Fréttablaðið - 01.05.2019, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 01.05.2019, Blaðsíða 46
LEIKRIT Loddarinn HHHH Molière Þjóðleikhúsið Leikstjórn: Stefan Metz Leikarar: Hilmir Snær Guðnason, Guðjón Davíð Karlsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Lára Jóhanna Jóns- dóttir, Oddur Júlíusson, Ragnheið- ur Steindórsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson og Dóra Jóhannsdóttir Leikmynd og búningar: Sean Mackaoui Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson Tónlist og hljóðmynd: Elvar Geir Sævarsson Þýðing: Hallgrímur Helgason Ófremdarástand ríkir á yfirstéttar- heimili Orgeirs. Andlegur kuklari og smákrimmi að nafni Guðreður hefur smokrað sér inn á ættaróðalið undir verndarvæng heimilisföður- ins sem sér ekki sólina fyrir aftur- endanum á honum. Nánasta fjöl- skylda Orgeirs leggst á eitt um að bola þessum loddara út hið snar- asta. Síðastliðinn laugardag frum- sýndi Þjóðleikhúsið klassíska gam- anleikinn Loddarann eftir franska leikskáldið Molière, í uppfærðri útgáfu sem Hallgrímur Helgason þýðir, leikstjóri er Svisslendingur- inn Stefan Metz. Frá fyrstu frumsýningu í Frakk- landi árið 1664 hefur Loddari Mol- ière verið umdeilt leikverk enda hörð ádeila, í grínbúningi þó, um úrkynjun yfirstéttarinnar sem yfir- leitt f lýtur í sömu skútu og trúarleg- ar stofnanir. Klassíkin hefur þann einstaka eiginleika að endurspegla samtímann og melódrama Molière er þar engin undantekning. Þýð- ing Hallgríms Helgasonar er með hans allra bestu á starfsferlinum. Rímið er lipurt, textinn troðfullur af innsæi í bland við biksvartan húmor samanber yfirlýsingu þjón- ustustúlkunnar Dóru: „Með æðis- köstum enginn sigur vinnst. / Faðir þinn hefur aðeins á það minnst / og ekki verða alltaf orð að gerðum, / til framkvæmdar er hugmynd hæg í ferðum.“ Öruggar leikstjórahendur Síðustu sýningar Stefan Metz hafa átt við galla að stríða en Loddarinn er í mjög öruggum leikstjórahönd- um. Hvert smáatriði á sviðinu er úthugsað inn í heildarmyndina og óvæntustu leikmunir öðlast tákn- rænt mikilvægi. Samskipti milli karaktera eru þó sett í algjöran for- gang þannig að stundum neistar þar á milli, leikurinn er lifandi og hver persóna dregin upp með skörpum áherslum. Verkið er krufið með kómíkina að vopni en undir krauma rammpólitísk skilaboð. Áhorfend- um er hent inn í melódramatískar fjölskylduerjur en Metz hikar ekki við að hnika aðeins til í handritinu og draga fram stærri vangaveltur en þær sem liggja á yfirborðinu. Orgeir, höfuð umræddrar fjöl- skyldu, mætir ekki á sviðið strax en völd hans innan fjölskyldunnar eru áþreifanleg og afdrifarík þrátt fyrir fjarveruna. Hann bauð Guðreði inn á heimilið, treystir honum og trúir. Guðjón Davíð Karlsson leikur Orgeir eins og sakleysingja sem er algjörlega viss í sinni trú þangað til sannleikurinn er bókstaflega ber- aður fyrir honum. En að sama skapi þræðir hann forréttindafrekju fal- lega inn í framkomu þessa einfeldn- ings. Eiginkona Orgeirs, Elmíra, leikin af Nínu Dögg Filippusdóttur, veit ekki hvaðan á sig stendur veðr- ið. Ásótt úr öllum áttum, hundsuð af eiginmanni sínum og umkringd krefjandi börnum, stendur hún tilbúin í slag en veit ekki hvert hún á sér að snúa. Í höndum Nínu Daggar verður örvænting Elmíru grátbrosleg og nær frábær frammi- staða hennar húmorísku hámarki þegar Elmíra ætlar að narra Guðreð í gildru. Nánast liðamótalaus Börnin þeirra tvö, Maríanna og Danni, eru leikin af Láru Jóhönnu Jónsdóttur og Oddi Júlíussyni. Bæði iða þau í skinninu að koma ófétinu út úr húsinu en eru bæði of reynslulítil til að gera greinarmun á gjörðum og skipulögðum plönum. Lára Jóhanna er svolítið aftengd melódramanu og hefði mátt leyfa sér stærri tilfinningaskala, þó á hún góða spretti sérstaklega í fyrri hluta sýningar. Oddur aftur á móti tætir sig í gegnum tilfinningaskalann af miklum móð, líkt og unga fólkið á til, og virðist nánast liðamótalaus