Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.02.2019, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.2. 2019
HEILSA
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Herjar vetrarkvefið á
Bio-Kult Candéa
eykur mótstöðuafl líkamans
Inniheldur góðgerla, hvítlauk og greipkjarnaþykkni.
Góð og öflug vörn fyrir mótstöðu líkamans
2.100 millilítrar af djús. Hvað er það? Þaðeru t.d. sex flöskur af mismunandi safa/hræringi í fallegri pappakippu frá Gló.
Það var allavega leiðin sem ég valdi til að brjóta
upp neyslumynstrið. Ekki vegna þess að ein-
hver hefði mælt með því, heldur vegna þess að
ég hafði rekist á þessa lausn á netinu. Hún er
dálítið dýr, en hvað um það. Ég hef ábyggilega
spanderað peningum með óábyrgari hætti áður
en að kaupa mér sex safaflöskur á 3.900 krónur.
Blandaði tengdó í málið
En ég bætti um betur og keypti mér þriggja
daga skammt af herlegheitunum. Tvo þeirra
nýtti ég sjálfur, á þriðjudag og fimmtudag, en
þriðja skammtinum skutlaði ég til tengda-
móður minnar en hún sýndi þessu uppátæki
mínu áhuga og sagðist vilja prófa. Einhverjir
myndu fella það undir góðvild í hennar garð en
konan mín sagði að þetta væri til marks um
hversu hrekkjóttur ég væri. Henni varð ekki
meint af og svo nægjusöm er hún að það var
langt liðið á kvöld þegar hún áttaði sig á að hún
ætti sjöttu flöskuna eftir! Sömu sögu er ekki al-
veg að segja af mér sjálfum. Ég mændi á flösk-
urnar og eftir því sem leið á daginn þyngdist
róðurinn nokkuð. En þessum sex drykkja safa-
kúr fylgja leiðbeiningar frá Gló. Í fyrsta lagi er
maður hvattur til að byrja daginn á góðum te-
bolla eða heitu vatni með sítrónu. Það er ágætis
byrjun og raunar nauðsynleg þar sem maður
getur ekki vitjað pakkans fyrr en upp úr kl. 10.
Ég sótti pakkann (ásamt samstarfsfélaga sem
ákvað að taka áskorun þar um) og við vorum
sammála um að þessir sex 350 ml safabrúsar
virkuðu ekki stórir að sjá, a.m.k. ekki þegar
maður leiðir hugann að því að þetta sé eina fæð-
an sem maður muni innbyrða þann daginn. En
þá er aðeins að bíta í skjaldarrendur og láta
ekki hugfallast.
Fyrsti drykkurinn er grænn og léttur, frem-
ur tilbrigðalítill og honum er gott að sporð-
renna strax í kjölfar þess að pakkinn er sóttur.
Ef maður skipuleggur daginn vel má miða við
að innbyrða safa á tveggja tíma fresti frá 10 að
morgni til 20 að kvöldi. Í pakkanum eru tveir
hræringar eða „smoothies“ sem hafa að geyma
matarmeiri skammta, einkum trefjar. Ég ákvað
fyrir mitt leyti að tímasetja þá tvo kl. 12 og 20,
annars vegar til að seðja sárasta hungrið í há-
deginu (eins og venja er) og svo kl. 20 til að gera
kvöldið þægilegra fram að svefni.
Safar sem koma á óvart
Þegar ég hafði fengið mér hræring kl. 12 skellti
ég mér svo í rauðrófusafann kl. 14 og hann kom
skemmtilega á óvart. Liturinn afgerandi,
bragðið nokkuð sérstakt en eftir fyrsta sopa
var þetta ljúffengt í meira lagi.
Klukkan 16 var það svo gulrótarsafi sem er
afar sætur og góður. Það skýrist af því að út í
hann er blandað ananassafa og appelsínusafa.
Þegar klukkan sló sex drakk ég svo túrmer-
iksafann, sem er sterkur og afgerandi á sína
vísu eins og rauðrófusafinn. Í lok dags kvað ég
svo upp þann dóm að túrmerikið hefði komið
mest á óvart og raunar reynst besti drykkur
dagsins.
Það var sannarlega gott að komast svo í
seinni hræringinn klukkan 20 en það verður að
viðurkennast að ég var nokkuð orkulaus upp úr
kl. 16 og fram að svefni. Það bætti svo ekki úr
skák að ég mætti á lyftingaæfingu hjá Ívari um
miðjan dag og gengur það þvert á ráðleggingar
Gló um að taka það rólega dagana sem maður
„djúsar“.
