Morgunblaðið - 21.02.2019, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019
SAMSTARFSAÐILI
Hringdu í 580 7000
eða farðu á
heimavorn.is
HVAR SEM ÞÚ ERT
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Bjór og sálmar verða á boðstólum í
safnaðarheimili Langholtskirkju 1.
mars næstkomandi þegar félagar í
Kór Langholtskirkju bjóða til
sálmasöngs og bjórdrykkju í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Tilefnið er
að þá verða 30 ár síðan sala bjórs
var leyfð hér á landi og til stendur
að afla fjár fyrir kórinn.
Magnús Ragnarsson kórstjóri
segir viðburðinn vera að banda-
rískri fyrirmynd og segir sóknar-
börn og aðra starfsmenn kirkj-
unnar hafa tekið jákvætt í hug-
myndina. „Bjór og sálmar eru góð
blanda,“ segir Magnús.
1. mars hefur gengið undir nafn-
inu Bjórdagurinn síðan árið 1989,
en að sögn Magnúsar var þessi dag-
ur valinn af tilviljun. „Við höfðum
verið að velta fyrir okkur dagsetn-
ingu, þetta var sú eina sem hentaði
öllum og salurinn var laus þetta
kvöld. Það var ekki fyrr en eftir að
við vorum búin að ákveða þennan
dag að við áttuðum okkur á því að
þetta væri hvorki meira né minna
en Bjórdagurinn sjálfur,“ segir
Magnús.
Safna fyrir ferð á kórakeppni
Á ferðum sínum um Bandaríkin
hafa prestar Langholtskirkju
kynnst því sem þar í landi er kallað
„Beer and Hymns“ eða Bjór og
sálmar þar sem fólk kemur saman,
syngur sálma og er gefinn kostur á
að drekka bjór, ef það hefur áhuga
á því. Þegar rætt var um vænlegar
fjáröflunarleiðir kórsins var stungið
upp á þessu.
„Reyndar erum við ekki fyrst til
að gera þetta hér á landi,“ segir
Magnús. „Ég veit til þess að þetta
hefur verið gert hjá kórnum í Akra-
neskirkju, þau hafa verið með
sálma og bjór á veitingastað þar í
bænum og því hefur verið vel
tekið.“
Kórakeppnin, sem Kór Lang-
holtskirkju hyggur á þátttöku í,
verður í borginni Tours í Frakk-
landi í lok maí. Þar verða kórar víða
að úr heiminum og stendur kórinn
nú í ströngu við æfingar, undirbún-
ing og fjáröflun vegna ferðarinnar.
Segir viðhorfin hafa breyst
Spurður hvort einhver gagnrýni
hafi komið fram og hvort ein-
hverjum þyki áfengisneysla og
sálmasöngur kynleg blanda segist
Magnús ekki hafa orðið var við það
viðhorf.
„Hugsanlega hefðu einhverjir
verið á móti þessu fyrir nokkrum
árum . En viðhorf til áfengisneyslu
hafa breyst mikið og eins áfengis-
menningin. Áður fyrr var fólk
gjarnan að hrynja í það þegar það
drakk áfengi, en núna er fólk síður
að drekka sig ofurölvi, heldur meira
að smakka það. Ég á því alls ekki
von á því að þetta verði fyllerí,
heldur að þarna verði fyrst og
fremst sungið af hjartans lyst. Til-
gangurinn er fyrst og síðast að
skemmta sér. Ég hef heyrt hjá koll-
egum mínum, organistum í öðrum
söfnuðum, að þeim líst vel á þessa
hugmynd og hafa margir þeirra tal-
að um að fjölmenna með kórana
sína til okkar.“
Engir bjórsálmar
Safnaðarheimilið hefur fengið
gefið út tímabundið áfengisleyfi
þetta kvöld og undirbúningur er nú
í fullum gangi. Leikið verður undir
sálmasönginn á orgel og píanó og
Magnús segir að gestum sé frjálst
að koma með eigin hljóðfæri kjósi
þeir svo og leggur áherslu á að allir
séu velkomnir, óháð því hvort þeir
tilheyri Langholtssókn og að ekki
sé krafist sérstakra sönghæfileika.
