Morgunblaðið - 21.02.2019, Page 14

Morgunblaðið - 21.02.2019, Page 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019 www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ FJÖLHÆFASTA FJÖLSKYLDA LANDSINS? Glæsilegur og vel útbúinn pallbíll með 3.0 lítra, 258 hestafla, V6 dísilvél, 580 Nm togi, sjálfvirkum vélarhitara, bakkmyndavél, fjarlægðarskynjara að framan og aftan, regn- og birtuskynjara, Xenon/led aðalljósum og 18” álfelgum. Volkswagen Amarok verð frá 8.290.000 kr. Hannaður með þarfir iðnaðar- manna að leiðarljósi og með átta þrepa sjálfskiptingu fyrir allar útgáfur. Fjöldi útfærslna á hleðslurými, farþegarými og aðstoðarkerfi. Volkswagen Crafter verð frá 6.270.000 kr. Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi undanfarin ár. Áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum, fjórhjóladrifinn og í fjölda útfærslna. Volkswagen Caddy verð frá2.720.000 kr. Transporter hefur fylgt kynslóðum af fólki sem hefur þurft á traustum og áreiðan- legum vinnuþjarki. Fullkomin stöðugleikastýring, spólvörn og sjö þrepa sjálfskipting. Volkswagen Transporter verð frá 4.390.000 kr. S jálfsagt hafa allir lent í því að fá niðurgang sem oft fylgja uppköst. Þetta er óskemmtileg vanlíðan sem tekur á allan líkam- ann. Yfirleitt er þetta kallað að fá magapest og oftast er þetta merki um veirusýkingu í þarmi, en fleira kemur til greina. Matareitrun er vert að hafa í huga en einnig getur þetta verið bakteríusýking. Ýmsir sjaldgæfari kvillar geta valdið niður- gangi og uppköstum en fæstir velta þeim möguleika fyrir sér þegar veik- indin byrja. Rétt næring og nóg að drekka Vökvi og sölt tapast úr líkamanum við niðurgang og uppköst, ekki síst ef hiti fylgir veikindunum. Lítil börn og eldri borgarar eru í sérstakri áhættu fyrir vökvatapi. Einkenni vökvataps geta verið til dæmis minnkuð þvaglát, munnþurrkur, þreyta, slappleiki og pirringur. Rétt vökvainntaka og næring er yfirleitt lykillinn að bata. Vatn, sykur og salt í réttri blöndu er mikilvægt. Drekka skal oft og lítið í einu. Forðast skal gosdrykki og sæta safa svo eitthvað sé nefnt. Ef niðurgangur er mikill getur verið skynsamlegt að leita fag- legra ráða. Þau fást allan sólarhring- inn í síma 1700 eða 1770 hjá hjúkr- unarfræðingi Læknavaktarinnar og á heilsugæslustöðvum á dagtíma. Hvað viðvíkur börnum með mik- inn niðurgang og uppköst geta þau misst of mikinn vökva og líkaminn þornað upp. Því er mikilvægt að gefa börnum rétta næringu og sérstak- lega nóg að drekka. Best er að gefa sérstaka sykursaltvatnsblöndu, til dæmis Electrorice sem fæst í apó- teki. Blandan er seld í duftformi og leyst upp í vatni heima. Best er að hafa vatnið við stofuhita og ekki þarf að sjóða það. Til eru líka sykursalt- freyðitöflurnar Resorb fyrir börn eldri en þriggja ára. Þær eru leystar upp í vatni og fylgja leiðbeiningar með. Einnig má gefa íþróttadrykk- inn Gatorade í ¾ á móti vatni. Börnin fái hollt fæði Sykursaltvatnsblandan er gefin eftir hver uppköst og niðurgang – og einnig þess á milli. Eftir hver upp- köst og niðurgang þurfa börn sem eru léttari en 10 kg að fá 60-120 mL en börn þyngri en 10 kg þurfa að fá 120-240 mL. Best er að barnið drekki blönduna rólega, fái jafnvel bara sopa og sopa í senn, sérstak- lega ef barnið er með uppköst. Auk sykursaltvatnsblöndu má barnið fá sitt holla venjulega fæði. Börn sem fá brjósta- eða þurrmjólk eiga að halda því áfram. Skynsam- legt getur verið í byrjun veikinda að draga úr kúamjólk, skyri og sætum mjólkurvörum, sérstaklega ef barninu virðist verða illt af þeim. Soð og sykursaltvatn Engin lyfjameðferð