Fréttablaðið - 17.04.2019, Síða 2
settu upp hreinsibúnað, en þetta er
samt of mikið. Mönnum ber reyndar
ekki saman um hversu mikið, þeir
gera sínar mælingar og Veitur sínar.
En það er vitað að það kemur mikil
fita frá þeim og þeir eru að vinna að
úrbótum og reyna að finna lausn á
þessu núna,“ segir Helgi.
Ólöf segir almennt mikilvægt
að upplýsa fólk um hvað má og má
ekki fara í fráveituna.
„Það er ekkert sem bendir til þess
að íbúar á Akranesi gangi öðru-
vísi um fráveituna en aðrir á okkar
starfssvæði. Allt of mikið er af rusli
í fráveitukerfinu og á meðan við
sjáum það þarf að halda áfram að
upplýsa fólk um hvað má og má ekki
fara í fráveituna.“
Nýja hreinsistöðin á Akranesi
var formlega opnuð í maí 2018.
Fyrir uppbyggingu fráveitunnar
rann óhreinsað skólp út um átta
megin útrásir, nálægt fjöruborði.
Nú er skólpi veitt frá þessum útrás-
um og í hreinsistöð. Settir voru upp
sex nýir dælubrunnar sem dæla
skólpinu frá gömlu útrásunum í átt
að hreinsistöðinni. Stöðin hreinsar
öll gróf efni úr skólpinu auk þess
að sía frá sand og fitu. Skólpinu er
síðan dælt um hálfan annan kíló-
metra út í sjó en það sem safnast í
sand- og fituskiljur stöðvarinnar er
keyrt til urðunar.
mikael@frettabladid.is
Það er ekkert sem
bendir til þess að
íbúar á Akranesi gangi
öðruvísi um fráveituna en
aðrir.
Ólöf Snæhólm
Baldursdóttir,
upplýsingafull-
trúi Veitna
Veður
NÝTT OG
SPENNANDI
FRÁ HOL
TA
Hefur þú prófað
Holta drumsticks?
Hlaðborð af dansi
Líkt og síðustu ár var mikið um dýrðir á Vorsýningu Listandsskóla Íslands. Að þessu sinni voru sýningargestir leiddir í ferðalag um listdanssöguna
þar sem nemendur dönsuðu atriði úr helstu verkum dansbókmenntanna, eins og Svanavatninu, Þyrnirós og Don Kíkóta. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Suðaustan 8-15. Vætusamt S-
og V-til. Bætir í úrkomu SA-til.
Úrkomulaust um landið NA-vert.
Hiti að 14 stigum. SJÁ SÍÐU 20
FRÁVEITUMÁL Miklir erfiðleikar
hafa verið á rekstri nýrrar skólp-
hreinsistöðvar á Akranesi vegna
fitu sem berst frá matvælavinnslu
í bænum og stíf lar ítrekað hreinsi-
búnað stöðvarinnar. Stöðin var
formlega opnuð fyrir tæpu ári.
Framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
eftirlits Vesturlands segir vanda-
málið vera fitu frá niðursuðuverk-
smiðjunni Akraborg.
„Þvottavélarnar sem þvo úrgang-
inn áður en hann er urðaður stíflast
ítrekað af fitu,“ segir Ólöf Snæhólm
Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi
Veitna, aðspurð um vandamálið
sem vakin var athygli á í minnis-
blaði til stjórnar Orkuveitu Reykja-
víkur í upphafi mánaðarins. Þar er
greint frá stöðu fráveitumála hjá
Veitum og erfiðleikarnir á Akra-
nesi sagðir komnir til „vegna fitu
sem berst frá matvælavinnslu á
svæðinu“.
Helgi Helgason, framkvæmda-
stjóri Heilbrigðiseftirlits Vestur-
lands, segir það ekkert leyndarmál
að þessi mikla fita komi frá niður-
suðuverksmiðju sem meðal annars
vinni matvæli úr þorsklifur.
