Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Side 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.1. 2019 S tína er ein af þessum konum sem manni finnst geta staðið undir heit- inu kvenskörungur. Með eldrautt sítt hár og bros á vör opnar hún dyrnar og býður blaðamanni inn í hlýjuna. Lífið hefur ekki farið mjúkum höndum um hana en hún gefst ekki upp þótt móti blási. Eftir lát eiginmannsins Kidda hefur Stína gengið í gegnum erfiða sorgartíma. Með góðri hjálp og dugnaði er hún komin út úr mesta svartnættinu. Nú reynir Stína að lifa lífinu eins og Kiddi hennar hefði viljað, að hafa gaman af lífinu og nýta hverja stund því enginn veit hve- nær kallið kemur. Yfir góðum kaffibolla á fallegu heimili hennar í Hafnarfirði segir Stína frá lífinu, fyrir og eftir dauða Kidda. Hún hikar ekki við að nota húm- orinn mitt í sorginni, en Stína er hlý, jákvæð og hláturmild. Frábært, ég hef fimm ár Sjötti apríl 2006 líður Stínu seint úr minni en þann dag greindist Kiddi fyrst með æxli í heila, þá 24 ára gamall. Stína var þá 21 árs og áttu þau eitt ungt barn, frumburðinn Ísak Þór. „Þetta var góðkynja heilaæxli og við tók að- gerð þar sem tekið var sýni og svo átti bara að bíða og sjá til. En ári síðar hafði æxlið stækkað og hann fór í aðra aðgerð og þá kom í ljós að þetta var orðið að krabbameini. Þá fór hann í þrjátíu skipti í geisla og svo í átta mánaða lyfja- meðferð. Árið 2009 fengum við svo að vita að æxlið væri horfið. Læknarnir skildu það ekki því þeir höfðu ekki haldið að Kiddi fengi langan tíma.“ Stína segir Kidda alltaf hafa verið jákvæðan og lífsglaðan, sama hvað á dundi. „Þegar ég horfi til baka finnst mér eins og hann hafi vitað að hann myndi ekki lifa lengi. Hann ætlaði að nýta allt úr þessu lífi. Þegar hann greindist fyrst kom hann upp í vinnu til mín á miðjum degi og sagði: „æ, þetta er kannski dálítið ljótt orð en ég er kominn með heilaæxli“. Ég fékk auðvitað sjokk en hann sagði mér að slaka á. Sem betur fer ákváðum við að gúggla ekki heilaæxli heldur hlusta bara á það sem læknirinn segði. Annars hefði ég komist að því að þessi tegund myndi koma aft- ur. Við áttum alveg góða tíma frá 2009 til 2014 en þá var mig farið að gruna að það væri eitt- hvað í gangi,“ segir Stína. „En þarna á milli geisla og lyfjameðferðar- innar árið 2007 vildi Kiddi vita hvað hann myndi lifa lengi og læknirinn sagði í mesta lagi fimm ár. Flestir hefðu sagt, guð minn góður, ég hef bara fimm ár, en hann svaraði þá, „frábært, geggjað, ég hef fimm ár!“ Og hann var virkilega að meina það,“ segir hún og brosir. Betra að vera ein með tvö börn „Á þeim tímapunkti var ég heltekin af því að ég vildi ekki vera ein með eitt barn og vildi ég að Ísak Þór myndi eignast systkini,“ segir hún og útskýrir að þeim var ráðlagt að frysta sæði vegna þess að Kiddi yrði líklega ófrjór af lyfj- unum. „Svo þegar við fórum í Art Medica til þess að frysta sæði vorum við spurð hvort við værum að spá í barneignir í framtíðinni. Og ég svaraði: „já, núna!