Fréttablaðið - 01.05.2019, Page 50

Fréttablaðið - 01.05.2019, Page 50
Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM* Valdar vörur með EXTRA afslætti OPIÐ Í DAG 1. MAÍ KL. 1200–2200 *Aðeins í dag 1. maí 2019. Gildir ekki ofan á önnur tilboð eða af vörum frá Skovby. Ekki af sérpöntunum og aðeins á meðan birgðir endast. Job.is Þú finnur draumastarfið á Hú n er 27 á r a gömul og ólst upp í Vestur bænum. Í æsku var hún mikið í íþróttum og þá sérstaklega körfubolta, en í honum þótti hún mjög efnileg og kom meira að segja til tals að stefna á landsliðið. En sá draumur  varð f ljótt úti í kjölfar þess að hún varð fyrir meiðslum 17 ára gömul. Bríet ólst upp í mjög listelskri fjölskyldu, sem vafalaust hafði sín áhrif, enda segir hún aldr- ei neitt annað hafa komið til greina en að verða leikkona. „Mig langaði náttúrulega að gera allt sem er í boði í heiminum eins og marga unga krakka með öflugt ímyndunaraf l en leiklistin var alltaf þarna á toppnum hjá mér. Ég hélt mikið upp á leikarann Orlando Bloom en það var einmitt setning frá honum sem ég las í viðtali sem gerði útslagið. Hann sagði eitthvað á þá leið að sem leikari þá sé maður í raun í hvaða starfi sem er, einn daginn leiki maður kannski kúreka og þann næsta geimfara. Og þá var það ákveðið, ég myndi verða leik- kona.“ Krókurinn beygðist snemma og Bríet segir að sem barn hafi hún alltaf verið búa til leikrit og með uppistand og atriði. „Litla leikkonan gerði allt fyrir athygli,“ segir Bríet hlæjandi en bætir svo við: „Ég hefði aldrei getað lifað með sjálfri mér ef ég hefði að minnsta kosti ekki látið reyna á leiklistina. Það er uppskrift að hörmung að fylgja ekki hjartanu og láta það ráða för. Ég hef líka áhuga á markþjálfun og stefni á að prufa það með leiklistinni þegar tími gefst. Vonandi get ég þá hvatt aðra Bríet gerir það gott í Hollywood Bríet Kristjánsdóttir, eða Brie Kristiansen eins hún er kölluð á er- lendri grundu, starfar sem leikkona í Hollywood og hefur gert það gott í sjónvarpsþáttum á borð við Life as a Mermaid, It Takes a Killer og Corrupt Crimes. Það hefur margt spennandi á daga hennar drifið síðan hún flutti út en Fréttablaðið fékk að spyrja Bríeti um lífið úti, ljótar hliðar bransans, samkeppnina og ástríðuna fyrir leiklistinni. „Það er uppskrift að hörmung að fylgja ekki hjartanu og láta það ráða för,“ segir Bríet. MYND/JONATHAN EDZANT ÉG HEF ÞVÍ MIÐUR OFTAR EN EINU SINNI LENT Í ÞVÍ AÐ VERA ÁREITT OG HÓTAÐ ÖLLU ILLU FYRIR AÐ SETJA MÍN MÖRK ÞEGAR EINHVER ER AÐ FARA YFIR STRIKIÐ. 1 . M A Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 0 1 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 E 7 -9 6 6 C 2 2 E 7 -9 5 3 0 2 2 E 7 -9 3 F 4 2 2 E 7 -9 2 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.