„Þeir eru með rosalega feita vöru.
Bæði að sjóða niður fisklifur og svo
eru þeir með paté úr þorsklifur og
það er of boðslega mikil fita í frá-
veitunni frá svona fyrirtækjum.“
Helgi segir að með tilkomu nýju
hreinsistöðvarinnar og mælinga
sem þar eru gerðar hafi spjótin fljótt
beinst að fyrirtækinu Akraborg
sem er einn stærsti framleiðandi
á niðursoðinni þorsklifur í heim-
inum. Helgi segir að fitugildra hafi
verið til staðar þar en galli í fráveitu
gerði meðal annars að verkum að
úrgangur fór fram hjá gildrunni.
„Þeir gerðu ráðstafanir í fyrra,
Niðursuðufita í skólpi
veldur usla á Akranesi
Miklir rekstrarerfiðleikar hafa verið hjá nýlegri skólphreinsistöð Veitna á Akra-
nesi. Fita frá niðursuðuverksmiðju, þar sem unnið er með feita þorsklifur, hefur
ítrekað stíflað hreinsibúnað stöðvarinnar. Unnið að úrbótum í verksmiðju.
Hreinsistöðin var formlega opnuð í maí í fyrra. Erfiðlega hefur gengið að
halda henni gangandi sökum mikillar fitu frá matvælavinnslu. MYND/VEITUR
RÚSSLAND Frode Berg, 63 ára gamall
Norðmaður, var í gær dæmdur til
fjórtán ára vistar í vinnubúðum í
Rússlandi. Berg var handtekinn í
Moskvu fyrir tveimur árum, sak-
aður um að hafa njósnað um kaf-
báta rússneska sjóhersins.
Berg hefur alltaf neitað sök í mál-
inu. Ílíja Novíkov, lögmaður Norð-
mannsins, sagði að málinu yrði
ekki áfrýjað. Hins vegar myndi Berg
sækjast eftir náðun frá Vladímír
Pútín Rússlandsforseta. „Berg býst
við því að ríkisstjórn sín taki málið
upp en við sjáum ekki hvaða gagn
væri að áfrýjun,“ sagði Novíkov og
bætti við að Berg hefði í raun verið
peð í stærri leik.
Fyrir dómi játaði Berg að hafa
verið sendiboði norsku leyniþjón-
ustunnar. Hann hefði þó ekki vitað
mikið um verkefni sitt. – þea
Fjórtán ár í vinnubúðum
Berg var sakfelldur. NORDICPHOTOS/AFP
SAMFÉLAG Þórarinn Ævarsson, sem
gegnt hefur starfi framkvæmda-
stjóra IKEA, lætur af störfum um
mánaðamótin að eigin ósk. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá IKEA.
„Þórarinn hefur stýrt IKEA í 14
ár og á þeim tíma hefur vöxtur
fyrirtækisins verið mikill og það
notið velgengni og velvildar við-
skiptavina,“ segir í tilkynningunni.
„Eigendur og stjórn IKEA á Íslandi
þakka Þórarni fyrir vönduð og vel
unnin störf í þágu félagsins.“
Undirbúningur að ráðningu eftir-
manns Þórarins er þegar hafinn og
má búast við tilkynningu frá IKEA
á næstu vikum. Þórarinn er þó ekki
að kveðja IKEA fyrir fullt og allt, en
hann tekur sæti í stjórn félagsins.
Guðný Aradóttir, yfirmaður sam-
skiptadeildar IKEA, vildi ekki tjá
sig um á stæður uppsagnarinnar en
segir Þórarin kveðja í sátt. – ilk
Leitin hafin að
arftaka Þórarins
1 7 . A P R Í L 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
7
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
D
4
-7
5
A
8
2
2
D
4
-7
4
6
C
2
2
D
4
-7
3
3
0
2
2
D
4
-7
1
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K