Fréttablaðið - 01.05.2019, Blaðsíða 52
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
LÉTTÖL
MUGISON
JóiPé x Króli
GDRN
FRÍTT INN
1. MAÍ
SAMSTÖÐUTÓNLEIKAR
BÆJARBÍÓ 1. MAÍ KL. 15:00
Verkalýðsfélagið Hlíf og STH bjóða til tónleikanna
og er frítt inn á meðan húsrúm leyfir.
Einnig verður boðið upp á léttar veitingar, gosdrykki, kaffi og sælgæti.
Við opnum Bæjarbíó kl 14:30 og hvetjum fólk til að mæta tímanlega
því það er viðbúið að húsið fyllist á stuttum tíma.
Sýnum samstöðu og samgleðjumst í Bæjarbíói
til að gera það sama og ég hef verið
að gera, að elta draumana sína.“
Bríet viðurkennir þó að þetta
hafi ekki alltaf verið dans á rósum
og lífið í Hollywood hafi stundum
verið hark.
„Ég var svo sannarlega ekki
eina stelpan sem var nýkomin til
LA, tilbúin að bóka öll hlutverkin
í bænum. Þetta tók allt saman
langan tíma og það er mjög erfitt
að komast í leikinn ef svo mætti að
orði komast. Það er líka miður hvað
margir í bransanum eru tilbúnir að
segja þér að gefast bara upp. Mér
hefur mörgum sinnum verið sagt
að gefast upp, að ég ætti að grenna
mig, haga mér öðruvísi, breyta á
mér hárinu, mála mig meira, vera
fyndnari og vera ófyndnari. Mér
skilst að megnið af fólki gefist bara
upp og ég skil það vel.“
Bríet segir þetta ekki vera fyrir
alla og að augljóslega dragi þetta
mann niður á köflum. En svo fær
hún kannski skemmtilegt verk-
efni og það minnir hana á að halda
í trúna.
„Svo um leið og maður nær að
bóka eitthvert gott verk og áhuga-
vert hlutverk, þá fer þetta að leiða
eitt af öðru. Maður kynnist fólki
og boltinn fer að rúlla. Þá getur oft
verið meira en nóg að gera.“
Hún ber leiklistarskólanum og
náminu þar ekki vel söguna en vill
þó minnst um það tala.
„Ég vil bara einbeita mér að því
góða og jákvæða enda hefur það
hugarfar komið mér langt. Það er
óþarfi að dvelja við það leiðinlega.“
Bríet hefur leikið í nokkrum
íslenskum verkefnum undanfarin
ár og segir að sér finnist það alltaf
jafn gaman. Henni finnst margt
skemmtilegt vera að gerast í brans-
anum heima, sem henni þætti
gaman að fá að taka þátt í.
„Það er aðallega snjórinn
sem fældi mig í burtu svona
upprunalega,“ segir hún
hlæjandi. ,,En það er alltaf
jafn gaman að koma heim,
hvort sem það er fyrir verk-
efni eða frí,“ bætir hún við.
Bríet hefur verið með
annan fótinn í London
og segir það einstaklega
fræðandi að upplifa leik-
listarheiminn á þremur svona
ólíkum stöðum. Hún segir að
það sé mikill munur á að leika
í London, á Íslandi og í LA.
„Það er allt annað að leika
á móðurmálinu en ensku og
það tekur tíma að venjast því. Svo
er stíllinn gjörólíkur. Í Hollywood
snýst þetta allt um glamúrinn. Þar
þykir bara eðlilegt að konur séu
alltaf stífmálaðar, með gerviaugn-
hár og fullkomið hár þegar þær leika
í senum þar sem þær vakna úr dái
eftir bílslys eða álíka. Heima er þetta
allt öðruvísi og almennt í Norður-
Evrópu, þar er meira raunsær stíll.“
Hún segist hafa alveg jafn gaman
af því að leika á sviði og í kvikmynd
en í Los Angeles snúist þetta meira
um filmuna og því hefur hún verið
mest í því undanfarið.
