Fréttablaðið - 01.05.2019, Side 54

Fréttablaðið - 01.05.2019, Side 54
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Bjarna Karlssonar BAKÞANKAR FYRIR SVANGA FERÐALANGA *0,5 l gos í plasti frá Ölgerðinni. Tilbúin vara, ekki hægt að breyta. TORTILLA OG GOS* COMBO VERÐ: 499KR Verkalýðshreyfingin í landinu hefur eflst síðustu misseri með nýju forystufólki. Sól- veig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var í áhugaverðu viðtali hér í blaðinu sl. laugardag. Hún talar skýrum orðum um nýfrjáls- hyggjuna og þá staðreynd að þar er unnið að hagsmunum hinna fáu á kostnað hinna mörgu. Mögnuð kona þar á ferð. Í viðtalinu var á það minnst að Sólveig Anna sé stundum stóryrt og enda þótt hún styðjist við margt í kristinni hugmynda- fræði þá myndi hún aldrei bjóða hinn vangann. Jesús frá Nasaret var líka stóryrtur þegar hann gagnrýndi ríkjandi valdastétt, kallaði þá hræsnara, líkti þeim við kalkaðar grafir og sakaði þá um að „éta upp heimili ekkna og flytja langar bænir að yfirskini“. Hann hefði aldrei hvatt kúgaðan verkalýð til að bjóða hinn vangann. Tillaga hans varðandi hinn vangann sem skráð er í fjallræðunni í fimmta kafla Matteusarguðspjalls er hvatning til að halda tilfinningalegu sjálfstæði í samskiptum við ofbeldisfólk: „Slái einhver þig á hægri kinn þá bjóð honum einnig hina.“ Högg á hægri kinn er hinn klassíski löðrungur sem veittur er með handarbaki í því skyni að hrella fólk og segja því að halda sig á mottunni. Með því að bjóða vinstri vangann í ofbeldisaðstæðum er maður að segja: Já, já, allir geta beitt ofbeldi. Ég beygi mig ekki fyrir því heldur stend ég upprétt(ur) og lít hvorki upp né niður til þín. Ef þú ætlar að halda áfram að berja mig skaltu slá mig á hinn vangann sem jafningja. Þannig vakti hann athygli á þriðju leiðinni andspænis öllu ofbeldi; gera ekki árás, flýja ekki af hólmi en standa kyrr í sínum sannleika. Þannig býður Sólveig Anna hinn vangann þegar hún lætur ekki setja sig niður en stendur jafnfætis og tekur höggin. Höggin vinstramegin Herra Hnetusmjör og Friðrik Dór labba inn, labba út á skemmtilegum stöðum í nýjasta þætti af Kling Kling. Skemmtu þér yfir þættinum sem er kominn í Sjónvarp Símans Premium og appið. 0 1 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 E 7 -6 E E C 2 2 E 7 -6 D B 0 2 2 E 7 -6 C 7 4 2 2 E 7 -6 B 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.