Fréttablaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 102
Móðurbróðir okkar,
Hjálmar Þórðarson
verkfræðingur,
Kúrlandi 2, Reykjavík,
lést 2. apríl að Skógarbæ.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn
og faðir okkar,
Ingvar J. Kristjánsson
Tröllakór 1-3, Kópavogi,
lést að morgni föstudags 29. mars á
Landspítalanum við Hringbraut. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Halla Ágústsdóttir
Ágústa Kristrún Ingvarsdóttir
Ragnhildur Björk Ingvarsdóttir
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Björgvin Guðmundsson
andaðist á heimili sínu að
Hlaðhömrum 2, þriðjudaginn 9. apríl,
2019. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni
í Reykjavík miðvikudaginn 24. apríl, kl. 13.00.
Þorvaldur Björgvinsson
Guðmundur Björgvinsson
Björgvin Björgvinsson Pirjo Aaltonen
Þórir Björgvinsson Unnur Kristjánsdóttir
Rúnar Björgvinsson Elín Traustadóttir
Hilmar Björgvinsson Sjöfn Marvinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Petter Amandus Tafjord
er látinn.
Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju
miðvikudaginn 17. apríl kl. 13.00.
Sigurrós Tafjord Ármann Baldursson
Jóhann Á. Tafjord Elín Jónbjörnsdóttir
Kristján Tafjord Jarþrúður Bjarnadóttir
Birna Tafjord Birgir Kristjánsson
Pétur Smári Tafjord Þórey Svana Þórisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.Hugheilar þakkir til allra þeirra sem
sýnt hafa okkur samúð og vináttu
við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður, stjúpmóður,
tengdamóður og ömmu,
Sigríðar Maríu Jónsdóttur
Einnig færum við öllum þeim sem
önnuðust Sigríði í veikindum hennar á kvennadeild
Landspítalans þakkir fyrir þeirra góðverk, umönnun og
hjúkrun. Enn fremur þökkum við þeim fjölmörgu sem
sýndu Sigríði og fjölskyldunni stuðning og umhyggju
með hlýhug sínum og fyrirbænum.
Árni Andersen
Pétur Már Ólafsson Nína Sif Pétursdóttir
Karvel Halldór Árnason Linda Sóley Halldórsdóttir
Margrét Árnadóttir
Eyþór Árnason Ása Óðinsdóttir
Við þökkum ættingjum og vinum
auðsýnda samúð og hlýhug er móðir
okkar, tengdamóðir, frænka, amma,
langamma og langalangamma,
Guðbjörg Ámundadóttir
Minna-Núpi,
Skeiða- og Gnúpverjahreppi,
andaðist í mars síðastliðnum. Sérstakar þakkir til
starfsfólksins á dvalarheimilinu Ási í Hveragerði og Lundi
á Hellu fyrir einstaka umönnun undanfarna mánuði.
Guðrún Ingólfsdóttir Auðunn Gestsson
Herdís Kristjánsdóttir Trausti Sveinbjörnsson
Ámundi Kristjánsson
Viðar Ingólfsson Nína Björg Borgarsdóttir
Guðbjörg Emma Ingólfsd. Gunnlaugur Óttarsson
Snorri Arnarson Erla Gunnarsdóttir
Erla Arnardóttir Ingi Björnsson
langömmu- og langalangömmubörn.
Ástkær sonur okkar, bróðir,
mágur og frændi,
Sigurður Guðmundsson
Lyngmóa 17, Reykjanesbæ,
lést á heimili sínu laugardaginn 6. apríl.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Guðmundur Sigurðsson Kolbrún Geirsdóttir
Gunnfríður Friðriksdóttir Antonio Manuel Goncalves
Friðrik Guðmundsson
Kolbrún Guðmundsdóttir Karl Kristján Davíðsson
Salka Snæbrá og Kolbeinn Friður
Elskulegur faðir okkar, bróðir og mágur,
Vigfús Grétar Björnsson
bakarameistari,
Asparfelli 6,
andaðist á líknardeild Landspítalans
31. mars. Útförin fór fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Inga Brá Vigfúsdóttir
Sigursteinn Freyr Vigfússon
Auðunn Björnsson
Gunnar Lúðvík Björnsson
Guðlaug Björnsdóttir Svavar Garðarsson
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Ingiberg J. Hannesson
fyrrv. prófastur og alþingismaður,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
sunnudaginn 7. apríl. Útför hans fer
fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
mánudaginn 15. apríl kl. 13.00.
Helga Steinarsdóttir
Birkir Ingibergsson Sigurveig Þ. Guðjónsdóttir
Þorsteinn H. Ingibergsson Marelie Nacilla Rubio
Bragi J. Ingibergsson Stefanía Ólafsdóttir
Sólrún H. Ingibergsdóttir Pétur Fannar Hjaltason
barnabörn og barnabarnabörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Það er söngkonurödd sem svarar í símann, þegar ég hringi í Silju Elsabetu. Hún er í páskafríi heima í Vestmannaeyjum – í hávaðaroki.
