Fréttablaðið - 01.05.2019, Blaðsíða 36
Það er alveg sama hversu oft
hetjur lyklaborðs-
ins halda einhverju fram.
Það verður ekkert satt
fyrir vikið. Það er þetta
sem mér finnst við þurfa
að svara.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
ferðamála, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra
Stjórnar-
maðurinn
28.04.2019
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 1. maí 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Hagnaður af rekstri Íslandshótela, einnar
stærstu hótelkeðju landsins, meira en þre-
faldaðist í fyrra og var samtals 1.430 millj-
ónir króna borið saman við rúmlega 400
milljónir 2017. Stjórn Íslandshótela, sem
er að stærstum hluta í eigu Ólafs D. Torfa-
sonar, stjórnarformanns félagsins, leggur
til að greiddur verði arður til hluthafa að
fjárhæð 300 milljónir króna.
Tekjur Íslandshótela jukust um rúm-
lega 700 milljónir á síðasta ári og námu
samtals 12,1 milljarði króna. Íslandshótel
reka sautján hótel um allt land, þar af sex
í Reykjavík. Endurmat á fasteignum og
lóðum dróst verulega saman milli
ára og nam 420 milljónum borið
saman við 2,8 milljarða árið áður.
Hagnaður fyrir afskriftir, fjár-
magnsliði og skatta (EBTIDA) nam
tæplega 3,4 milljörðum og jókst
um rúmlega 400 milljónir. Eignir
Íslandshótela voru bókfærðar á
nærri 40 milljarða í árslok 2018 og
eigið fé var 16,8 milljarðar. – hae
Hagnaður Íslandshótela jókst um milljarð
Davíð Torfi
Ólafsson fram-
kvæmdastjóri.
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar,
endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar
viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði.
Hámarkaðu árangurinn þinn
og verðmæti með því að nýta þér
fjölbreytta þekkingu og víðtæka
reynslu PwC á öllum sviðum rekstrar
Verðmæti
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar
Kannanir í Bretlandi benda til þess
að mikill meirihluti kjósenda telji að
mistök hafi verið að halda þjóðar
atkvæðagreiðsluna um útgöngu
úr Evrópusambandinu sumarið
2016. Skyldi engan undra enda
hefur Brexit enn einu sinni verið
frestað, nú síðast til haustsins. Hvað
þá verður veit enginn enda virðist
sem þinginu sé ómögulegt að ná
saman um næstu skref í málinu. Ef
spurningin er einfölduð enn frekar
og spurt hvort Bretland eigi að vera
inni eða úti er niðurstaðan enn
meira afgerandi. Tæplega 60% vilja
að Bretar verði áfram í Evrópusam
bandinu.
Því er varla ofsagt að mikill meiri
hluti Breta telji að mistök hafi verið
gerð sumarið 2016. Kappið hafi
borið skynsemina ofurliði. Það
er nefnilega þannig að atkvæða
greiðslan um Brexit var hluti af
öðru og stærra fyrirbæri. Uppreisn
kjósenda gegn hinni hefðbundnu
vestrænu pólitík. Kjör Donalds
Trump til forseta Bandaríkjanna
er ef til vill ýktasta dæmið, en hér á
landi mætti kannski telja til sigur
Jóns Gnarr og Besta flokksins í
borgarstjórnarkosningunum um
árið. Hægfara eftirgjöf fjórflokksins
er svo kannski annað.
Ef Jón Gnarr og krankleiki fjór
flokksins er íslenska útgáfan af
Brexit getum við sennilega prísað
okkur sæl. Við sluppum vel, og
fengum meira að segja ágætan
borgarstjóra í kaupbæti. Raunar má
segja að kjör Trumps sé heldur ekki
jafn afdrifarík aðgerð. Hann mun að
minnsta kosti ekki sitja á valdastóli
til eilífðarnóns. Raunar bara í rúma
átján mánuði til viðbótar ef allt
fer að óskum. Brexit er hins vegar
varanlegt. Ólíklegt er að Bretland
geti aftur gengið til Evrópusam
bandsins nema í verulega breyttri
mynd. Lygarnar og tækifæris
mennskan sem tryggði Brexitliðum
sigur í þjóðaratkvæðagreiðslunni
2016 hafa valdið varanlegu tjóni.
Fúkyrðaflaumur Trumps þagnar
hins vegar að lokum.
Nú virðist sem einhvers konar
BrexitTrumpísk hreyfing sé að
myndast á Íslandi gegn hinum svo
kallaða Þriðja orkupakka. Það þrátt
fyrir að allir helstu sérfræðingar
telji hann vita meinlausan, en Skúli
Magnússon sagði á eftirminnilegan
hátt að það væru „lögfræðilegir
loftfimleikar“ að halda því fram
að í pakkanum fylgdi framsal á
fullveldi í orkumálum. Auðvitað er
það svo að Þriðji orkupakkinn er
ekki annað en strámaður, og sem
slíkur skilgetið afkvæmi Trumps og
Brexit. Vítin eru þar til að varast.
Brexit-Trump
pakkinn
0
1
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
E
7
-A
0
4
C
2
2
E
7
-9
F
1
0
2
2
E
7
-9
D
D
4
2
2
E
7
-9
C
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K