er við venju- legum niðurgangi hjá börnum. Ef þessar ráðleggingar eru ekki að gagnast og barnið er áfram veikt, drekkur og nærist lítið er mikilvægt að hafa samband við lækni eða hjúkrunarfræðing og láta meta ástand barnsins. Eins ef barnið fer að fá fleiri einkenni eins og háan hita eða blóð í hægðum. Að mörgu leyti gilda sömu heilsu- ráð fyrir fullorðna hvað varðar niðurgang og uppköst. Mikilvægt er að drekka vel af vökva, til dæmis vatn, vatnsblandað Gatorade, létt- sykrað te, tærar bollasúpur eða kjöt- kraftssoð. Sykursaltvatn og freyði- töflur geta einnig virkað vel. Ef vel gengur má svo bæta við LGG+, hreinni jógúrt, AB-mjólk, ristuðu brauði, saltkexi, banönum og eplum án hýðis. Síðan pastaréttum, soðnu grænmeti, kartöflum og hrís- grjónum, soðnum/bökuðum fiski og kjöti. Byrja þannig rólega á létt- meltanlegum mat, borða oft og lítið í einu, en meðan uppköst vara er best að vera á fljótandi fæði. Gos, ávaxta- safa, kaffi, orkudrykki, hrátt græn- meti, trefjaríkar vörur eða sterkan eða brasaðan mat ber að forðast uns veikindi eru að baki. Ef fólk er á hægðalosandi lyfjum er rétt að hætta á þeim þar til það er orðið full- frískt aftur. Hreinlæti mikilvægt Í veikindum eins og að framan er lýst er mikilvægt að passa vel upp á handþvott og hreinlæti. Lyf við niðurgangi, til dæmis Imodium, skal ekki taka nema hann sé langvarandi og þá í samráði við lækni. Magapest tekur á allan líkamann Veikindi Allir í fjölskyldunni með pest. Við þessar aðstæður er vatn, sykur og salt í réttri blöndu mikilvægt. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Læknir Ef magapest og niðurgangur verða mjög skæð getur verið skynsam- legt að leita faglegra ráða, segir Þórður G. Ólafsson. Heilsuráð Þórður G. Ólafsson heimilislæknir í Efra-Breiðholti og yfirlæknir á Læknavaktinni. Ljósmynd/Thinkstock.com Næstkomandi sunnudag, 24. febrúar kl. 14, verða Lilja Árna- dóttir og Nathalie Jaqueminet með leiðsögn um sýn- inguna Kirkjur Ís- lands. Skrúði og áhöld. Straumar og stefnur sem er í Bogasal í Þjóðminjasafni Íslands. Á sýningunni er úrval gripa sem fengnir voru að láni úr íslenskum kirkjum víða um land. Valdir voru gripir sem varpa ljósi á listsöguleg tengsl íslenskra kirkjugripa við strauma og stefnur í nágrannalöndunum. Leiðsögumenn sunnudagsins munu eftir föngum greina frá liststílum gripanna og sagð- ar verða sögur valinna gripa sem eiga sér athyglisverðan feril. Þjóðminjasafnið á sunnudag Kirkjuleiðsögn Lilja Árnadóttir Gengið verður á Keili, fjallið sem er táknmynd Reykjanessins, í skemmti- legri ferð á vegum Ferðafélags unga fólksins nú á laugardaginn. Ferðin hefst kl. 10 við skrifstofu Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 og þar sameinast fólk í bíla. Gengið er í gegnum fallegt hraun að fjallinu og ætti það þramm að vera á flestra færi. Svo er farið á fjallið sem rís 379 metra yfir sjó og er af því mikið og fallegt útsýni. Hlýr fatnaður og góður skóbúnaður nauðsynlegur. Ferðafélag unga fólksins Gengið á Keili Keilir Bessastaðir í forgrunni. Önnur Tómasarmessan í Breiðholts- kirkju í Reykjavík á þessu ári verður sunnudagskvöldið 24. febrúar kl. 20. Umfjöllunarefni messunnar verður: Blessun brauðs og víns. Sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og Gospelkór Smárakirkju leiðir tónlistina ásamt Matthíasi V. Baldurssyni og Páli Magnússyni. Tómasarmessur sem haldnar hafa verið frá 1997, einkennast af fjöl- breytilegum söng og tónlist. Áhersla er lögð á fyrirbænaþjónustu og á þátttöku leikmanna. Breiðholtskirkja Tómasarmessa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.