Morgunblaðið - 21.02.2019, Blaðsíða 58
58 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019
Canada Goose Rossclair Parka er framúrskarandi vörn
gegn kuldanum og glæsileg hönnun fyrir borgarlífið. Okkar
verð er sambærilegt eða betra en í flestum öðrum löndum.
CANADA GOOSE FÆST Í NORDIC STORE LÆKJARGÖTU
www.nordicstore.is
Opið kl . 9 -22 alla daga
C
an
ad
a
G
o
o
se
R
o
ss
cl
ai
r
P
ar
ka
11
9
.9
9
0
k.
Kuldaþol: -20°C
Eftir vinnuslys úti á sjó fyrir sex árum tók líf Gunnars Sigurðs-sonar, sem var þá var háseti og vélavörður á loðnuskipinuFaxa RE, nýja stefnu. „Krani á skipinu brotnaði og hrundi yf-
ir mig. Ég mölbrotnaði og var fluttur í land með þyrlu. Eftir sjúkra-
húsvist og endurhæfingu varð mér ljóst að ég yrði að róa á ný mið, ef
svo mætti, segja og dreif mig því í Tækniskólann og fór í vélstjóra-
námi eins og lengi hafði staðið til. Er í dag sölumaður hjá Verkfærum
ehf. hvar við verslum með vinnuvélar, lyftara, rafmagnsbíla og tæki-
færi. Þetta er skemmtilegt starf og mér finnst ég hafa ná að gera það
besta úr aðstæðum sem breyttust svo skyndilega,“ segir Gunnar, sem
er 49 ára í dag.
Fótboltaáhugi segir Gunnar að sé sitt hálfa líf og í þessari viku var
hann með tveimur félögum sínum á Englandi til að fylgjast með leik
Liwerpool og Bayern München, sem endaði með markalausu jafntefli
„Ég er gallharður Púllari. Fylgist með öllum þeirra leikjum og ferðir
mínar til heimaborgar liðsins á undanförnum árum eru margar.
Liverpool er fallegur staður og tók stakkaskiptum þegar hún var
menningarborg Evrópu árið 2008. Og hér er menningin auðvitað á
hverju strái; fótbolti og Bítlaklúbbar. “
Gunnar er frá á Selfossi og bjó þar fram á þrítugsaldur. Ól svo
manninn nokkur ár í Eyjum, en þaðan er Lilja Ólafsdóttir kona hans.
Þau fluttu til Reykjavíkur árið 1999 og búa í dag í Víkurhverfi í
Reykjavík með sonum sínum tveimur sem eru Gauti Þór 17 ára og
Kristinn Gunnar sem er fjórtán ára og fermist í vor. sbs@mbl.is
Boltaferð Gunnar Sigurðsson staddur í Liverpool nú í líðandi viku.
Sjómaðurinn reri
á ný mið í lífinu
Gunnar Sigurðsson er 49 ára í dag
S
teingrímur Kristinsson
fæddist á Siglufirði 21.2.
1934 og ólst þar upp.
Siglufjörður var á þeim
tíma iðandi af mannlífi og
síld og síldveiðar í aðalhlutverki auk
þess sem viðvera breskra hermanna
á uppvaxtarárunum kryddaði dag-
legt líf. Þessi tími var viðburðaríkur
og bresku hermennirnir settu mik-
inn svip á daglegt líf heimamanna á
þessum tíma.
Að loknu hefðbundnu grunn-
skólanámi tóku við ýmis verka-
mannastörf, aðallega tengd síldinni
og sjómennsku. Steingrímur starfaði
einnig lengi við smíðar hjá trésmíða-
verkstæði og vélaverkstæði Síldar-
verksmiðja ríkisins en umsvif verk-
smiðjanna voru mikil, ekki bara á
Siglufirði heldur einnig á Raufar-
höfn, Reyðarfirði og Seyðisfirði og
voru starfsmenn verkstæðisins send-
ir mikið til starfa austur. Þá var
Steingrímur timburmaður á Hafern-
inum, síldarflutningaskipi sem gert
var út frá Siglufirði í um fjögur ár.
Einnig starfaði hann frá 14 ára aldri
sem afleysingamaður við kvik-
myndasýningar í Nýja bíói á Siglu-
firði og starfaði við það á 50 ára tíma-
bili, frá árinu 1980 sem sýningar-
stjóri.
Steingrímur hefur alla tíð verið af-
kastamikill ljósmyndari en fyrstu al-
vöru myndavélina eignaðist hann
1959. Hann tók gríðarlegan fjölda
ljósmynda í tengslum við atvinnu- og
mannlífið á Siglufirði í áratugi frá
1959. Einnig myndaði hann sem
starfsmaður Síldarverksmiðja rík-
isins mikið um borð í síldarflutn-
Steingrímur Kristinsson áhugaljósmyndari – 85 ára
Ljósmynd/Steingrímur
Fjölskyldan í lautarferð Frá vinstri: Margrét, Guðný, Kristinn, Valbjörn og Steingrímur.
Hefur tekið myndir
í meira en sextíu ár
Ljósmyndarinn Steingrímur.
Laugarvatn Jónas
Smári Guðmunds-
son fæddist 10.
október 2018. Hann
vó 4.514 g og var 54
cm að lengd. For-
eldrar hans eru
Fjóla Rut Svavars-
dóttir og Guð-
mundur H. Gísla-
son.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.