“ Kiddi horfði á mig hissa en ég sagði honum að ég ætlaði ekki að vera ein með eitt barn. Hann sagði þá: „hún ræður þessu, ég er að fara að drepast“,“ segir Stína og skellihlær. „Þarna var ég 23 ára og búin að ákveða að ég ætlaði ekki að vera ein með eitt barn, heldur tvö, það væri miklu betra,“ segir hún og hlær enn meir. „Þannig í staðinn fyrir að frysta sæði fór ég beint í tæknifrjóvgun sem heppnaðist í fyrstu tilraun. Ég segi stundum að við höfum verið saman á meðgöngu, ég ólétt og hann í lyfja- meðferð. Hann kláraði lyfjameðferð í október, sama mánuði og dóttir okkar Agla Björk fædd- ist,“ segir Stína og lýsir því að þegar komið var að fæðingu hafi hún leyft Kidda að sofa sem mest því hann var mjög veikur. Hún vildi að hann myndi safna kröftum til þess að vera við- staddur sjálfa fæðinguna. Hún var því ein í hríðunum og gekk um gólf. Á sömu stofu var annað par. Eiginmaðurinn þar var aldeilis hissa á þessu; að Kiddi skyldi bara sofa og ekki styðja við konu sína sem væri nánast komin að fæð- ingu. „Ég hélt að hann myndi hjóla í Kidda. Ég sá svipinn á honum. Hann var farinn að bjóða mér aðstoð, þar til ég sagði honum sannleikann, að Kiddi væri að klára erfiða lyfjameðferð,“ segir hún. „Maður hugsar eftir á, hvernig datt okkur í hug að eignast annað barn, en það er þannig að þegar maður fær svona fréttir, að það sé ekki langt, eftir skiptir mestu máli að lifa. Að ein- blína ekki á dauðann heldur hvað maður getur gert í lífinu.“ Stína segir að hún hafi oft verið með miklar áhyggjur af framtíðinni en að Kiddi hafi alltaf verið jákvæður og lifað í núinu. „Frasinn hans var, lífið er frá a-ö, það er bara misjafnt hvað er langur tími á milli. Hvað ætlar þú að gera? Ætlar þú að vera með áhyggjur af einhverju sem gerist kannski eða ætlar þú að lifa lífinu núna?“ Innst inn var ég að deyja Á þessum tíma var mikið álag á Stínu. Hún var nýbúin að ganga í gegnum erfiða áhættu- meðgöngu, átti nú tvö lítil börn og veikan mann. Hún segist hafa haldið að hún væri með fæðing- arþunglyndi og leitaði til sálfræðings. Hann sagði þetta vera álagstengt en einnig þjáðist Stína af slæmum höfuðverk og var eitt sinn á spítala í fimm daga. „En þegar ég var búin að ganga á milli lækna í ár, og hélt að ég væri að missa vitið, fór ég til innkirtlasérfræðings. Þá var ég komin með vanvirkan skjaldkirtil. Ég var komin á breyt- ingaskeiðið og allt kerfið í vitleysu,“ segir hún og nefnir að henni hafi liðið betur eftir að hún fékk þá greiningu og rétta meðhöndlun. „Ég fór til sálfræðings en setti líka oft bara upp póker andlit; fór þetta bara á hnefanum. Mér fannst ég ekki geta verið með endalaust væl þegar Kiddi var svo hress, ég vildi ekki „Ég má gráta og ég má hlæja og þótt ég sé ekkja þá má mér finnast gaman. Nú er ég komin á þann stað að ég er tilbúin að halda áfram með lífið, þótt auðvitað söknum við Kidda.“ Morgunblaðið/Ásdís Kristín Þórsdóttir, eða Stína eins og hún er alltaf kölluð, er í dag ung ekkja með þrjú börn. Maður hennar Kristján Björn Tryggvason, kallaður Kiddi, lést í júlí 2017 úr heilakrabba. Eftir lát hans þurfti Stína að finna taktinn í lífinu upp á nýtt, ein með börnin. Nú, einu og hálfu ári síðar, hefur birt til í lífinu og ætlar Stína að nýta reynslu sína til að hjálpa öðrum og finna tilgang með dauða Kidda. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Hann dó með glott á vörum,alveg eins og hann væri aðhlæja að okkur þannig að viðhlógum bara, þar til við áttuðum okkur á því að hann væri dáinn í alvöru. Þá grétum við. Grátur og hlátur er bara sitt hvor endinn á sömu tilfinningu. En það var gott að hann kvaldist ekki þegar hann dó og hann fór með bros á vör. Skiptir mestu máli að lifa

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.