Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Blaðsíða 28
Nú eru tuttugu vikur síðan ég lagði úr höfn og hóf
átak í átt til betri heilsu. Stærsta áskorunin er ekki að lyfta
þyngra eða róa lengra. Að halda einbeitingu á verkefninu
sem ég lagði fyrir mig er miklu stærri hindrun.
Tuttugu vikur eru ekki ýkjalangur tími.Að minnsta kosti ekki við fyrstu sýn.En þær eru þó 38,5% af árinu. Hvað
varst þú að gera 8. september síðastliðinn?
Ekki man ég hvað ég var að gera þann dag.
En af sérstökum ástæðum man ég hvað bærð-
ist sérstaklega um í huga mér dagana í kring-
um þennan ágæta laugardag. Það var veg-
ferðin sem ég var að leggja upp í, eins konar
tilraunaverkefni í átt til betri heilsu. Mark-
miðið var skýrt, 10 kg niður og að miðað
skyldi við hálft ár, eða 26 vikur.
Markið við sjóndeildarhringinn
Og nú eru sem sagt liðnar 20 vikur, nánar til-
tekið 77% af tímanum sem ætlaður var í verk-
ið. Góðu fréttirnar eru þær að þegar litið er til
þyngdarmarkmiðsins eru 83% markmiðsins í
höfn (að því gefnu að það hrökkvi ekki mikið á
mann að nýju næstu sex vikurnar). Eini gall-
inn á gjöf Njarðar er sú staðreynd að það
reynist sífellt erfiðara að höggva í þyngdina,
fyrstu vikurnar eru skilvirkastar í þeim efn-
um. Það sést enda vel á grafinu sem Sigurður,
samstarfsmaður minn á Mogga, hefur útbúið
og birt er hér til hliðar. Það minnir helst á
hæðarlínur í aðflugi flugvélar. Henni er beint
hratt niður meðan verið er að lækka flugið úr
mikilli hæð. Svo réttir hún sig af þegar flug-
völlurinn nálgast, einhver smá ókyrrð í lofti,
upp og niður en ekkert alvarlegt, og svo ætti
örugg lending að verða reyndin við markið.
En ég geri tímabilið að baki að umfjöllunar-
efni að þessu sinni því ég finn að einbeitingin
sem átak af þessu tagi krefst á sér ekki vin í
tímanum sem það tekur. Fyrst er maður full-
ur eldmóðs og ætlar að láta hendur standa
fram úr ermum. Ekki dregur það úr hvat-
anum að maður skuli skrifa um framgang
verkefnisins í blöðin. Og fyrst um sinn er lítið
sem ekkert mál að standa við stóru orðin – og
þannig fjúka kílóin líka af. En svo er það ým-
islegt sem glepur, þægindalífið, freistingar í
mat og drykk og annir af ýmsum toga. Og það
er fleira. Það er alltaf hætt við, þegar hluti ár-
angursins er kominn í hús, að maður slaki á
aðhaldinu. Og ég skal fyllilega viðurkenna að
það er reyndin í mínu tilviki. Ég hef slakað á
pressunni og það veldur því að ég er ekki nú
þegar kominn í mark. Hefði ég haldið sama
dampi og í upphafi átaksins í september, októ-
ber og nóvember, væru 10 kíló farin, án efa.
Sígandi lukka er best
En það var svo sem ekki markmiðið að ná
markmiðunum á undan áætlun. Hluti af því
sem ég hef haft til hliðsjónar er að árangur
sem næst yfir lengri tíma er líklegri til að
haldast í horfinu þegar fram í sækir. Ofurátak
þar sem öllu er kollvarpað í einni svipan er
líklegra til að fara í vaskinn þar sem árang-
urinn er undirbyggður. Það sér maður vel í
lyftingunum. Sá sem djöflast í tækjum og með
lóð með miklum þyngdum, án þess að styrkja
vöðva og bein yfir lengra tímabil, er líklegur
til að lenda í meiðslum eða þrjóta örendið. Þá
er verr af stað farið en heima setið. En aftur
að einbeitingarskortinum, sem líkast til er
mesta ógnin við að ég nái markmiðinu. Það er
erfitt að átta sig á hvað sé best að gera til
þess að vinna gegn honum. En ég held þó að
ég hafi fundið svarið, á óvæntum stað – og þó.