Annars er hún í Royal Academy of
Music í London og tekur bakkalár
gráðu í vor eftir fjögurra ára nám.
„Það er svo þægilegt hvernig þeir
stilla fríunum upp í skólanum úti,
þeir safna litlu fríunum saman í stór
þannig að þegar við fáum sumarfrí,
jólafrí og páskafrí þá náum við að
koma heim. Það er alveg dásam
legt. Gaman að kíkja á fjölskylduna,
systir mín er að fermast á morgun,
það verður góð fjölskyldustund.“
Silja Elsabet ætlar í sérnám við
óperudeildina í skólanum. Ad
vanced Diploma in Opera nefnist
sú deild og þar er mastersgráða
inntökuskilyrði en hún fékk undan
þágu til að hefja nám strax, út á sína
rödd. „Ég fékk hálfgert sjokk, ætlaði
bara ekki að trúa þessu, því Bretar
eru nú frekar fastheldnir á reglur.
Þetta er auðvitað stórkostlegt,
enda er óperusöngur ástríða mín
og æðsti draumur.“
Vissulega er námið strangt að
sumu leyti að sögn Silju Elsabetar.
„Ég kalla þetta starfsnám þegar fólk
er að spyrja mig út í það. Við nem
endurnir komum til með að syngja
í óperum og setja upp óperur og svo
erum við jafnvel fengin til að syngja
líka utan skólans í ýmsum verkefn
um. Þetta er ofboðslega spennandi.“
Hún segir sig muna verulega um
þessa milljón sem hún fékk í styrk
og vera þakklát fyrir hana. „Ég hef
verið að vinna á bar með skólanum
úti, og þegar ég fékk styrkinn þá
hugsaði ég, nú get ég hætt að vinna
og bara einbeitt mér að skólanum.
Það er geggjað! Ég var oft fram á
nætur í vinnunni.“
Hún kveðst kunna afar vel við sig
í London. „Borgin er svo rosalega
stór og fjölbreytt og mér finnst ég
aldrei vera búin að sjá nema pínu
lítinn hluta af henni. Samt er þetta
fjórða árið mitt núna. Mér finnst
voða gaman þegar ég fæ gesti, þá fæ
ég afsökun fyrir að fara í skoðunar
ferðir, ég geri það ekkert dagsdag
lega, því það er nóg að gera í skól
anum. Hún kveðst hafa haft íbúð frá
skólanum í eitt ár en það hafi verið
dýrt. „Svo ég fór á almenna leigu
markaðinn, það er ódýrara, svo
fáránlegt sem það er.“
En hvernig ver hún sumrunum.
Fer hún þá kannski á einhverjar tón-
listarhátíðir?
„Ég hef ekki gert það, hef alltaf
komið heim að vinna. Var tíu ár í
fiskinum hér í Eyjum, eitt sumar á
Hótel Vestmannaeyjum og í fyrra
sumar vann ég í Eldheimum. Það
er svo þægilegt að koma heim til
mömmu og þurfa ekki að eyða
neinu!“
Ekki kveðst Silja Elsabet búin
að frétta hvaða óperur verði settar
upp í haust, hvað þá hlutverka
skipan. „Það er allt á huldu ennþá.
Skólinn byrjar í september og mér
finnst líklegt að ég fái eitthvað að
vita áður en ég fer í sumarfríið. En
ég hef planað að vera með tónleika
á Íslandi í sumar, bæði hér í Eyjum
og líka í Reykjavík. Einhvern tíma í
júlíágúst.“ gun@frettabladid.is
Fer beint í óperudeild – út á röddina
Ég hef verið að vinna á bar
með skólanum úti, og þegar
ég fékk styrkinn þá hugsaði
ég, nú get ég hætt að vinna
og bara einbeitt mér að skól-
anum. Það er geggjað!
Silja Elsabet er á heimaslóðum sínum í Vestmannaeyjum og hlakkar til
fjölskyldustundar á morgun við fermingu systur sinnar.
Silja Elsabet Brynjars-
dóttir mezzósópran
hlaut nýlega einnar
milljónar króna styrk
Söngmenntasjóðs
Marinós Péturssonar
til áframhaldandi
söngnáms. Óperu-
söngur á sviði er
ástríða hennar, áhuga-
mál og æðsti draumur.
1 3 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R42 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
4
-2
0
1
9
1
1
:2
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
F
-8
E
4
C
2
2
C
F
-8
D
1
0
2
2
C
F
-8
B
D
4
2
2
C
F
-8
A
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K