Fréttablaðið - 01.05.2019, Síða 24

Fréttablaðið - 01.05.2019, Síða 24
✿ Verðþróun hlutabréfa Heimavalla frá skráningu 1,3 1,2 1,1 1,0 0,0 Júní 2018 Nóv. 2018 Apríl 2019 Dugnaðarforkurinn Sprinter frá Mercedes-Benz. Hörkuduglegur og traustur Sprinter vill komast í krefjandi verkefni. Getur hafið störf strax. Hagstætt rekstrarleiguverð í boði. Sprinter sendibíll Rekstrarleiga frá 147.300 kr. með vsk. á mánuði Verð frá 6.200.000 kr. með vsk. mercedes-benz.is/vans ASKJA ATVINNUBÍLAR · Fosshálsi 1 · 110 Reykjavík · Sími 590 2120 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi Hópurinn sem stend-ur að tilboði sem miðar að afskrán-ingu Heimavalla er ósáttur með ákvörðun Kaup- hallarinnar um að hafna afskrán- ingunni og telur að hún eigi sér enga lagastoð. Forstjóri Kauphallarinnar segir að það grafi undan trúverðug- leika hlutabréfamarkaðarins að stilla viðmiðin hér lægra en á saman- burðarmörkuðum. Í byrjun febrúar fóru þrír af stærstu hluthöfum Heimavalla fram á að stjórn íbúðaleigufélagsins boð- aði til hluthafafundar þar sem tillaga yrði sett á dagskrá um að taka félagið af hlutabréfamarkaði. Þá kom fram að fjárfestingar- félagið Sigla og Alfa Framtak fjár- mögnuðu tilboð í allt að 17,09 pró- senta hlut í Heimavöllum fyrir allt að 2,5 milljarða króna. Tilboðs- verðið nemur 1,3 krónum á hlut en það rennur út á mánudaginn. Á aðal- fundi Heimavalla í mars var tillagan tekin fyrir. Hún var samþykkt af 81,3 prósentum þeirra hluthafa sem tóku afstöðu á fundinum en 18,7 prósent þeirra hluthafa sem tóku afstöðu á fundinum voru á móti. Kauphöllin hafnaði hins vegar beiðni Heimavalla um að taka hlutabréf leigufélagsins úr við- skiptum á Aðalmarkaði. Að mati Kauphallarinnar mun afskráning valda hluthöfum verulegu tjóni og það getur dregið úr trúverðugleika markaðarins. Þá vísaði Kauphöllin til þess að rétt tæp 19 prósent af þeim hluthöfum sem tóku afstöðu á aðal- fundinum hefðu greitt atkvæði á móti tillögunni. Haft var eftir Páli Harðarsyni, for- stjóra Kauphallarinnar, í Viðskipta- blaðinu í síðustu viku að boða þyrfti annan hluthafafund að mati Kaup- hallarinnar. Þá sagði hann að Kaup- höllin horfði til þess að fylgi þyrfti að vera í kringum 90 prósent en þó með fyrirvörum um að hvert og eitt tilfelli væri mismunandi. Samkvæmt heimildum Markaðar- ins gætir nokkurrar kergju á meðal þeirra hluthafa Heimavalla sem vilja afskrá félagið vegna framgöngu Kaup- hallarinnar í þessu máli. Þeir furða sig á því að Kauphöllin vísi til þess að 18 prósent þeirra sem tóku afstöðu á fundinum hafi kosið gegn tillögunni. Af heildarhlutafé Heimavalla nemi atkvæðaréttur þeirra 11 prósentum. Þannig hafi 89 prósent ýmist kosið með tillögunni eða setið hjá. Draga lagastoð Kauphallarinnar í efa Lífeyrissjóðurinn Birta mun ekki standa í vegi fyrir afskráningu Heimavalla úr kauphöll. FRÉTTABLAÐIÐ \STEFÁN Þá telur sá hópur sem stendur að tilboðinu að Kauphöllin sé ekki í lagalegum rétti til að hafna afskrán- ingunni. Það sé skýrt í lögunum að henni beri að samþykkja slíka beiðni. Til þess að hafna henni þurfi að vera rök fyrir því að afskráningin sé að valda hluthöfum verulegu fjár- tjóni eða hún muni hafa neikvæð áhrif á trúverðugleika hlutabréfa- markaðarins. Hvorugt eigi við í þessu tilfelli. Þvert á móti geti ákvörðun Kaup- hallarinnar valdið hluthöfum skaða með því að leggja í hættu að hlut- hafar geti selt bréfin á hæsta verði frá skráningu félagsins. Þá telja margir hluthafar samkvæmt heim- ildum Markaðarins óþarft að bera tillögu um afskráningu félagsins úr kauphöll aftur undir hluthafafund, enda hafi yfirgnæfandi meirihluti nú þegar samþykkt afskráninguna. Vilja ekki stilla viðmið lægra Páll Harðarson segir í samtali við Markaðinn að Kauphöllinni beri rík skylda til að horfa til minni- hlutaverndar. „Við erum með þessu að styðjast við álíka viðmið og aðrar Nasdaq-kauphallir sem starfa í sams konar regluumhverfi og við. Við ráðfærðum okkur við okkar kollega og fórum vel yfir þau viðmið sem gilda við svona ákvarðanir og okkar niðurstaða var sú að þetta ferli sem hér er boðið upp á hefði ekki verið samþykkt af öðrum kauphöllum Nasdaq og ekki í öðrum Norðurlandakauphöllum.“ Páll spyr hvort stilla eigi viðmiðin lægra á Íslandi en í nágrannaríkjum hvað þetta varðar. „Eigum við að setja minnihlutaverndinni meiri takmarkanir hér á landi heldur en í öðrum löndum sem við viljum bera okkur saman við? Okkar niður- staða var sú að það væri mjög slæmt upp á trúverðugleika markaðarins að gera það.“ Birta sat hjá Lífeyrissjóðurinn Birta er lang- samlega stærsti lífeyrissjóðurinn í hluthafahópi Heimavalla með 5,8 prósenta hlut. Birta sat hjá í atkvæðagreiðslunni á aðalfundi Heimavalla að sögn Ólafs Sigurðs- sonar, framkvæmdastjóra sjóðsins. „Við vorum ekki sátt við tillöguna um afskráningu félagsins þar sem við hefðum viljað sjá það lengur á markaði,“ segir Ólafur í samtali við Markaðinn. Hann segir að Birta hafi ekki viljað taka afstöðu án þess að vera viss um fylgi hluthafa við til- löguna. Nú sé ljóst að mikill meiri- hluti sé henni fylgjandi og því muni sjóðurinn ekki standa í vegi fyrir afskráningu. „Ef boðað verður til hluthafa- fundar þá getur vel verið að við tökum afgerandi afstöðu og mér finnst líklegra að afstaðan verði með afskráningu.“ Óánægju gætir vegna höfnunar Kauphallar- innar á afskráningu Heimavalla. Tilboðs- gjafar telja enga laga- stoð fyrir ákvörð- uninni. Forstjóri Kauphallarinnar segir skylduna til að vernda minnihluta ríka. Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is 1 . M A Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN 0 1 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 E 7 -A 0 4 C 2 2 E 7 -9 F 1 0 2 2 E 7 -9 D D 4 2 2 E 7 -9 C 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.