Hann segir að enn sé verið að velja
sálma til að syngja að kvöldi þess 1.
mars en einnig verði gestir hvattir
til að koma með uppástungur að
sálmum.
Aðspurður segist hann ekki
þekkja til nokkurs sálms þar sem
yrkisefnið er bjór. „En það er
reyndar fjallað um vín í einhverjum
sálmum,“ segir hann. „Kannski
syngjum við þá.“
Bjór og sálmar eru góð blanda
Kór Langholtskirkju aflar fjár á nýstárlegan hátt Sálmasöngur og bjórdrykkja á 30. Bjórdeginum
Kórstjóri segir hugmyndina hafa fengið góðar viðtökur og býst við að sungið verði af hjartans lyst
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Glaðbeitt Magnús Ragnarsson og Kór Langholtskirkju bjóða sálmasöng og bjór í safnaðarheimili kirkjunnar.
Hrókurinn og Kalak, vinafélag Ís-
lands og Grænlands, efna til skák-
móts og kynningar á starfinu á
Grænlandi 2019, í Pakkhúsi Hróks-
ins, Geirsgötu 11, laugardaginn 23.
febrúar nk. kl. 14. Þar verður slegið
upp Kulusuk-skákmóti í tilefni af því
að fyrsti leiðangur Hróksliða til
Grænlands verður á næstu vikum.
Samhliða skákmótinu munu liðs-
menn Hróksins og Kalak segja frá
þeim verkefnum sem fram undan
eru. Um páskana verður 13. hátíðin
haldin í Ittoqqortoormiit við Scor-
esby-sund, afskekktasta bæ Græn-
lands, og í byrjun júní er komið að
árlegri Air Iceland Connect-hátíð í
Nuuk. Síðar í sumar liggur leiðin
m.a. til Tasiilaq, höfuðstaðar Austur-
Grænlands, og Kullorsuaq á vestur-
ströndinni. Í desember standa
Hrókurinn og Kalak svo fyrir árlegri
jólasveinaferð til Kulusuk.
Stærsta verkefni Kalak á árinu er
að vanda tveggja vikna Íslands-
heimsókn 11 ára barna og fylgdar-
liðs frá litlu þorpunum á Austur-
Grænlandi.
Kynna skákstarfið
á Grænlandi í ár
Tasiilaq Hrókurinn og Kalak eru með öflugt skákstarf á Grænlandi.
Kulusuk-skákmót í Pakkhúsinu
Á vefsíðu samtakanna „Beer &
Hymns“ eða bjór og sálmar segir
að innan kristninnar sé sterk
hefð fyrir því að blanda saman
sálmasöng og kráarmenningu.
Samtökin voru stofnuð árið 2006
á bresku Greenbelt-hátíðinni sem
er kristileg tónlistar- og við-
burðahátíð og síðan þá hefur
þessi siður breiðst út víða um
heim, einkum til Bandaríkjanna,
að því er fram kemur á vefsíð-
unni.
Þar segir enn fremur að fjöl-
margir söfnuðir víðs vegar um
Bretland hafi verið með þetta
fyrirkomulag á samkomum sínum
og þannig hafi náðst tenging á
milli kirkjunnar og almennings
sem ella hefði ekki orðið.
Bjór og sálmar njóta hylli um víða veröld
Á RÆTUR SÍNAR AÐ REKJA TIL KRISTILEGRAR TÓNLISTAR- OG VIÐBURÐAHÁTÍÐAR Í BRETLANDI
Beer & Hymns Fyrirbærið á rætur
sínar að rekja til kristilegrar hátíðar.