Morgunblaðið - 23.01.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
fyrirtækisins, hefur sent núverandi
hluthöfum er útgefið hlutafé fyr-
irtækisins nú tæpar 4,8 milljónir
hluta. Í útboðinu sem nú er unnið
að verða nýir hlutir ekki seldir á
gengi sem nemur lægri fjárhæð en
14 dollurum á hlut. Í fjárfesta-
kynningu er hins vegar bent á, líkt
og áður greinir, að hlutir í félaginu
hafi nýlega gengið kaupum og söl-
um á 16,5 dollara á hlut. Verði
neðri verðmörkin niðurstaðan
verður hlutafé félagsins aukið um
535 þúsund hluti en verði gengið
16,5 dollarar á hlut verður það auk-
ið um 454 þúsund hluti, eða rétt
tæplega 10%. Hlutafjáraukning-
unni er ætlað að stuðla að frekari
vexti félagsins á komandi árum,
jafnt innri sem ytri vexti. Þannig
er upplýst í fyrrnefndu bréfi til
hluthafa að Kerecis hafi m.a. auga-
stað á svissnesku fyrirtæki sem
stutt gæti við frekari vöxt og að
tekið sé tillit til mögulegrar yfir-
töku í hlutafjáraukningunni.
Margfaldar söluna milli ára
Á síðustu árum hafa tekjur Ker-
ecis margfaldast. Þannig seldi fyr-
irtækið vörur fyrir 515 þúsund
dollara árið 2016 eða jafnvirði 62
milljóna króna. Ári síðar var salan
meira en þrefalt meiri og nam 1,7
milljónum dollara, jafnvirði 205
milljóna króna. Í fyrra margald-
aðist salan einnig og nam 4,6 millj-
ónum dollara, jafnvirði tæplega
554 milljóna króna. Viðskiptaáætl-
anir fyrirtækisins gera ráð fyrir að
salan nemi svo 13,5 milljónum doll-
ara í ár, jafnvirði ríflega 1,6 millj-
arða króna. Þá segir í fyrrnefndu
bréfi til hluthafa að á næsta ári sé
stefnt að því að þrefalda söluna frá
árinu í ár þannig að hún nemi þá
allt að 40 milljónum dollara, jafn-
virði 4,8 milljarða króna.
Kerecis leitar fjármagns
Verðmætasköpun Kerecis byggir
vöruþróun sína á efnum úr fiskroði.
Fyrirtækið metið á allt að 9,5 milljarða króna Hyggjast sækja 7,5 milljónir
dollara í nýju hlutafé Stefna á að selja vörur fyrir 4,7 milljarða króna árið 2020
23. janúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 120.82 121.4 121.11
Sterlingspund 155.32 156.08 155.7
Kanadadalur 90.92 91.46 91.19
Dönsk króna 18.404 18.512 18.458
Norsk króna 14.11 14.194 14.152
Sænsk króna 13.402 13.48 13.441
Svissn. franki 121.16 121.84 121.5
Japanskt jen 1.1015 1.1079 1.1047
SDR 167.99 168.99 168.49
Evra 137.42 138.18 137.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.71
Hrávöruverð
Gull 1278.7 ($/únsa)
Ál 1850.0 ($/tonn) LME
Hráolía 62.74 ($/fatið) Brent
Kvika Securities Ltd., dótturfélag
Kviku í Bretlandi, hefur fengið
starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfra
sjóða af breska fjármálaeftirlitinu.
Starfsleyfið hefur í för með sér aukn-
ar heimildir fyrir Kviku Securities til
þess að stýra sérhæfðum sjóðum í
Bretlandi en hingað til hefur starf-
semi Kviku þar í landi verið í formi
ráðgjafarstarfsemi, aðallega varðandi
fjármögnun og fjárfestingar.
