Morgunblaðið - 21.02.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Frá kr.
179.99524. apríl í 16 nætur
BENIDORM 60+
Okkar vinsæla ferð eldri borgara
Frá kr.
179.99510. maí í 14 nætur
Gist á Hotel Melia Benidorm ****
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Morgunblaðið/Jim Smart
Kjöt Verði frumvarpið að lögum er
hægt að flytja inn ferskt kjöt.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neyti hefur birt á Samráðsgátt stjórn-
valda frumvarp til laga um breytingu
á lögum um matvæli og lög um dýra-
sjúkdóma. Er þar kveðið á um afnám
núverandi leyfisveitingakerfis vegna
innflutnings á ákveðnum landbúnað-
arafurðum innan Evrópska efnahags-
svæðisins (EES). Frumvarpið er við-
bragð stjórnvalda við tveimur dómum
Hæstaréttar Íslands og EFTA-dóm-
stólsins um að núverandi leyfisveit-
ingarkerfi við innflutning á kjöti og
eggjum og krafan um frystingu kjöts
brjóti í bága við EES-samninginn.
Mega ekki bjóða hættunni heim
Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir
að markmið aðgerðanna sé að íslensk
stjórnvöld standi við þær alþjóðlegu
skuldbindingar sem Ísland hafi undir-
gengist á sama tíma og öryggi mat-
væla og vernd búfjárstofna sé tryggð
auk þess sem gripið sé til aðgerða til
að bæta sam-
keppnisstöðu inn-
lendrar matvæla-
framleiðslu.
„Stjórnvöld
hafa undanfarið
ár unnið að um-
fangsmikilli að-
gerðaáætlun sem
tekur til margra
þátta og miðar að
því að efla mat-
vælaöryggi, tryggja vernd búfjár-
stofna og bæta samkeppnisstöðu inn-
lendrar matvælaframleiðslu. Verður
gripið til þeirra aðgerða samhliða af-
námi þess leyfisveitingakerfis sem nú
gildir um innflutning á kjöti og eggj-
um og dæmt hefur verið ólögmætt,“
segir í tilkynningunni.
Núgildandi krafa um frystingu
kjöts getur verið vörn gegn því að
sjúkdómur eða sýktar afurðir berist
hingað til lands, t.d. vegna 30 daga
biðtíma. Segir ráðuneytið kunnugt
um tilfelli hér á landi þar sem þessi
frestur hefur haft þýðingu. Þá minnk-
ar frysting magn kampýlóbakter í ali-
fuglakjöti en hefur lítil áhrif á aðrar
sjúkdómsvaldandi örverur eða sýkla-
lyfjaónæmar bakteríur.
Í frumvarpinu er því lagt til að sett
verði lagaregla þess efnis að óheimilt
verði að dreifa alifuglakjöti nema
matvælafyrirtæki geti sýnt fram á að
kjötið sé ekki sýkt kampýlóbakter.
„Með þessu verður sama krafa
gerð til innflutts alifuglakjöts og gerð
hefur verið til innlendrar framleiðslu
undanfarna tvo áratugi,“ segir í til-
kynningu stjórnvalda.
Öflugt eftirlit undirstaðan
„Ég vil undirstrika það að við búum
við þessa öfundsverðu stöðu að kam-
pýlóbakter-sýkingar í fólki eru
minnstar hér í allri Evrópu. Ástæðan
fyrir þessu er mjög einföld. Við erum
með mjög öflugt eftirlit með innlendri
framleiðslu á alifuglakjöti. Í mínum
huga kemur ekki til greina, við þær
breytingar sem við stöndum frammi
fyrir, að fórna þessari stöðu. Með því
að gera einhverjar aðrar eða minni
kröfu til innflutts alifuglakjöts,“ segir
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra. Ráðuneytið
hefur verið í viðræðum við Evrópu-
sambandið (ESB) um hvernig er best
hægt að framkvæma þetta eftirlit en
ítrekar þó að það muni ekki hagga
skýrri stefnu stjórnvalda um að
standa vörð um sterka stöðu Íslands.
