Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Side 15
27.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 að nýta það til þess að byggja mig upp, kannski var það það sem ég þurfti,“ segir Stína. Nokkrum dögum eftir að hún hóf námið í markþjálfun fór hún í ferðina. „Ég ákvað að ég mætti setja mig í fyrsta sæti og finna út hver ég væri, án Kidda. Hver er Stína, ekki Stína hans Kidda? Þótt það hljómi svo væmið þessi frasi að finna sjálfan sig, þá er það svo rétt. Ég var svo týnd, búin að tapa kjarnanum mínum.“ Hún segir ferðina hafa verið nákvæmlega það sem hún þurfti. „Þarna voru yndislegar konur á öllum aldri og það var slakað á og ég náði að meðtaka það sem ég hafði gengið í gegnum. Svo eru Asoreyjar fallegasti staður sem ég hef komið til. Þarna fann ég að mér mætti finnast gaman; ég hafði verið í sorg og fannst ég ætti að vera í sorg. En ég áttaði mig á að Kiddi hefði ekki viljað að mér þætti ekki gaman. Þarna hugsaði ég, ég ætla að taka Kidda á þetta. Lifa fyrir daginn í dag og gera það sem mér fannst gaman. Þegar ég kom til baka fannst mér eins og hefði birt til. Þetta breytti mér gjörsamlega. Ferðin var vendi- punktur á mínum bataferli.“ Að finna villikerlinguna Annað sem hjálpaði Stínu mikið á erfiðum tím- um var að sækja tíma og námskeið hjá Anda- gift. „Vinkonur mínar höfðu á þessum tíma opn- að Andagift, súkkulaðisetur. Þar er djúpslökun og tónheilun og þar er drukkið cacao. Mér fannst svo frábært að þær hefðu þorað að hætta í sínu og prófað eitthvað nýtt. Þær voru að fylgja draumum sínum og voru miklar fyrir- myndir fyrir mig. Ég fór á villikerlinga- námskeið hjá þeim en ég hafði sagt þeim að ég væri týnd og vildi fá útrás og fá að vera bara ég,“ segir Stína og útskýrir að á námskeiðinu á maður að finna „villikerlinguna“ í sér. „Af því við erum settar í kassa, allt frá bernsku. Sitja beinar, ekki vera brussur, vera sætar og fínar. Ekki segja of mikið þína skoðun. Maður á ekki að gráta heldur fara á hnefanum. Þarna voru komnar saman konur sem töluðu saman. Til að finna villikerlinguna í sér. Við fór- um í innri skoðun, við fórum í svett, við kveikt- um bál í Öskjuhlíð og brenndum miða þar sem við losuðum okkur við það slæma,“ segir hún. „Svo líður manni svo vel af því að drekka þetta súkkulaði og þetta hafði góð áhrif á gigt- ina mína. Líkaminn slakar á. Þarna er líka hægt að fara í hádegistíma og ég fer eins oft og ég get og syng möntrur, eitthvað sem ég vissi ekki að væri til. Það er gott að gefa sér tíma til að syngja möntrur, drekka súkkulaði, hlæja eða gráta. Andagift hefur verið björgunarbáturinn minn,“ segir Stína og segir þetta algjörlega magnaða upplifun. „Í öllu þessu stressi og þessum hraða í dag er gott að geta komið þarna inn og slakað á.“ Stína segist einnig hafa farið í meðferð sem nefnist EMDR sem er notuð við áfallastreitu. „Hún virkaði ótrúlega vel. Ég og krakkarnir höfum öll verið í þessu. Í stuttu máli er þetta að- ferð til þess að vista erfiðar minningar annars staðar í heilanum þannig að þær hafi ekki eins mikil áhrif á mann. Ég var hjá Margréti Blön- dal [hjúkrunarfræðingi og EMDR-meðferðar- fræðingi] sem er gullmoli, í hverri viku síðasta sumar og það breytti öllu fyrir mig.“ Sjálfsmynd og kynheilbrigði Stína kláraði markþjálfunarnám í Evolvia og er nú í framhaldsnámi sem hún klárar næsta vor. Hún fékk ACC-réttindi hjá alþjóðlegum mark- þjálfasamtökum nú í vikunni. Stína stofnaði ný- verið fyrirtækið Eldmóður markþjálfun og er strax komin með viðskiptavini og fer einnig í fyrirtæki. „Ég er að koma mér af stað í þessu, og fór líka í haust í brautargengi kvenna í Nýsköp- unarmiðstöð Íslands, af því að ég kann ekkert að reka fyrirtæki, þannig ég tók eina önn í því. Svo er ég að fara af stað með eitt ástríðuverk- efni sem er að tala um sjálfsmynd og kynheil- brigði við unglinga, fara í framhaldsskóla og grunnskóla. Ég fer í fyrsta skólann núna í jan- úarlok og vona að fleiri skólar óski eftir því að ég komi. Þetta er bland af forvarnarfræðslu og markþjálfun en þarna er ég að tala um reynslu mína en ég var unglingur með skerta sjálfs- mynd. Ég hefði þurft að heyra þetta þegar ég var sextán ára,“ segir hún. „Það er búið að vinna mikið í vímuefna- forvörnum síðustu tíu ár sem hefur borið mik- inn árangur en það mætti