Kvika Securities hefur verið starf-
andi í Bretlandi í rúmlega tvö ár og
hefur á þeim tíma leitt hópa fjárfesta,
viðskiptavina bankans, bæði ís-
lenskra sem erlendra, í fjárfestingum
í Bretlandi. Á meðal þeirra fjárfest-
inga eru 30 milljóna punda fjárfesting
í lánastarfsemi og fjárfesting í hjúkr-
unarheimilum upp á 25 milljónir
punda. Samanlagt nema þessar fjár-
festingar rúmum 7 milljörðum króna
á gengi dagsins í dag. Þetta kemur
fram í samtali Morgunblaðsins við
Gunnar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóra Kviku í Bretlandi. „Þetta
aukna starfsleyfi veitir okkur getu til
þess að stýra eignum í Bretlandi með
formlegum hætti sem er ekki búið að
vera eitthvað sem við höfum getað
gert hingað til.“ Að sögn Gunnars er
stefnt að því að starfsemi Kviku í
Bretlandi muni áfram tengjast svip-
uðum verkefnum og hingað til hefur
verið unnið að sem og sérhæfðum
eignaflokkum, svo sem í skuldabréfa-
og fasteignaverkefnum. „Í kjölfar
þessa leyfis getum við þá tekið næsta
skref í okkar þróun og stýrt eignum
með formlegum hætti og þannig veitt
viðskiptavinum okkar víðtækari þjón-
ustu.“
Kvika fær víðtækari heimildir
til þess að stýra fjárfestingum
Mun áfram beina sjónum að skuldabréfa- og fasteignaverkefnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjóðir Kvika fékk starfsleyfi sem
rekstraraðili sérhæfðra sjóða ytra.
● Frekar rólegt var um að litast í Kaup-
höll Íslands í gær, en Úrvalsvísitala að-
allista lækkaði um 0,24%.
Mest hækkuðu bréf tryggingafélags-
ins VÍS, eða um 1,01% og næstmesta
hækkunin varð á bréfum leigufélagsins
Heimavalla, en bréf þess hækkuðu um
0,88%. Þá hækkuðu bréf Haga um
0,79%. Mesta lækkunin varð á bréfum
tæknifyrirtækisins Origo, 0,94% en
næstmest lækkaði Arion banki eða um
0,56%. Þá lækkaði Síminn um 0,54%.
Úrvalsvísitala aðallista
lækkaði um 0,24%
STUTT
Í bréfi til hluthafa kemur fram að keppinautur MiMedx, eigi nú í veruleg-
um vanda vegna brotthvarfs helstu stjórnenda þess, forstjóra, fram-
kvæmdastjóra og fjármálastjóra, afskráningar af NASDAQ-hlutabréfa-
markaðnum og yfirstandandi sakamálarannsóknar. Í ofanálag hefur
fyrirtækið vegna erfiðleikanna sagt upp um fjórðungi sölumanna sinna á
síðustu mánuðum.
Telja forsvarsmenn Kerecis að þessir erfiðleikar á vettvangi MiMedx
skapi tækifæri til að fylla það tómarúm sem af þeim hlýst. Í umfjöllun um
þessa stöðu á markaðnum kemur fram að tekjur MiMedx hafi numið 1
milljón dollara árið 2011 en hafi á árinu 2017 numið 325 milljónum doll-
ara, jafnvirði ríflega 39 milljarða króna.
Sóknarfæri á markaði
STÓR KEPPINAUTUR Í ÚLFAKREPPUBAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Nýsköpunarfyrirtækið Kerecis
vinnur nú að hlutafjáraukningu og
hefur í því skyni nálgast núverandi
hluthafa sína. Skv. upplýsingum
sem Morgunblaðið hefur undir
höndum er stefnt að því að afla fyr-
irtækinu 7,5 milljóna dollara, jafn-
virði ríflega 900 milljóna króna,
með útgáfu nýs hlutafjár. Enn sem
komið er liggur ekki fyrir á hvaða
gengi hið nýja hlutafé verður selt
en miðað við nýleg viðskipti með
óverulegan hlut í félaginu er heild-
arvirði fyrirtækisins fyrir hluta-
fjáraukninguna 9,5 milljarðar
króna.
Kerecis var stofnað árið 2009 en
það framleiðir sáraumbúðir sem
hafa að geyma efni úr þorskroði
sem notað er til að hjálpa húð- og
líkamsvef að gróa eftir slys, skurð-
aðgerðir og sjúkdóma af ýmsu tagi.
Meðal þeirra sem nýtt hafa sér
tækni fyrirtækisins eru sjúklingar
sem orðið hafa fyrir vefjamissi eft-
ir brjóstatöku eða krabbameins-
meðferð, sykursýkissjúklingar sem
glíma við fótasár vegna sjúkdóms-
ins og ýmsir fleiri.
Samkvæmt bréfi sem Guðmund-
ur Fertrand Sigurjónsson, forstjóri