„Við höfum átt viðræður við Evrópu-
sambandið, bæði á embættismanna-
stigi og síðan hefur utanríkisráðherra
rætt við utanríkismálafulltrúa sam-
bandsins. Ísland stendur frammi fyrir
því að það liggur fyrir EFTA-dómur
sem við þurfum að hlíta og bregðast
við. Fulltrúar ESB hafa lýst yfir já-
kvæðum vilja til þess að ræða við okk-
ur um þær ráðstafanir sem við ætlum
að grípa til, m.a. varðandi kampýló-
bakter.
Nauðsynlegt að bregðast við
Ísland hefur verið dæmt skaða-
bótaskylt oftar en einu sinni vegna
leyfisveitingakerfisins og því nauð-
synlegt að bregðast við að sögn Krist-
jáns. „Stjórnvöld verða bara að
bregðast við með einhverjum hætti.
Það liggja á okkur tveir dómar, ann-
ars vegar frá EFTA-dómstólnum
sem er bindandi fyrir EFTA-ríkin.
Síðan liggur fyrir dómur Hæstaréttar
Íslands sem komst að sambærilegri
niðurstöðu og og EFTA-dómstóllinn
og dæmdi ríkið skaðabótaskylt. Við
getum ekki setið aðgerðarlaus
frammi fyrir þessari stöðu mála.“
Afnema frystiskyldu á innfluttu kjöti
Stjórnvöld að virða EES-skuldbindingar Viðbrögð við dómum Hæstaréttar og EFTA- dómstólsins
Sérákvæði um dreifingu á alifuglakjöti Margþátta aðgerðaáætlun komið á til að efla matvælaöryggi
Kristján Þór
Júlíusson
Artur Pawel Wisock var dæmdur í
gær í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir stórfellda líkams-
árás á dyravörð á skemmtistaðnum
Shooters í ágúst í fyrra, með þeim af-
leiðingum að dyravörðurinn lamaðist
fyrir neðan háls. Samverkamaður
Arturs, Dawid Kornacki, hlaut sex
mánaða dóm fyrir aðild sína að árás-
inni.
Tvímenningarnir höfðu áður játað
að hafa ráðist á annan dyravörð, sem
hlaut ekki lífshættulega áverka, en
Artur neitaði að hann hefði gerst sek-
ur um stórfellda líkamsárás á dyra-
vörðinn sem lamaðist.
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir, að-
stoðarsaksóknari hjá héraðssaksókn-
ara, sagði í samtali við mbl.is í gær að
dómurinn hefði verið í samræmi við
það sem ákæruvaldið lagði upp með í
málinu.
Dyravörðunum tveimur voru jafn-
framt dæmdar skaðabætur fyrir
árásina, og fær sá sem lamaðist sex
milljónir króna í miskabætur en hinn
600 þúsund krónur.
Saksóknari óskaði eftir því við aðal-
meðferð málsins að Artur yrði dæmd-
ur í nokkurra ára fangelsi, án þess að
nefna árafjölda. Hann hyggst hins
vegar áfrýja málinu til Landsréttar.
Fimm ára fangelsi fyrir
stórfellda líkamsárás
Dyraverðinum dæmdar sex milljónir króna í miskabætur
Morgunblaðið/Eggert
Shooters Sakborningar í Shooters-málinu við aðalmeðferð þess.
Landsmenn eru flestir fyrir löngu orðnir vanir forvitnum
ferðalöngum sem fanga vilja hvern krók og kima á filmu. Í
miðbæ Reykjavíkur eru mörg myndefnin og er Sólfarið við
Sæbraut eitt þeirra. Þessi fallegi álskúlptúr, sem komið var
fyrir á sínum stað og afhjúpaður á afmæli Reykjavíkurborgar
1990, litaðist af vetrarsólinni í björtu veðri í gær.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útsýnið við Sæbraut heillar margan ferðalanginn
Ferðamannastaðirnir fjölsóttir í miðbæ Reykjavíkur