Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Síða 15
Hilmar Snær á fleygi-
ferð í sviginu á ÓL í
Pyeongchang árið 2018.
AFP
Foreldrar hans, Hrönn Harðardóttir og Jón
Örvar Kristinsson, eru bæði læknar og Hilmar
Snær útilokar ekki að feta í fótspor þeirra.
„Það kemur alveg til greina, eins verkfræði.
Mér finnst hún líka spennandi,“ segir Hilmar
Snær og af óræðum svipnum að dæma mun
mér ekki takast að veiða þetta upp úr honum
hér og nú. Hann hefur ekki gert upp hug sinn.
Hilmar Snær er að ljúka stúdentsprófi eftir
þriggja ára nám og talið berst að því nýja fyr-
irkomulagi. „Það eru skiptar skoðanir um
þessa breytingu í mínum félagahópi; að stytta
framhaldsskólann úr fjórum árum í þrjú,“ seg-
ir hann. „Persónulega hefði ég alveg verið til í
eitt ár í viðbót. Bæði upp á námið sjálft og eins
félagslífið sem er frábært í Verzló.“
Ekki búinn að toppa
Hilmar Snær leyfir sér ekki að horfa langt
fram í tímann þegar kemur að keppni á skíð-
um. „Auðvitað langar mig að halda áfram, alla
vega meðan ég er að bæta mig og áhuginn er
fyrir hendi. Ég veit að ég er ekki búinn að
toppa í þessu sporti. Það er hins vegar svo
margt sem spilar inn í dæmið, svo sem hvaða
nám ég mun fara í og æfingaaðstaðan. Til að
taka sem mestum framförum þarf ég að geta
æft og keppt reglulega erlendis. Þess vegna
verð ég eiginlega að taka stöðuna á hverju
hausti. Sjá hvar ég stend.“
Næstu Ólympíuleikar verða í Peking eftir
þrjú ár og Hilmar Snær segir alltof snemmt að
segja til um hvort hann verði þar meðal kepp-
enda. „Í ljósi þess sem ég sagði hér áðan þá er
ég ekki tilbúinn að svara því nærri því strax.
En verði ég ennþá á fullu í skíðunum yrði gam-
an að vera með. Það er ekki nokkur spurning.
Ólympíuleikarnir eru æðsta markmið flestra
íþróttamanna.“
3.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
„Árangurinn var frábær. Hann var bara hársbreidd frá því að
standa á verðlaunapalli,“ segir Þórður Georg Hjörleifsson, þjálfari
Hilmars Snæs hjá Skíðadeild Víkings, spurður um frammistöðuna á
HM í Slóveníu.
„Eigi ég að vera alveg hreinskilinn þá bjóst ég við topp fimm hjá
honum í sviginu; hann hefur verið í þannig formi. Þessi árangur
staðfestir að hann er í hópi bestu svigmanna í heiminum í sínum
keppnisflokki. Stórsvigið liggur ekki alveg eins vel fyrir honum en
hann hefur samt verið að bæta sig þar og vantar ekki mikið upp á að
komast í hóp þeirra tíu til fimmtán bestu.“
Spurður hvort Hilmar Snær hafi burði til að verða ennþá betri er
Þórður ekki seinn til svars.„Já, svo sannarlega. Hann hefur metn-
aðinn og viljann til að ná lengra og fara alla leið, ef því er að skipta.“
Að sögn Þórðar er mikilvægt að Hilmar Snær hafi tök á að æfa og
keppa erlendis. „Þó aðstaðan sé ágæt hér heima þá er hún ennþá
betri víða erlendis og þess vegna er nauðsynlegt fyrir hann að fara
reglulega utan til að æfa og reyna sig við þá bestu. Í því sambandi
má ég til með að nefna stuðning Íþróttasambands fatlaðra sem hef-
ur hjálpað honum að komast upp á þetta háa plan.“
Spurður um framhaldið þá segir Þórður mikilvægt fyrir Hilmar
Snæ að keppa á sem flestum mótum erlendis til að taka sem mestum
framförum. „Ég veit að árangurinn í vetur hefur kveikt hressilega í
honum. Hilmar er hins vegar skynsamur strákur og veit að ekkert
kemur af sjálfu sér. Þetta er vinna og aftur vinna. Það er langt í
næstu Ólympíuleika en að sjálfsögðu stefnum við leynt og ljóst á þá.
Hvort af því verður mun tíminn leiða í ljós.“
Talið berst að lokum að karakternum og Hilmar Snær skorar
ekki síður hátt í þeim efnum hjá þjálfara sínum. „Hann er topp-
karakter með höfuðið skrúfað rétt á sig. Hrikalega flottur strákur.
Það sér maður ekki síst á því hvað hann er skipulagður og sinnir
náminu vel með öllum þessum æfingum. Hann er líka mjög góður í
hóp, jákvæður, hvetjandi og alltaf stutt í spaugið. Hilmari Snæ eru
allir vegir færir.“
„Hrikalega flottur strákur“
Þórður Georg Hjörleifsson hefur þjálfað Hilmar Snæ með góðum árangri.
Morgunblaðið/Hari