þegar kemur að líkamsbeitingu. Þar á milli koma karakterar sem spanna siðferðilegt róf leikritsins, annars vegar Frú Petrúnella leikin af Ragnheiði Steindórsdóttur og hins vegar Klængur leikinn af Baldri Trausta Hreinssyni. Sú fyrri er algjörlega blinduð af guðlegum anda Guðreðs en Klængur reynir að vera rödd sannleikans. Bæði skila þau þessum smáu hlutverkum af næmni. Dóra Jóhannsdóttir leikur síðan Völu, ástkonu Maríönnu, með ágætum en eitthvað vantaði upp á ástarblossann þeirra á milli, og hæglega hefði verið hægt að skrúfa meira upp í ýkjunum líkt og hún gerir skemmtilega þegar lögfræð- ingurinn Lögmær mætir skelegg og plöstuð undir lok leiks. Kristín Þóra Haraldsdóttir sýnir hér enn f leiri hliðar á sínum fjöl- breyttu hæfileikum, sem dafnað hafa með hverju leikári. Harm- leikur þjónustustúlkunnar Dóru er að yfirstéttin hlustar ekki á þá sem eru lægra settir, þrátt fyrir að þeir segi sannleikann, þó er ætlast til að þeir taki til ósómann sem eftir verð- ur. Þetta skynjar Kristín Þóra og kemur tilfinningalega vel til skila, bæði með húmor og ákefð, svo ekki sé minnst á frábæra líkamstjáningu. Fyrstu kynni áhorfenda af loddar- anum sjálfum koma ekki með flug- eldasýningu heldur undirstrikar innkoman hversu ósköp venjulegur Guðreður er í raun. Hilmir Snær Guðnason lallar hæglátlega inn á sviðið, afslappaður úlfur í sauðar- gæru. Einungis smeðjulegur slúb- bert með smáborgaralega drauma. Nálgun hans er blæbrigðamikil, bæði í leik og framsögn, og gæðin stigmagnast eftir því sem líða tekur á. Tímasetningar hans eru sömuleiðis stórkostlegar; hann leyfir löngum þögnum að dafna, tjáir stórar hugsanir með smáum andlitshreyfingum og keyrir upp tempóið þegar þess þarf. Hilmir leikur Guðreð ekki sem hrotta eða vanvita heldur fremur subbulegan svindlara sem kann að grípa gæsina þegar hún gefst. Smáatriðin krydda Sean Mackaoui er tíður samstarfs- maður Metz. Leikmynd hans er einföld á yfirborðinu en er bæði fagurfræðilega sterk og skýr. Litróf sviðsins endurspeglar ofurraun- veruleika sýningarinnar smekklega með sterkum litum, en alltaf er Guð- reður mótvægið með sínum svart- hvíta klæðnaði. Smáatriðin krydda heildarmyndina s.s. slökkvitækið í bakgrunni, allir vita að kviknað er í húsinu en fjölskyldufaðirinn gerir ekkert. Sömuleiðis eru páfuglarnir í horninu áminning um hversu aftengd raunveruleikanum fjöl- skyldan er í raun og veru. Búning- arnir eru á sömu bylgjulengd þar sem sterkir litir og áferðarfögur hönnun ráða ríkjum. Lýsing Ólafs Ágústs Stefánssonar hreinlega dansar innan veggjanna þriggja og dregur sterkan hjúp utan um sýn- inguna. Elvar Geir Sævarsson full- komnar síðan þrenninguna með þrusufínni og dillandi hljóðmynd þar sem fremur hallærislegt hljóm- borð leikur stórt hlutverk. Loddarinn er ögrandi og snjöll sýning sem kitlar bæði hlátur- taugarnar og krefst umhugsunar. Aulahúmorinn ræður ríkjum en í heiminum sem Stefan Metz setur fram hefur aulaskapur afleiðingar. Mannfólkið smíðar sína eigin gæfu en verður sömuleiðis að bera ábyrgð á sínum afglöpum. Leikárið hjá Þjóðleikhúsinu hefur verið upp og ofan en það má með sanni segja að Loddarinn loki því með eftirminni- legum hvelli. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Sótsvartur og bráðfyndinn gamanleikur fyrir okkar tíma. Ein af albestu leik- sýningum ársins. Mannanna misráðnu verk Loddarinn er ögrandi og snjöll sýning sem kitlar bæði hláturtaugarnar og krefst umhugsunar. MYND/HÖRÐUR SVEINSSON HVERT SMÁATRIÐI Á SVIÐINU ER ÚT- HUGSAÐ INN Í HEILDARMYND- INA OG ÓVÆNTUSTU LEIK- MUNIR ÖÐLAST TÁKNRÆNT MIKILVÆGI. Þýðing Hallgríms er með hans allra bestu á ferlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 1 . M A Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 1 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 E 7 -8 7 9 C 2 2 E 7 -8 6 6 0 2 2 E 7 -8 5 2 4 2 2 E 7 -8 3 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.