„Ætli ég taki ekki einhver ár í
viðbót í þeim pakka og svo langar
mig að reyna taka einhver sviðs-
verk eftir það. Ef allt gengur eftir
áætlun mun ég vonandi fá tæki-
færi á sviðinu á Íslandi. Það er alveg
gjörólíkt að leika á sviði og í kvik-
mynd, í raun sitthvor vinnan finnst
mér. Ég ber mikla virðingu fyrir
góðum sviðsleikurum og finnst
magnað þegar manneskja nær að
hreyfa við hundruðum manna með
orðunum einum á sviðinu.“
Kvikmyndaleikurinn er líka
krefjandi, þótt hann sé gjörólíkur,
að sögn Bríetar. Hann sé mun erfið-
ari en marga gruni og hún hafi nán-
ast gefist upp eftir að hafa leikið í
fyrstu senunni sinni í upptöku. En
Bríet neitaði að gefast upp og hún
var ákveðin í að læra.
„Ég vissi að mér liði vel á sviði og
ég var mjög örugg með leiklistar-
hæfileika mína. Við tók ströng og
mikil þjálfun í leiklist á filmu og ég
þurfti að læra talsmátann, amer-
íska hreiminn. En ég tala kannski
bara fyrir sjálfa mig en mér finnst
það hafa tekist frekar vel,“ segir
hún brosandi.
Bríeti finnst einstaklega gaman
að leika illmenni. Illar kvenper-
sónur í þáttum og leikritum séu
oft f lóknar og það sé krefjandi að
leika þær. Á sínum tíma rataði Bríet
í fjölmiðla fyrir þær sakir að hafa
fótbrotnað degi fyrir frumsýningu
á Bugsy Malone þegar hún var í
Verslunarskólanum. Sýningar skól-
ans eru oft stórt batterí og komu
alls 140 manns að sýningunni.
„Tíminn var það naumur að ekki
var unnt að fá annan leikara í minn
stað. Svo ég bara lék í hjólastólnum.
Og Gunnari Helgasyni leikstjóra
fannst það koma svo vel út að ég
hélt áfram að vera í hjólastólnum
í sýningunni þótt ég þyrfti ekki á
honum að halda. Gunnar breytti
líka handritinu svo ég gæti fengið
að leika vonda karlinn, sem varð
svo vonda konan, sem mér fannst
algjör draumur og var ótrúlega
gaman og ég á margar góðar minn-
ingar úr þeirri uppsetningu.“
Talinu víkur því næst að þeim
mikla og góða uppgangi sem
#metoo byltingin hefur náð í
Hollywood og þeirri þöggun sem
hún hefur reynt að uppræta en
Bríet segir þá hegðun sem barist
hefur verið gegn enn við lýði í
borginni.
„Margt af því sem var reynt að
stöðva er enn í gangi og því þarf
maður að hafa varann á. Ég hef því
miður oftar en einu sinni lent í því
að vera áreitt og hótað öllu illu fyrir
að setja mín mörk þegar einhver er
að fara yfir strikið. Ég vona innilega
að þessi óviðeigandi hegðun sé að
deyja út og legg mitt af mörkum
og geri það sem ég get til að hjálpa.
Fólk er orðið meira vart við það
hvað er í gangi og með augun opin
fyrir vandanum.“
Hún segir að það hafi verið erfitt
að finna góða vini til að byrja með,
samkeppnin var mikil og því flókið
að kynnast öðrum í sömu stétt.
Hún hafi þó kynnst hópi fólks sem
styður hvert annað, það hafi verið
henni mikilvægt að hafa rétta
fólkið í kringum sig, fólk sem vill
manni það besta.
„Minn draumadagur hérna í LA
væri að byrja daginn með kaffi-
bolla og bók, hugleiða og fara í
göngu í fjöllunum hér í kring. Setj-
ast svo niður í spjall með vinum
mínum og hjálpast að við að ná
markmiðum okkar. Hljómar eins
og klisja, en það er alveg satt. En
stærsti draumurinn er auðvitað að
fá að halda áfram að lifa á listinni,“
segir Bríet glaðleg að lokum.
steingerdur@frettabladid.is
Samkeppnin í Los Angeles er mikil. MYND/ANTONÍA LÁRUSDÓTTIR
Plakat fyrir kvikmyndina ECO sem
Bríet lék eitt aðalhlutverkið í.
MYND/FORLOVE PRODUCTIONS
1 . M A Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
1
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
E
7
-8
2
A
C
2
2
E
7
-8
1
7
0
2
2
E
7
-8
0
3
4
2
2
E
7
-7
E
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K