tala meira um kyn- heilbrigði og sjálfsmynd. Margir krakkar eru með brotna sjálfsmynd og sum þjást af kvíða og þunglyndi. Mér var nauðgað af tveimur strákum þegar ég var sextán ára og fékk ég ekki þá aðstoð sem ég hefði þurft að fá af því ég sagði engum frá þessu; enda taldi ég þetta sjálfri mér að kenna. Eftir þetta fór ég að drekka mikið og fór í sjálfskaðandi hegðun. Ég uppgötvaði ekki fyrr en hjá sálfræðingi þegar ég var 28 ára að þetta hefði verið nauðgun. Lík- aminn hafði slökkt alveg á sér; ég hljóp ekki út af því ég var lömuð. Það er svo mikið um þetta, og stelpur og strákar kenna sér um. Mig langar að segja krökkum að ekki segja ekki neitt. Ég get talað út frá reynslu og mér finnst mikilvægt að opna á umræðuna. Þarna er ég að finna til- gang í því slæma sem gerðist.“ Annað sem Stína hefur áhuga á er kynlífs- markþjálfun. Blaðamaður viðurkennir að vita ekkert um hvað það snýst. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á öllu sem viðkemur kynlífi og mig langaði að verða kyn- fræðingur. En það er langt og mikið nám og þegar ég byrjaði í markþjálfun sá ég að það er til eitthvað sem heitir „sex coach“. Það er ótrú- lega algengt erlendis. Þá tekur maður fólk í við- töl og tekur annan vinkil en kynlífsráðgjafar. Mig langar að læra meira um þetta, til að geta talað við bæði unglinga og fullorðna. Kynlíf er svo mikið tabú en ætti ekki að vera það. Það gæti verið svo auðvelt að leysa vandamál ef það væri opnað á umræðuna,“ segir hún. „Ég er líka markþjálfi hjá Krafti en mig langar að gefa til baka af því að við fengum þar svo mikinn stuðning. Það var til dæmis aldrei talað um kynlíf og krabbamein. Það er svo margt sem maður upplifði þessi ellefu ár sem Kiddi var með krabbamein sem maður ekki þorði að ræða. Ég ætla að ræða opinskátt um það sem fáir tala um, en ég var með vinnustofu núna í janúar hjá Krafti, ég og Áslaug Krist- jánsdóttir kynfræðingur, til að opna um- ræðuna,“ segir hún. Það gekk ótrúlega vel og var greinilega mikil þörf á slíkri umræðu að sögn Stínu. „Ég ætlaði að byrja í þessu fjarnámi í „sex coaching“ í febrúar en þetta er í virtum skóla í Kaliforníu. En svo var ég að frétta um daginn að ég fæ ekki námslán af því að þetta er fjar- nám. Ég veit ekki hvernig ég á að fjármagna þetta, vonandi finnst einhver lausn á því,“ segir hún og hlær. Mér má finnast gaman Stína notar sára lífsreynslu til góða og segist verða að finna tilgang með dauða Kidda. „Það skiptir svo miklu máli að fræða. Og ef það er hægt að nýta reynsluna til góðs er það þess virði. Ég vil ekki detta í fórnarlambs- hlutverkið. Ég á auðvitað slæma daga þar sem ég vil ekki fara fram úr. En þeir eru orðnir miklu færri. Maður þarf að finna tilgang í hlut- unum. Ég á þrjú börn og vil vera fyrirmynd fyrir þau og ég reyni að tala mikið um pabba þeirra, það góða. Ég er komin á góðan stað núna með sjálfa mig og börnin mín; það hefur mikið breyst á síðustu mánuðum.“ Er framtíðin björt? „Já. Af því að ég er búin að sjá á einu ári hvað maður gert mikið með því að vinna í hlutunum og vinna í sjálfum sér. Ég er búin að finna Andagift sem nærir sálina og ég gef sjálfri mér rými til þess að finna alls konar tilfinningar. Ég má gráta og ég má hlæja og þótt ég sé ekkja þá má mér finnast gaman. Nú er ég komin á þann stað að ég er tilbúin að halda áfram með lífið, þótt auðvitað söknum við Kidda. Draumur okk- ar barnanna er að kaupa lóð uppi í sveit og byggja lítinn kofa og fara að rækta tré. Við er- um að safna klinki. Það er svo gaman að stefna að einhverju saman. Þetta tekur örugglega hundrað ár, miðað við klinkið sem komið er í krukkuna,“ segir Stína og hlær. Spurð hvort hún vilji segja eitthvað að lokum svarar Stína: „Ekki bíða með að gera eitthvað. Þú veist ekkert hvað þú hefur langan tíma.“ „Ég ákvað að ég mætti setja mig í fyrsta sæti og finna út hver ég væri, án Kidda. Hver er Stína, ekki Stína hans Kidda? Þótt það hljómi svo væmið, þessi frasi að finna sjálfan sig, þá er það svo rétt. Ég var svo týnd, búin að tapa kjarnanum mínum.“ Morgunblaðið/Ásdís Þessi fjölskyldumynd var tekin árið 2016. Kiddi var þá orðinn mjög veikur, þótt það sæist ekki utan á honum. Hér eru þau hjón með börnin þrjú, Ísak Þór, Öglu Björk og Bóas Örn. Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.