuvallaskóli og Álfhóls- skóli í Kópavogi hafa allir unnið með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í vetur og bæjarstjórnin samþykkti síð- astliðið haust að gera þau að yfirstefnu Kópavogsbæjar. – gun Nemendur syntu í plastmenguðu vatni Nemendur Salaskóla hlýddu af athygli á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Ég er reyndar bara með um hundrað fjár á vetrarfóðrum en hugsa að ég fjölgi því í haust, það er svo gott útlit með lambakjötið. 1 3 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R40 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 3 -0 4 -2 0 1 9 1 1 :2 4 F B 1 2 8 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 C F -7 A 8 C 2 2 C F -7 9 5 0 2 2 C F -7 8 1 4 2 2 C F -7 6 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.