Á miðvikudagskvöldið, eftir strembna vakt í
vinnunni, skellti ég mér með vinnufélögum í
kalda pottinn í Garðabænum. Að þessu sinni
var vatnið afar kalt enda lofthitinn í kringum
-5°. Ég entist ekki lengi, tórði í 10 mínútur en
gafst þá upp. En orkuhleðslan og endurnær-
ingin sem svona ferð felur í sér er á við 8 tíma
svefn.
Kaldi potturinn eins og
hugleiðsla eða endurstilling
Og það rímar svo sem við það sem helstu
spekingarnir sem lagt hafa stund á sjó- og
klakabað segja. Þetta er ekki síður andlegt
ferðalag en líkamlegt. Og það gildir þá hið
sama um þessar ferðir og átakið sem nú er
langt komið.
Af þeim sökum ætla ég núna, á síðustu
metrunum, vikunum sex, að stunda kalda
pottinn af meiri ákefð en ég hef gert að und-
anförnu. Ég held að það tryggi einbeitingu og
að ég missi ekki sjónar á markmiðinu. Svo er
líka mikilvægt að setja hlutina í samhengi.
Það eru sex vikur eftir. Þær renna fljótt sitt
skeið þótt einn og hálfur mánuður séu. Það er
mun skemmra í markið en á punktinn þegar
lagt var af stað. Það myndi aldrei borga sig að
snúa við!
Tíminn er ekki
besti vinur ein-
beitingarinnar
Þyngdarþróun á 20 vikum
Heimild: Heimilisbaðvogin
95
90
85
80
75
70
kg
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20vika:
92,9
84,6
84
,6
kíló
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.1. 2019
HEILSA
Þorrinn genginn í garð. Honum
fylgir einatt vond lykt. Maður
mætir á leikskólann með syn-
inum, fær sér sviðasultu og
harðfisk en sökum þess að ein-
hverjum fannst þjóðráð að
kenna tveggja ára gömlum
börnum að borða hákarl þá
ilmar maður allan daginn og
vonar að allir muni að það er
fyrsti dagur þorra og að þetta
tengist ekki bilaðri þvottavél
heima fyrir. En staðreyndin er
nú sú að inn á milli leynist ýmis-
legt góðgæti í þorramatnum og
það er ekki fjarri lagi að þetta
sé sumt alveg meinhollt. Við
feðgarnir erum t.d. sérstakir
áhugamenn um sultuna fyrr-
nefndu. Og hún getur verið holl
og góð. Í henni er t.d. engin kol-
vetni að finna (LKL-fólkið kæt-
ist yfir því). Það kann að hræða
einhverja frá því að leggja sér
hana til munns að fitan er oft 8-
10% en það er holl fita. En svo
er það prótínið. Það er 15%
sem ætti að kæta alla þá sem
stefna að því að byggja upp
vöðvamassann! En svo er það
staðreyndin sem fæstir vildu
kannski heyra. Það hollasta af
öllu hollu eru hrútspungarnir
alræmdu. Þar er prótínhlut-
fallið hvorki meira né minna en
í kringum 19% og fitan gjarnan
ekki meiri en 3-4%. Engin kol-
vetni! Pungarnir eru sannkölluð
ofurfæða.
Hvað sem öðru líður er gott
að við skulum halda í hefðirnar.
Og svo er það með þorrablótin.
Þar gilda sömu reglur og varð-
andi jólahlaðborðin. Meðal-
hófið er best og þótt þorrabjór-
inn sé freistandi þá er hann
eitur fyrir þá sem vilja grennast.
HEFÐIRNAR ERU GÓÐAR
Þorrahollt
Þorramaturinn er í mörgum
tilvikum alveg meinhollur.
Morgunblaðið/Ómar
Pistill
Stefán Einar
Stefánsson
ses@mbl.is
ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR
92,9 kg
84,5 kg
84,6 kg
Upphaf:
Vika 19:
Vika 20:
31.692
16.294
13.699
15.121
3 klst.
2 klst.
HITAEININGAR
Prótein
26,3%
Kolvetni
40,2%
Fita
33,5%
Útivist &
ferðalög
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA
fyrir mánudaginn 28. janúar.
SÉRBLAÐ
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um Útivist og ferðalög
föstudaginn 1. febrúar
Meira fyrir lesendur