Minna mál en ég óttaðist
Allt fór þetta hins vegar vel og reyndist minna
mál en ég óttaðist. Svengd er alls ekki versta
tilfinning í heimi og það er ágætt að kynnast
henni aðeins oftar en maður gerir alla jafna í
allsnægtasamfélagi. Það er einnig ágætis lexía
að það er hægt að draga úr svengd eða komast
hjá henni með hollari hætti en þeim að belgja
sig út af brauði eða kexi. Það má t.d. gera með
góðum tebolla, kaffibolla eða stóru glasi af ís-
köldu vatni.
Í því efni sem ég hef lesið um „djúsföstur“,
sem vara gjarnan frá einum degi og upp í þrjá
til fimm daga, segir að með þeim sé tækifæri til
að afeitra líkamann. Ekki get ég vitnað um
hvort ég hafi verið „minna“ eitraður í lok þess-
ara daga í vikunni en það var sannarlega létt á
kerfinu og kannski er ágætt að gefa meltingar-
veginum frí öðru hvoru – ekki síst þegar maður
er vanur að borða vel og oft dálítið þungan mat.
Ég mæli með því að taka safadaga af þessu
tagi, þótt ekki væri til annars en að reyna með
óvanalegum hætti á staðfestuna. Þetta er
kannski önnur birtingarmynd þeirrar áráttu að
hlamma sér ofan í kalda potta hvar sem maður
kemur að þeim.
Ekki eins erfitt og það sýnist
Dagurinn er oftast rammaður
inn af föstum venjum. Þær
sem hvað mest áhrif hafa á
okkur eru matmálstímarnir,
morgun-, hádegis- og kvöld-
verður. Oft er svo snakk á
milli. Núna í vikunni tók ég
tvo daga út og neytti bara
fljótandi fæðu.
Innihald flasknanna sex virkar ekki
mjög seðjandi ásýndar en bragð-
gott er það og meinhollt.
Það gengur heilsubylgja yfir land-
ið og hefur gert um nokkurt
skeið. Við sjáum það á líkams-
ræktarstöðvunum, bókunum
sem skrifaðar eru um ketó,
grænmetisfæði og lágkolvetna-
lífsstíl og ýmsu fleiru. Og það
veitir svosem ekki af; þjóðin fitn-
ar þrátt fyrir þetta og alltof
margir bíta úr nálinni með lífs-
stílstengdum sjúkdómum á borð
við sykursýki. Mörg ónýt hné
tengjast því að fólk er of þungt.
Margt af því sem fjallað er um
grípur mann ekki sérstaklega
eins og gengur og gerist og ekki
kemst maður yfir að lesa allt sem
gefið er út um heilsu og hreyf-
ingu. En það á sannarlega ekki
við um nýja þætti sem Síminn
hefur tekið til sýningar sem nefn-
ast Lifum lengur. Þar eru á ferð-
inni átta þættir sem sjónvarps-
konan Helga Arnardóttir hefur
framleitt. Þar er fjallað um mik-
ilvæga heilsutengda þætti á borð
við heilsu, næringu, hreyfingu og
svo andlega heilsu. Í kynningu á
þáttunum er sagt að þeir séu á
mannamáli og það er satt.
Í þáttunum ræðir Helga við
sérfræðinga, bæði íslenska og er-
lenda, um ofangreint efni. Í þátt-
unum tókst henni t.d. að útskýra
fyrir mér með skiljanlegri hætti
en áður hvað áunnin sykursýki
er – og ég er ekki frá því að ég
hafi dregið úr sykuráti síðan.
Það er líka skemmtileg til-
breytni í íslensku sjónvarpi að
hægt sé að nálgast alla þættina
átta, og þurfa ekki að bíða í átta
vikur eftir því að serían klárist.
Síminn er í þessu efni kominn
inn á 21. öldina, ólíkt RÚV. Af
hverju má ég ekki ráðstafa út-
varpsgjaldinu mínu til þeirra
sem mæta mínum þörfum og
áhugasviðum?
ÍSLENSKIR HEILSUÞÆTTIR
Gott innlegg
Helga hefur framleitt mjög áhuga-
verða þætti um heilsu, Lifum lengur.
Pistill
Stefán Einar
Stefánsson
ses@mbl.is
ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR
92,9 kg
84,6 kg
84,1 kg
Upphaf:
Vika 20:
Vika 21:
16.294
13.526
15.121
12.123
2 klst.
2 klst.
HITAEININGAR
Prótein
35,2%
Kolvetni
34,9%
Fita
29,9%