Morgunblaðið - 21.02.2019, Page 20

Morgunblaðið - 21.02.2019, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019 Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi. Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Veldu Panodil sem hentar þér! Verkjastillandi og hitalækkandi Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Strax eftir komandi mánaðamót munu fyrstu íbúarnir flytja inn í fjölbýlishúsið við Urriðaholtsstræti í Garðabæ sem reist hefur verið að undirlagi IKEA á Íslandi. Alls eru 34 íbúðir í byggingunni og þessa dagana eru iðnaðarmenn að setja upp innréttingar og ýmsan hús- búnað. Öryggisúttekt verður gerð í næstu viku og komi ekkert óvænt upp á ætti fólk að geta farið að koma sér þarna fyrir. Fyrst verður í röð- inni fjögurra manna fjölskylda, starfsfólk IKEA, sem hefur verið á hrakhólum. Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, segir ánægjulegt að geta komið til móts við þarfir fólksins. Húsnæðisvand- inn á höfuðborgarsvæðinu komi í ýmsu tilliti niður á atvinnulífinu og því sé fyrirtækið nú að bregðast við. Velvild bæjaryfirvalda Af alls 34 íbúðum í húsinu eru tuttugu á bilinu 25-35 fermetrar; það er alrými með eldunaraðstöðu, forstofugangur og baðherbergi. Hinar íbúðirnar eru stærri eða í kringum 65 fermetrar og svefn- herbergin þar eru tvö. Hver íbúð hefur sinn sérstaka stíl hvað varðar innréttingar, gólfefni og liti. Engar tvær eru alveg eins þó að stíllinn í heild sé áþekkur. Húsið er alls fimm hæðir og snúa stofugluggar og sval- ir mót sólríku suðri. Svalainngangur snýr til norðurs og þaðan sést vel yf- ir Vífilsstaðahraun og að Garðabæ. Þá er þetta fyrsta fjölbýlishúsið á Íslandi sem byggt er eftir stöðlum Svansins, sem er opinbert umhverf- ismerki Norðurlandanna. Er allt byggingarefni í húsið sérvalið sam- kvæmt því. Um tvö ár eru síðan framkvæmd- irnar í Urriðaholti hófust en allt ferlið segir Þórarinn hafa verið mjög lærdómsríkt. „Frá upphafi hefur útgangspunktur okkar verið sá að íbúðirnar væru litlar en vel skipulagðar og þar með notadrjúg- ar. Það hefur okkur tekist. Hins vegar er því ekki að leyna að miklar kröfur eru í byggingareglugerð svo sem um rými fyrir hjólastóla á bað- herbergi, brunavarnir og fleira. Allt þetta hefur hækkað ýmsan kostnað og breytingar sem þurft hefur að gera hafa tafið okkur, segir Þór- arinn um verkefnið. Það segir hann hafa notið mikillar velvildar bæj- arstjórnar í Garðabæ og sú jákvæða afstaða gert hlutina kleifa. Kostar um 800 milljónir kr. Það er Skip ehf., systurfélag IKEA, sem á og rekur bygginguna en samanlagður kostnaður við fram- kvæmdir er um 800 milljónir króna. Allar íbúðirnar fara í útleigu, 20 verður ráðstafað til starfsmanna IKEA, en verslun fyrirtækisins er þarna skammt frá. Hugsast getur að fleiri fyrirtæki á þessum slóðum taki einnig íbúðir og leigi áfram til sinna starfsmanna. Ef ekki fara íbúðirnar í almenna útleigu þar sem margir eru um hituna. Leiguverðið er líka hagstætt; um 135 þúsund kr. á mán- uði fyrir minnstu íbúðirnar en um 220 þúsund fyrir þær stærri. Er þá innifalinn hússjóður og gjald fyrir háhraðanet. „Þetta eru nokkru hærri upp- hæðir en ég hafði væntingar um og þar kemur til að lóða- og innviða- gjöldin hér eru há og framkvæmda- tíminn á þensluskeiði í byggingar- iðnaði. Meðan á þessu hefur staðið hefur svo ýmsu þurft að breyta til að mæta nýjum áherslum í bygg- ingareglugerðinni, en allt þetta fer beint út í leiguverðið. Við höfum hins vegar lært mikið á þessu verk- efni og höfum það til hliðsjónar ef við höldum áfram á þessari braut, “ segir Þórarinn. Viljum ungt barnafólk Við val á leigjendum í fjölbýlis- húsið verður sérstaklega hugað að félagslegri blöndun; það er jafnvægi milli kynja og aldurs og annarra slíkra þátta. „Hér viljum við sér- staklega fá inn ungt barnafólk. Jú, auðvitað eru þessar íbúðir pínulitlar en sé horft til þess hvað fasteigna- verð hér á höfuðborgarsvæðinu er orðið hátt er í sjálfu sér ekkert annað í boði fyrir ungt fólk sem er að byrja búskap. Svo getur fólk alltaf fært sig þegar hagur þess vænkast eða fjölskyldan stækkar. Og þó að starfsfólk okkar hjá IKEA fái hér íbúðir á hagstæðu verði er það alls ekki í vistar- böndum. Það verður enginn settur út á Guð og gaddinn,“ segir fram- kvæmdastjóri IKEA að síðustu. IKEA-blokkin í Garðabæ í gagnið Morgunblaðið/Eggert Samstarfsmenn Stefán R. Dagsson verslunarstjóri og Þórarinn Ævarsson framkvæmdastjóri fyrir utan fjölbýlishúsið sem er við Urriðaholtsstræti. Eldhús Hugsað er fyrir öllu og hver fermetri er gjörnýttur. Tékk Engar tvær íbúðir eru nákvæmlega eins þótt svipurinn sé líkur.  34 notadrjúgar íbúðir og félagsleg blöndun  Brugðist við húsnæðisvandanum  Miklar kröfur í reglugerð hækka leiguverðið  Fyrsta Svansvottaða fjölbýlishúsið  Enginn verður í vistarböndum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.